Eldgos og jarðhræringar
125 126 127 128 129 130 131 … 131 ›
Gosið við toppgíginn - ekki enn farið að vaxa í Markarfljóti Liðsmenn Landhelgisgæslunnar og vísindamenn um borð í vél Gæslunnar sem flugu yfir gosstöðvarnar í morgun hafa staðsett gosopið og að það sé rétt norð-vestan við Goðastein, eða Guðnastein, sem er sami steinninn. Innlent 14.4.2010 09:44
Myndir af gosstöðinni Hér má sjá myndir úr vefmyndavél sem staðsett er á Dufþaksbraut á Hvolsvelli. Nú er talið fullvíst að gos sé hafi í Eyjafjallajökli sem eigi upptök sín í miðbungu jökulsins. Innlent 14.4.2010 09:42
Vatnavextir við Gígjökul halda áfram Vatnshæð við Gígjökul fer áfram vaxandi og hefur hún nú hækkað án afláts um 125 sentimetra frá því gosið hófst að því er sérfræðingur Veðurstofunnar segir. Fyrir framan Gígjökul er lón sem hækkar stöðugt í og eru vatnavextir þegar hafnir í Markarfljóti. Innlent 14.4.2010 09:12
Gufustrókarnir í 12-14 þúsund fet „Ég er að fylgjast með gosinu í beinni," segir Jón Ársæll Þórðarson fjölmiðlamaður sem staddur er á Stóru Borg undir Eyjafjöllum. Innlent 14.4.2010 08:28
Blaðamönnum snúið við nærri Moshvoli Blaðamönnum var snúið við um kílómeter frá Moshvoli vegna umbrotanna í Eyjafjallajökli. Blaðamenn hafa fylgst grannt með umbrotunum en hætta fylgir gosi af þessu tagi. Fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis var á leiðinni inn í Þórsmörk í fylgd með lögreglunni. Lögreglumennirnir tóku hins vegar enga áhættu og sneru þeim við. Innlent 14.4.2010 08:18
Gríðarleg aukning á vatnsmagni Gríðarleg aukning á vatnsmagni hefur mælst við Gígjökul og má segja að þar sé komið flóð. Vatnsmagn hefur aukist um 20-30 sentimetra síðarn rétt fyrir sjö. Innlent 14.4.2010 07:39
Gos staðfest í Eyjafjallajökli - gufubólstrar sjást Tvær tilkynningar hafa borist um gufubólstra fyrir ofan Eyjafjallajökul frá flugvélum. Önnur vélin var 40 mílur í suðri og sá bólstra í hánorðri. Hin var 60 mílur fyrir norðaustan jökul og sá bólstra í suðvestur átt. Innlent 14.4.2010 07:13
Flugsamgöngur samkvæmt áætlun Að óbreyttu munu flugsamgöngur haldast samkvæmt áætlun þrátt fyrir að merki hafi sést um að gos sé hafið í Eyjafjallajökli. Þrátt fyrir að merkin hafi sést á mælum Veðurstofunnar hafa menn ekki séð gosið. Þá bendir heldur ekkert til að hlaup sé hafið í ám. Innlent 14.4.2010 06:05
Earth tremors under the Eyjafjallajökull glacier Since it now considered to be highly likely that there is a volcanic eruption under the south western side of the summit of Eyjafjallajökull glacier, the Department of Civil Protection and Emergency Management, has decided to evacuate all areas in the immediate vicinity of the glacier. Innlent 14.4.2010 05:54
Mikið mistur yfir Eyjafjallajökli Enn sést ekkert til gossins í Eyjafjallajökli. Skjálftahrina hófst í jöklinum um ellefuleytið í gærkvöld og um fjögurleytið í nótt bárust þær upplýsingar frá Veðurstofunni að mælar bentu til þess að gos væri hafið. Innlent 14.4.2010 05:45
Wiadomosci w jezyku polskim: Zarejestrowano aktywnosc wulkanu pod powierzchnia lodowca Eyjafjallajökull w poludniowej czesci Islandi. Instytucja odpowiedzialna za bezpieczenstwo ludnosci w konsultacji z geologami Glownej Stacji Meteorologicznej podjela decyzja o ewakuoawaniu ludnosci zamieszkalej na poludnie od lodowca. Innlent 14.4.2010 05:09
Um 100 manns í Hvolsskóla Um 100 manns eru komnir í fjöldahjálparstöðina í Hvolsskóla, að því er Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins telur. Innlent 14.4.2010 05:06
Fimmtíu manns komnir að Heimalandi Um fimmtíu manns eru nú staddir í fjöldahjálparmiðstöðinni að Heimalandi, miðja vegu á milli Hvolsvallar og Skóga. Fólkið er rólegt en þreytt að sögn en nokkur börn eru í hópnum, þar á meðal þriggja mánaða barn. Fjórtán útlendir ferðamenn eru einnig í hópnum. Innlent 14.4.2010 04:35
Undirbúa fjöldahálparstöð á Hvolsvelli Verið er að bera teppi og annan nauðsynjabúnað inn í Hvolsskóla á Hvolsvelli. Þar hefur verið opnuð fjöldahjálparstöð sem tekur á móti fólki úr Fljótshlíðinni. Fólk sem býr í Heimalandi er beðið um að vera kyrrt heimafyrir. Innlent 14.4.2010 04:25
Áttu mynd af nýja gosinu? Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis hvetur fólk sem tekur ljósmyndir eða myndskeið af eldgosinu í Eyjafjallajökli sem hófst í nótt eða af hlaupi af þess völdum til þess að senda þær til Fréttastofunnar. Innlent 14.4.2010 04:16
Um 700 manns þurfa að yfirgefa heimili sín Tekin hefur verið ákvörðun um rýmingu í Fljótshlíð og í Landeyjum þar sem eldgos virðist hafið í Eyjafjallajökli. Víðir Sigurðsson hjá Almannavörnum segir að verið sé að koma skilaboðum til fólks á svæðinu. Um 700 manns eru búsettir á svæðinu sem rýma skal en um sömu áætlun er að ræða og virkjuð var þegar gaus á Fimmvörðuhálsi. Innlent 14.4.2010 03:57
Eldgos virðist hafið í Eyjafjallajökli Mælingar benda til þess að eldgos sé hafið undir suðvesturhluta Eyjafjallajökuls. Að sögn Veðurstofunnar benda mælingar til þess að órói fari vaxandi og allar líkur á því að gos sé hafið. Innlent 14.4.2010 03:48
Hátt í 50 manns í Þórsmörk Um 45 manns eru staddir í Langadal og eru þeir allir sofandi, segir Broddi Hilmarsson hjá Ferðafélagi Íslands. Af þeim eru 30 manns frá Ferðafélaginu. Innlent 14.4.2010 03:31
Lokað á milli Hvolsvallar og Skóga Lögregla hefur lokað veginum frá Hvolsvelli að Skógum vegna jarðskjálftahrinunnar í Eyjafjallajökli. Ef gos hefst undir jökli má búast við hlaupi í Markarfljóti. Innlent 14.4.2010 03:07
Vara við brennisteinsmengun við gosstöðvarnar Lögreglan á Hvolsvelli vill vekja á því athygli að töluverða brennisteinsmengun leggur frá gosstöðvunum við Fimmvörðuháls, ennfremur er hætta á að eiturgas leggi frá nýrunnu hrauninu. Innlent 13.4.2010 19:09
Rýmingu að ljúka Rýmingu er að ljúka milli Hvolsvallar og Skóga. Svæðinu þar á milli er algerlega lokað. Innlent 14.4.2010 02:37
Aldrei auðveldara aðgengi að eldgosi Ásókn almennings í skoðunarferðir á slóðir eldgoss hefur aldrei verið meiri en að gosinu sem hófst á Fimmvörðuhálsi 20. mars síðastliðinn. Þetta skýrist einna helst af eðli gossins og betra aðgengi en áður hefur þekkst, að mati Ármanns Höskuldssonar eldfjallafræðings. Hann hefur fylgst með nokkrum eldgosum á Íslandi en man ekki eftir annarri eins umferð í Innlent 8.4.2010 22:27
Hætt að gjósa úr fyrstu sprungunni Fyrsti gígurinn sem myndaðist á Fimmvörðuhálsi er hættur að gjósa. Áfram gýs á fullum krafti úr sprungunni sem opnaðist í síðustu viku. Þessar breytingar sá hópur vísindamanna sem skoðaði eldstöðvarnar í dag. Innlent 7.4.2010 19:20
Um milljón manns frá 150 löndum hafa skoðað eldgosið í beinni Um milljón manns frá 150 löndum hafa skoðað eldgosið á Eyjafjallajökli á heimasíðu Mílu frá því fyrsta myndavélin var sett upp á Hvolsvelli í síðasta mánuði. Í kringum 62% heimsóknanna koma frá Íslandi en það þýðir jafnframt að um 38% heimsókna koma erlendis frá. „Trúlegast er um Íslandsmet í heimsóknum á heimasíðu að ræða og eru vinsældir síðunnar hreint ótrúlegar," segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Innlent 7.4.2010 16:14
Veðurstofan sagði að rólegra væri undir Eyjafjallajökli Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis fékk þær upplýsingar frá Veðurstofunni laust fyrir klukkan fimm á gosdaginn, þann 20. mars, að heldur rólegra væri undir Eyjafjallajökli en hefði þá verið undanfarna daga. Engu að síður væri unnið eftir áætlunum um óvissustig á svæðinu vegna mögulegs eldgoss. Innlent 30.3.2010 14:23
Veðurstofan varaði Almannavarnir við hálfum degi fyrir upphaf goss Veðurstofan tilkynnti Almannavörnum hálfum sólarhring fyrir upphaf eldgossins á Fimmvörðuhálsi um verulega grynnri skjálftavirkni í Eyjafjallajökli, sem benti til að kvikan væri á uppleið. Ekki var talin ástæða til sérstakra viðbragða enda var þá þegar búið að lýsa yfir óvissustigi. Innlent 30.3.2010 12:03
Ólíklegt að það gjósi víðar við Eyjafjallajökul Litlar líkur eru á því að eldgos verði annarsstaðar við Eyjafjallajökul, segir almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Þetta var niðurstaða fundar almannavarnanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu með almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og vísindamönnum í gær. Eyjafjallajökull verður áfram lokaður fyrir umferð. Innlent 30.3.2010 09:57
Enn finnst fólk í hrakningum á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitarmenn á Fimmvörðuhálsi fundu enn kalda og hrakta göngumenn á slóðum eldgossins seint í gærkvöldi eftir að myrkur var skollið á. Þeir leituðu af sér allan grun um fleiri, sem þannig væri ástatt um Innlent 30.3.2010 06:44
Gosið í beinni hjá Mílu Míla fór á dögunum og setti upp vefmyndavélar á Þórólfsfelli og á Fimmvörðuhálsi þannig hægt er að skoða gosið úr stofunni heima. Vefmyndavélarnar má finna hér. Innlent 27.3.2010 19:00
400 fóru fótgangandi að gosinu í morgun Lögreglan á Hvolsvelli telur að um 400 manns hafi lagt af stað upp Fimmvörðuhálsinn fótgangandi í morgun. Um er að ræða marga hópa ásamt leiðsögumönnum. Innlent 27.3.2010 14:03