Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020
64 65 66 67 68 69 70 … 70 ›
Kerry yfir í flestum spám Fjórar af fimm stóru sjónvarpsstöðunum í Bandaríkjunum spá John Kerry 74 eða 77 kjörmönnum miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir en George W. Bush 66 kjörmönnum. Ein stöð sker sig úr, það er CBS sjónvarpsstöðin sem spáir Bush 108 kjörmönnum en Kerry 77 kjörmönnum. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush með 44 kjörmanna forskot George W. Bush er spáð sigri í sex af fimmtán ríkjum þar sem kjörstaðir lokuðu klukkan tvö, John Kerry er spáð sigri í tveimur ríkjanna en í sjö þeirra er of snemmt að spá til um hvor þeirra fer með sigur af hólmi. Staðan nú er því sú að Bush virðist kominn með 156 kjörmenn en Kerry 112. Erlent 13.10.2005 14:54
Ræðst í Ohio Ætli John Kerry sér að verða forseti verður hann að vinna í Ohio, sagði Tim Russert, stjórnandi stjórnmálaþáttarins Meet the Press í kosningasjónvarpi NBC sjónvarpsstöðvarinnar. Hann benti á að baráttan réðist í níu ríkjum, fjórum sem George W. Bush vann síðast og fimm sem Al Gore vann. Til að vinna verði Kerry að ná einu þeirra af Bush. Erlent 13.10.2005 14:54
Getum beðið eina nótt enn "Þetta hefur verið löng nótt. En við höfum beðið fjögur ár eftir þessum sigri og getum beðið eina nótt enn," sagði John Edwards, varaforsetaefni demókrata, þegar hann lýsti því yfir að hann og John Kerry ætluðu sér að sjá til þess að hvert einasta atkvæði yrði talið. Það er því ljóst að demókratar ætla ekki að lýsa yfir ósigri. Erlent 13.10.2005 14:54
Kerry vann Pennsylvaníu John Kerry hefur tryggt sér sigur í Pennsylvaníu, einu þriggja stóru ríkjanna sem hann og George W. Bush lögðu mesta áherslu á að vinna. Þegar 59 prósent atkvæða hafa verið talin er er Kerry með 58 prósent atkvæða en Bush með 42 prósent. Erlent 13.10.2005 14:54
Nótt hinna röngu vísbendinga Nótt hinna röngu vísbendinga væri réttnefni á kosninganóttinni sem nú er að baki. Sjaldan eða aldrei hafa álitsgjafar og sérfræðingar oftúlkað og rangtúlkað þær vísbendingar sem þeir hafa haft til að vinna úr jafn mikið. Erlent 13.10.2005 14:54
Uppstokkun yfirvofandi í BNA George W. Bush fékk endurnýjað umboð hjá bandarísku þjóðinni til að gegna embætti forseta landsins. Þarlendur stjórnmálafræðingur telur að repúblikönum hafi gengið betur að fá fólk á kjörstað en demókrötum. Uppstokkun er í aðsigi í ríkisstjórn landsins. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush spáð sigri í Flórída George W. Bush sigrar í Flórída samkvæmt spá CBS og ABC og heldur þar með kjörmönnunum 27 sem hann fékk þar fyrir fjórum árum. CNN, Fox og NBC hafa hins vegar ekki enn spáð fyrir um sigurvegara í ríkinu sem Bush verður að halda til að ná endurkjöri. Erlent 13.10.2005 14:54
Kjörsókn aldrei meiri Kjörsókn í bandarískum forsetakosningum hefur aldrei verið meiri. Miklar raðir mynduðust við kjörstaði og þurftu sumir kjósendur að bíða í um níu klukkustundir. Talið er að allt að 120 milljónir kjósenda hafi nýtt sér kosningarétt sinn, sem er jafnmikið eða meira hlutfallslega en á metárinu 1960. Erlent 13.10.2005 14:54
271 öruggur og líklegur kjörmaður George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur tryggt sér 193 kjörmenn samkvæmt samantekt AP-fréttastofunnar og leiðir í ríkjum þar sem barist er um 78 kjörmenn. Samkvæmt þessu er hann með 271 öruggan og líklegan kjörmann og því á leið með að fá einum kjörmanni fleira en þarf til að tryggja sér sigur. Erlent 13.10.2005 14:54
Víða kosið fram yfir lokunartíma Í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna, þeirra á meðal Flórída, Ohio og Pennsylvaníu er fólk enn að kjósa þrátt fyrir að kjörstaðir hafi átt að loka fyrir 45 og 75 mínútum síðan. Ástæðan er sú að langar biðraðir eru við kjörstaði, reglur kveða á um að þeir sem komnir eru í röð fái að kjósa og því getur verið að kjörstaðir loki nokkrum klukkutímum of seint Erlent 13.10.2005 14:54
Vinnur Kerry á hæðinni? Líkur á að George Bush vinni forsetakosningarnar virðast vera frekar litlar miðað við þá hefð að þeir frambjóðendur sem eru hærri sigra yfirleitt í kosningunum. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush fær líklega gott start Búast má við því að George W. Bush verði ofan á í fyrstu útgönguspám sem birtar verða fljótlega eftir miðnætti en þá loka kjörstaðir í sex ríkjum Bandaríkjanna. Kannanir gefa til kynna að Bush hafi betur í fimm ríkjanna en John Kerry í því sjötta. Erlent 13.10.2005 14:54
Landslagið í Massachussetts Það er mikill munur á pólitíska landslaginu í Massachussetts annars vegar og nágrannafylkinu New Hampshire hins vegar. Í því fyrrnefnda myndu demókratar vinna þótt þeir biðu fram blindan bavíana en í New Hampshire hefur gjarnan verið mjótt á munum og þar hafa kjósendur meiri tilhneigingu til að kjósa repúblikana heldur en í nágrannafylkjunum. Erlent 13.10.2005 14:54
Spennandi fram á síðustu stundu Nýjustu skoðanakannanir gefa til kynna að mjög mjótt verði á mununum í kosningunum vestanhafs í nótt. Litlu munar á fylgi George W. Bush og John Kerry í fjórum af fimm könnunum sem voru gerðar í gær en í einni þeirra, frá George Washington háskóla er George W. Bush með fjögurra prósenta forskot á Kerry. Erlent 13.10.2005 14:54
Hefur farið vel fram að mestu Kjördagur hefur að mestu liðið tíðindalaust hjá ef undan er skilin óvenju mikil kjörsókn. Í aðdraganda kosninganna lýstu margir áhyggjum af því að mistök í framkvæmd og framganga eftirlitsmanna frambjóðendanna á kjörstöðum kynni að hafa áhrif en enn sem komið er hefur verið lítið um það. Erlent 13.10.2005 14:54
Kusu á miðnætti Fyrstu tölur í bandarísku forsetakosningunum lágu fyrir skömmu eftir miðnætti að staðartíma, skömmu eftir klukkan fimm í gærmorgun að íslenskum tíma. Þá voru tvö lítil samfélög í New Hampshire búin að kjósa og telja atkvæði, langt á undan öllum öðrum. Erlent 13.10.2005 14:54
Ómögulegt að spá um úrslit Einhverjar mest spennandi forsetakosningar í manna minnum fara fram í Bandaríkjunum í dag. Mikil óvissa ríkir og fréttaskýrendum hefur reynst ómögulegt að spá um útkomuna. Mikill hiti er í frambjóðendum og er talið að þeir Bush og Kerry muni rjúfa þá hefð að vera ekki með áróður á kjördag. Erlent 13.10.2005 14:54
Stefnir í metkjörsókn Það stefnir í metkjörsókn í forsetakosningunum í Bandaríkjunum og langar raðir eru við kjörstaði nú á kosningadaginn. Athygli manna beinist einkum að örlitlu broti kjósenda. Erlent 13.10.2005 14:54
Mikilvægustu kosningar sögunnar Mikilvægustu kosningar í bandarískri stjórnmálasögu eru hafnar. Búist er við að metfjöldi kjósenda nýti sér kosningarétt sinn í dag til að segja skoðun sína á því hver verður forseti Bandaríkjanna næstu fjögur ár. Ingólfur Bjarni Sigfússon skrifar frá Washington. Erlent 13.10.2005 14:54
Springsteen og Crowe hjá Kerry Við Boston bókasafnið er verið að undirbúa kosningavöku Kerry. Búist er við að hundruð þúsunda mæti til þess að sjá hann flytja ræðu og hlusta á Sheryl Crowe, Bruce Springsteen og fleiri tónlistarmenn sem ætla að halda stuðningsmönnunum heitum........... Erlent 13.10.2005 14:54
Frambjóðendur á ferð og flugi Ferðalög bandarísku forsetaframbjóðendanna náðu hámarki í gær þegar þeir voru á ferð og flugi frá morgni til kvölds á síðasta degi sínum í formlegri kosningabaráttu fyrir kosningarnar í dag. Erlent 13.10.2005 14:53
Þúsundir sjálfboðaliða við smölun Forsetaframbjóðendurnir í Bandaríkjunum og kosningastjórnar þeirra reyna nú allt hvað þeir geta til að sannfæra kjósendur um að mæta á kjörstað á morgun. Þúsundir sjálfboðaliða og starfsmanna kosningamiðstöðva fara nú mikinn í þeim ríkjum þar sem óvissan er ennþá mikil. Erlent 13.10.2005 14:53
Heimsendakosningar blasa við Heimsendakosningar blasa við í Bandaríkjunum að mati Johns Zogbys sérfræðings í skoðanakönnunum. Hann segir að Bandaríkjamenn hafi aldrei verið eins klofnir í afstöðu sinni og nú. Erlent 13.10.2005 14:54
Veltur á mætingu á kjörstað Hörð barátta og lítill fylgismunur einkennir síðustu daga kosningabaráttu þeirra Bush og Kerrys um hvor verði næsti forseti Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur segja að kosningarnar muni að öllum líkindum ráðast af því hvorum flokknum, demókrötum eða rebúblikönum, mun ganga betur að ná sínum kjósendum á kjörstað. Erlent 13.10.2005 14:53
Ungir kjósa Kerry Búist er við mun meiri þátttöku ungs fólks en áður í forsetakosningunum vestanhafs á morgun. Bandarískur sérfræðingur í kosningahegðun segir unga kjósendur líklegri til þess að kjósa Kerry en Bush. Erlent 13.10.2005 14:54
Skortur á starfsmönnum Þjálfaðir kosningastarfsmenn eru fjórðungi færri en þeir þurfi að vera til þess að bandarísku forsetakosningarnar gangi hratt og örugglega fyrir sig að sögn bandarískrar eftirlitsnefndar með framkvæmd kosninga. Um það bil 1,4 milljónir manna hafa verið þjálfaðar til starfsins en hálfa milljón vantar til viðbótar. Erlent 13.10.2005 14:53
Fylgið aldrei jafnara Fylgi Johns Kerrys og George Bush er jafnt í þeim ríkjum sem harðast er barist um samkvæmt nýrri skoðanakönnun sjónvarpsstöðvarinnar CNN, dagblaðsins<em> USA Today</em> og Gallup. Í þeim sex ríkjum sem talin eru skipta sköpum er afgerandi munur í tveim fylkjum: Wisconsin, þar sem Bush leiðir með átta prósentustigum, og Minnesota, þar sem Kerry leiðir með sama mun. Erlent 13.10.2005 14:53
Líka kosið í öldungadeildina Þó að athygli umheimsins beinist einkum að forsetakosningunum í Bandaríkjunum er kosið um fleira, til að mynda um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings. Ingólfur Bjarni, sem er í Washington, kannaði hvaða áhrif þær kosningar gætu haft. Erlent 13.10.2005 14:54
Aldrei meira lagt í baráttuna Einhverjar mest spennandi forsetakosningar í sögu Bandaríkjanna fara fram í dag. Hvort sem litið er til fjárútláta eða mannafla er ljóst að aldrei hefur verið lagt meira í kosningabaráttu en núna. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 14:53