
Bólusetningar

Útflutningsbann ESB á bóluefni á ekki við um Ísland: „Ekki boðlegt og brot á EES-samningnum“
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að hertar reglur Evrópusambandsins sem kynntar voru í dag og er ætlað að takmarka útflutning á bóluefni gegn covid-19 frá sambandinu eigi ekki við um Ísland. Hann segir ekki boðlegt að annað hafi mátt ráða af yfirlýsingu frá sambandinu, enda myndi það fela í sér skýrt brot á EES-samningnum.

Ljóst að einstaklingsbundnar sóttvarnir hafi brugðist
Sóttvarnalæknir segir ekkert annað hafa komið til greina en að grípa til hörðustu mögulegu aðgerða nú þegar fjórða bylgja faraldursins er yfirvofandi. Það hafi sýnt sig síðasta árið að minna íþyngjandi aðgerðir hafi ekki borið tilsettan árangur.

Ætla að bólusetja aftur með AstraZeneca
Byrjað verður að bólusetja aftur með bóluefni AstraZeneca á næstunni. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, tilkynnti þetta á blaðamananfundi þar sem hertar sóttvarnaaðgerðir voru kynntar í Hörpu í dag.

Óvíst hvort útflutningstakmarkanir hafi áhrif á Ísland
Utanríkisráðuneytið segist ekki hafa fengið neinar upplýsingar sem gefi tilefni til að ætla að fyrirhugaðar útflutningstakmarkanir Evrópusambandsins á bóluefni gegn kórónuveirunni hafi áhrif á afhendingu bóluefnis hingað.

ESB hyggst takmarka útflutning á bóluefni
Ríki utan Evrópusambandsins þurfa sérstakt leyfi til þess að fá að flytja inn bóluefni gegn kórónuveirunni þaðan samkvæmt hertum takmörkunum sem búist er við að verði kynntar í Brussel í dag. Takmarkanirnar eru taldar koma harðast niður á Bretlandi og Bandaríkjunum.

565 tilvik mögulegra aukaverkana tilkynnt Lyfjastofnun
Lyfjastofnun hafa borist 565 tilkynningar um mögulegar aukaverkanir í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19. Flestar þeirra, eða 529, eru flokkaðar „ekki alvarlegar“ en 36 „alvarlegar“.

Ný bylgja muni brotna á varnargarði bólusettra einstaklinga
„Eftir á að hyggja er eflaust margt sem við vildum óska að við hefðum vitað og margt sem við vildum óska að við hefðum gert öðruvísi, eftir á að hyggja, af því að við vorum að berjast við nýjan sjúkdóm undir allt öðruvísi kringumstæðum en nokkur fyrrverandi stjórnvöld gátu ímyndað sér.“

Heilbrigðisráðuneytið skoðar Sputnik V bóluefnið
Formaður Miðflokksins spurði forsætisráðherra hvernig hefði gengið að semja um bóluefni framhjá þeim samningum sem gerðir hefðu verið með Evrópusambandinu.

Er allt í rugli með sóttvarnirnar?
Nei, sannarlega ekki. En umræðan um bólusetningar, sóttkvíarreglur, breytingar á sóttvörnum gagnvart fólki utan Schengen og fyrirhugaða breytingu á sóttvarnarreglum frá og með 1. maí hefur grautast töluvert saman undanfarna viku.

Telja AstraZeneca hafa notað úrelt gögn við rannsókn vestanhafs
Bandarísk yfirvöld telja að niðurstöður úr umfangsmikilli rannsókn á kórónuveirubóluefni AstraZeneca í Bandaríkjunum hafi stuðst við „úrelt gögn“. Því hafi fyrirtækið mögulega gefið ófullkomna mynd af virkni bóluefnisins.

Norðurlöndin rannsaka betur bóluefni AstraZeneca
Norðurlöndin, þar á meðal Ísland, hafa ákveðið að rannsaka betur bóluefni AstraZeneca gegn Covid-19 áður en lengra er haldið með notkun bóluefnisins.

AstraZeneca kom vel út úr rannsókn í Bandaríkjunum
Bóluefni AstraZeneca reyndist veita góð vörn gegn Covid-19 í viðamikilli rannsókn í Bandaríkjunum. Fyrirtækið segir að sérfræðingar þess hafi ekki merkt aukna hættu á blóðtappa sem leiddi til þess að nokkur Evrópuríki stöðvuðu notkun efnisins tímabundið.

Skipið að koma frá Brasilíu: Meiri samfélagsdreifing mögulega í uppsiglingu segir Þórólfur
Skipið sem nú liggur við höfn á Reyðarfirði vegna Covid-19 veikinda skipverja var að koma frá Brasilíu. Tíu af nítján áhafnarmeðlimum hafa þegar greinst en Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir líkur á að allir skipverjar séu með kórónuveiruna.

Gefa seinni skammt af Pfizer-bóluefninu
Seinni bólusetning með bóluefni Pfizer gegn kórónuveirunni fer fram í Laugardalshöll í dag og á morgun fyrir þá sem fengu fyrri skammtinn fyrir 4. mars. Boð hafa þegar verið send fólki með smáskilaboðum.

Breskir sérfræðingar segja hefðbundið ferðasumar ólíklegt og óráðlegt
Einn ráðgjafa bresku ríkisstjórnarinnar segir afar ólíklegt að sólarlandaferðir séu í kortunum hjá Bretum í sumar, vegna hættunnar á því að fólk snúi heim með nýtt afbirgði SARS-CoV-2 í farteskinu.

Ung kona fékk blóðtappa eftir bólusetningu
Ung íslensk kona sem nýlega var bólusett með AstraZeneca hér á landi liggur á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið blóðtappa. Sóttvarnalæknir segir að hlé verði áfram á bólusetningum með efninu þótt Lyfjastofnun Evrópu hafi gefið grænt ljós á notkun þess á ný.

Forsætisráðherra segir ástæðulaust að hafa áhyggjur af litakóðunarkerfinu
Staðreyndin er sú að jafnvel þótt nýtt litakóðunarkerfi tæki gildi í dag er staðan í Evrópu þannig að allir þyrftu að sæta tvöfaldri skimun og sóttkví við komuna hingað til lands og framvísa neikvæðu PCR-prófi.

Hyggst láta bólusetja sig með AstraZeneca til að fullvissa Breta um öryggi
Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hyggst láta bólusetja sig með bóluefni AstraZeneca til að fullvissa Breta um að bóluefnið sé öruggt. Nokkurrar tortryggni hefur gætt í garð bóluefnisins eftir að tilkynningar bárust um alvarlegar aukaverkanir.

Sóttvarnalæknir ákveði næsti skref nú þegar EMA hefur veitt AstraZeneca blessun sína
Forstjóri Lyfjastofnunar segir að niðurstaða Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) á hugsanlegum aukaverkunum bóluefnis AstraZeneca við kórónuveirunni sýni að ávinningur af notkun þess sé meiri en hugsanleg áhætta sem fylgir því að fá Covid-19.

Lyfjastofnun Evrópu gefur AstraZeneca grænt ljós
Lyfjastofnun Evrópu (EMA) segir að bóluefni AstraZenica sé öruggt og skilvirkt. Að kostir þess skyggi á áhættu og að notkun þess feli ekki í sér aukna áhættu á blóðtöppum. Frekari rannsókna væri þó þörf.

Telja blóðtappa heiftarleg ónæmisviðbrögð við bóluefninu
Rannsakendur við Háskólasjúkrahúsið í Osló telja að bóluefni AstraZeneca hafi valdið blóðtappa í þremur heilbrigðisstarfsmönnum þar. Efnið hafi valdið sterku ónæmissvari í fólkinu sem hafi orskaða blóðtappa.

Von á niðurstöðu um eittleytið
Lyfjastofnun Evrópu fundar nú um bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni og mögulegt orsakasamhengi við blóðtappa. Niðurstöðu er að vænta um klukkan eitt.

WHO ráðleggur Evrópuríkjum að nota bóluefni AstraZeneca
Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) hvatti Evrópuríkja til þess að halda áfram að nota bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni þrátt fyrir nokkrar tilkynningar um blóðtappa. Bóluefnið bjargi mannslífum og ábati af því vegi mun þyngra en áhættan.

ESB íhugar að banna útflutning á bóluefni til Bretlands
Evrópusambandið hótaði því að banna útflutning á bóluefni gegn kórónuveirunni til Bretlands til að tryggja sem flesta skammta fyrir sína eigin þegna. Sambandið er ósátt við hversu fáir skammtar af bóluefni AstraZeneca sem samið var um hafa verið afhentir til þessa.

Átta þúsund viðbótarskammtar væntanlegir frá Pfizer
Ísland fær átta þúsund viðbótarskammta af bóluefni lyfjaframleiðandans Pfizer á öðrum ársfjórðungi frá því sem áður var gert ráð fyrir, samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu.

Hvetur stuðningsmenn til að bólusetja sig
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hvetur stuðningsmenn sína til þess að fá bólusetningu gegn kórónuveirunni.

Bóluefni AstraZeneca veitir einungis tíu prósenta vernd gegn suðurafríska afbrigðinu
Bóluefni AstraZeneca við Covid-19 veitir mjög takmarkaða vörn gegn vægum veikindum af völdum suðurafríska afbrigðis kórónuveirunnar, ef marka má rannsókn sem birt var í dag.

Moderna rannsakar áhrif bóluefnis síns á ung börn
Bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna hefur hafið rannsóknir á bóluefni við Covid-19 sínu á hálfs árs til ellefu ára börnum. Frá þessu greindi fyrirtækið í tilkynningu.

Landspítalinn þurfti að farga rúmlega hundrað skömmtum af bóluefni
Landspítalinn þurfti að farga rúmlega hundrað skömmtum af bóluefni AstraZeneca við kórónuveirunni, eftir að tekin var ákvörðun um að stöðva tímabundið bólusetningu með bóluefninu í síðustu viku. Búið var að blanda skammtana og bólusetning á starfsmönnum spítalans hafin þann daginn.

Töldu svigrúm til að hinkra með AstraZeneca-bóluefni í ljósi fárra smita
Fá ný innanlandssmit voru talin gefa íslenskum sóttvarnayfirvöldum svigrúm til að bíða með bólusetningar með bóluefni AstraZeneca þar til tilkynningar um fólk sem hefur fengið blóðtappa hafa verið rannsakaðar, að sögn forstjóra Lyfjastofnunar.