
Efnahagsmál

Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn
Þrátt fyrir að ferðamönnum hafi fjölgað um fjórðung síðustu tólf mánuði hefur orðið samdráttur í fjölda gistinótta og meðaleyðslu ferðamanna að sögn framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Þetta geti haft margvísleg neikvæð áhrif á þjóðarbúið. Mikilvægt sé að Íslandsstofa hefji aftur markaðssetningu á landinu.

Að vera eða vera ekki í samkeppni við sjálfa sig
Ein réttlæting ríkisstjórnarmeirihlutans á Alþingi fyrir því að keyra í gegn breytingar á búvörulögunum, sem veita kjötafurðastöðvum víðtækar undanþágur frá samkeppnislögum, er að tollfrjáls innflutningur á kjöti hafi aukizt umtalsvert.

Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum
Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2024, hækkar um 0,80 prósent frá fyrri mánuði. Verðbólga er 6,8 prósent og hækkar um 0,1 prósentustig milli mánaða. Hagfræðingur kennir húsnæðisliðnum um.

Fundar með Bankasýslunni í dag
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra segir næsta skref hjá sér, vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum, vera að funda með Bankasýslu ríkisins. Boðað hefur verið til fundar um málið í dag.

Bankasýslan þögul sem gröfin
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, hyggst ekki veita viðtal um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM. Óljóst er hvort Bankasýslan fallist á frásögn formanns bankaráðs af símtali, þar sem hann segist hafa upplýst stjórnarformann Bankasýslunnar um óskuldbindandi tilboð bankans í TM.

Verðbólga eykst á ný
Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2024, er 620,3 stig og hækkar um 0,80 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 504,4 stig og hækkar um 0,48 prósent frá febrúar 2024. Verðbólgan hjaðnaði örlítið í síðasta mánuði en hefur nú aukist umfram lækkunina.

Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali
Óljóst er hvort formaður bankaráðs Landsbankans hafi minnst á að óskuldbindandi kauptilboð hafi verið gert í TM tryggingar í símtali við stjórnarformann Bankasýslunnar í desember eða hvort tilefni símtalsins hafi verið að ræða tilboðið. Bankasýslan hefur ekki staðfest hvort tilboðið hafi verið rætt í símtalinu, sem formaður bankaráðs fullyrðir.

Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans
Tryggvi Pálsson, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, ætlar ekki að tjá sig um kaup Landsbankans á TM fyrr en í fyrsta lagi í vikunni fyrir aðalfund Landsbankans. Misræmi hefur verið í frásögn Bankasýslunnar og Landsbankans af því hvert innihald símtals milli Tryggva og formanns bankaráðs Landsbankans í desember var.

En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Hagstofunni, að skrásetja skyldi alla íbúa landsins
Eftir að Hagstofan breytti aðferðafræði sinni hefur komið í ljós að íbúafjöldi á Íslandi er nokkuð minni en áður var talið. Það hefur meðal annars áhrif á mælingar á hagvöxt á mann og erum við nokkuð ríkari á þennan mælikvarða en við héldum áður.

„Vinnubrögðin eru rusl og ykkur til skammar“
Andri Snær Magnason fer ófögrum orðum um Viðskiptaráð Íslands og segir starfsmenn þess „kosta 130 milljónir til að vinna gegn menningu.“ Hann segir jafnframt peningunum sem fyrirtæki borga til að reka Viðskiptaráð vera betur varið í að styrkja höfunda.

Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara
Væntingar um tugmilljarða loðnuvertíð eru fyrir bí. Loðnubrestur virðist staðreynd.

Fyrirtækjum sem gera upp í erlendri mynt fjölgað töluvert síðasta áratug
Árið 2022 gerðu 135 fyrirtæki með rekstrartekjur upp í erlendri mynt og nam velta þeirra 1.580.233 milljónum. Þetta kemur fram í svari menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Viðreisnar.

Uppgangur og þensla halda uppi verðbólgu og vöxtum
Gríðarlegur uppgangur í íslensku atvinnulífi með tilheyrandi miklum innflutningi á vinnuafli er einn aðaldrifkraftur verðbólgunnar. Seðlabankastjóri segir algert grundvallaratriði að hægja á eftirspurninni til ná niður verðbólgu og markmiðum nýgerðra kjarasamninga um lækkun vaxta.

Verðbólga enn of mikil til að lækka vexti að mati Seðlabanka
Björninn er ekki unninn í baráttunni við verðbólguna þótt samið hafi verið um hóflegar launahækkanir að mati Seðlabankans. Enn þurfi að draga úr þenslu og tryggja að launahækkunum verði ekki velt út í verðlagið.

„Greinilegt að peningastefnunefnd hefur ákveðið að skjóta langt fram hjá“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum valda sér miklum vonbrigðum. Stór hluti vinnumarkaðar hefur náð kjarasamningum, en þeir snerust að miklu leyti um að ná verðbólgu og vöxtum niður.

Bein útsending: Rökstyðja ákvörðun peningastefnunefndar
Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja ákvörðun sína að halda stýrivöxtum óbreyttum á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30.

Seðlabankinn heldur enn stýrivöxtum óbreyttum
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent.

Umfjöllun um eldsumbrot fælir ferðamenn frá
Miklar umræður hafa skapast á Facebook-síðunni Bakland ferðaþjónustunnar um áhrif villandi fréttaflutnings erlendra miðla um eldsumbrotin á Reykjanesskaga á ferðaþjónustu í landinu. Borið hefur á afbókunum ferðamanna og hægst hefur á nýbókunum eftir hörmungarnar í Grindavík.

Landsbankanum bar að upplýsa Bankasýsluna
Landsbankanum bar að upplýsa Bankasýsluna um fyrirætlanir sínar um kaup á TM tryggingum að mati fjármálaráðherra. Það samræmdist ekki stefnu stjórnvalda að bankinn haslaði sér völl í Tryggingarstarfsemi.

Ný vísitala íbúðaverðs hækkar
Ný vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,9 prósent á milli mánaða í febrúar og hefur hækkað um 5,7 prósent á síðustu tólf mánuðum. Með nýju vísitölunni má sjá verðþróun eftir landssvæðum og íbúðaflokkum, en gamla vísitalan sýndi einungis verðþróun á höfuðborgarsvæðinu.

Segja umbrotum við Grindavík geta lokið innan eins til tveggja mánaða
Hópur jarðvísindamanna við Háskóla Íslands, með prófessorana Þorvald Þórðarson og Ármann Höskuldsson í fararbroddi, segir kvikuinnflæði inn undir Svartsengi hafa helmingast frá því í seinni hluta desember. Þeir segja að haldi þessi þróun áfram með sama hraða gætu umbrotin á Sundhnúksgígaröðinni norðan Grindavíkur tekið enda innan eins til tveggja mánaða.

Sjálfstæðismenn segja ríkisstjórn og stéttarfélög ráðskast með sveitarfélögin
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins segja að ráðskast hafi verið með sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga í tengslum við nýgerða kjarasamninga. Formaður Sambands sveitarfélaga hafi ekki komið andstöðu þeirra við gjaldfrjálsar skólamáltíðir skýrt á framfæri við stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins.

Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði
Íslandsbanki spáir því að ársverðbólga verði um 6,5 prósent í mars og lækki örlítið á milli mánaða. Landsbankinn spáir því að ársverðbólga verði óbreytt 6,6 prósent í mars. Greinendur beggja banka eiga von á því að verðbólgan hjaðni rólega næstu mánuði og verði um 5,4-5,3 prósent um mitt ár. Bankarnir birtu báðir spár sínar í dag.

Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið
Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs.

Fékk greiddar um tíu milljónir í viðbótarlaun
Starfsmaður Landspítalans fékk tæpar tíu milljónir í viðbótarlaun árið 2022. Það er hæsta greiðslan sem greidd hefur verið á launategundinni „viðbótarlaun á grundvelli stofnanasamninga“ á Landspítalanum síðustu fjögur ár.

Gulleyjan okkar
Leiðréttingar á hagtölum síðustu vikur hafa sýnt okkur að staðan hér á landi er nokkuð betri en við héldum áður. Annars vegar er talið að íbúar á landinu séu um 14.000 færri en við héldum. Hins vegar hefur endurmat Hagstofunnar leitt í ljós að hagvöxtur síðustu missera var meiri en áður var talið.

Dýrtíðin skerði samkeppnishæfni áfangastaðarins Íslands
Stjórnvöld verða að taka alvarlega þær blikur sem á lofti eru í ferðaþjónustu. Þetta segir Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar sem varar við þeim efnahagslegu afleiðingum sem samdráttur í greininni hefði í för með sér fyrir þjóðarbúið.

Seðlabankastjóri grípur boltann frá verkalýðshreyfingunni
Seðlabankastjóri segir nýgerða kjarasamninga góð tíðindi og hugsunin í samningunum væri góð. Nú væri boltinn hjá Seðlabankanum en hann ákveður meginvexti sína í næstu viku.

Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar
Fjármálastöðugleikanefnd situr fyrir svörum um nýútgefna yfirlýsingu sína. Í yfirlýsingunni segir að fjármálakerfið standi traustum fótum.

Fjármálakerfið standi traustum fótum
Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi þeirra að fjármögnun gott. Verðbólga hefur minnkað og aðlögun hefur átt sér stað í heildareftirspurn. Raunvextir hafa hækkað og dregið hefur úr lánsfjáreftirspurn heimila og fyrirtækja.