Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Víkingur - ÍBV 1-0 | Varamaðurinn tryggði Víkingum þrjú stig Kristinn Páll Teitsson á Víkingsvelli skrifar 25. ágúst 2015 09:11 Finnur Ólafsson í leiknum í kvöld. Vísir/Andri Marinó
Andri Rúnar Bjarnason skoraði sigurmark Víkings í kvöld í 1-0 sigri á ÍBV í 17. umferð Pepsi-deild karla. Með sigrinum skaust Víkingur upp í 6. sæti Pepsi-deildarinnar og gekk langt með að tryggja sæti sitt í deild þeirra bestu á næsta ári.Andri Marinó Karlsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leiknum í kvöld og náði þessum myndum hér fyrir ofan. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið í fallbaráttunni með með sigri gat ÍBV jafnað Víking að stigum í töflunni. Að sama skapi gat Víkingur aðgreint sig frá fallbaráttunni með sigri fyrir erfiða leiki gegn FH og Breiðablik. Liðunum gekk illa að fóta sig frá fyrstu mínútur og komst fyrir vikið aldrei gott flæði í leikinn. Einkenndist leikurinn af misheppnuðum sendingum og miðjubaráttu sem gerði það að verkum að leikurinn varð ekki mikið fyrir augað. Heimamenn voru með betri tök á leiknum og fengu betri færi í fyrri hálfleik ef færi skal kalla en það besta féll í skaut Vladimir Tufegdzic þegar hann skallaði fyrirgjöf Rolfs Toft framhjá. Eyjamenn sátu aftarlega og sköpuðu sér fá færi en hefðu hugsanlega átt að fá vítaspyrnu á áttundu mínútu er rifið var í Avni Pepa í vítateig Víkings. Var fyrri hálfleikurinn afar tíðindarlaus en það dróg til tíðinda strax á sjöundu mínútu seinni hálfleiks. Renndi þá Rolf Toft boltanum inn á vítateig ÍBV þar sem Arnþór Ingi Kristinsson setti boltann yfir fyrir opnu marki af hálfs meters færi. Sannkallað dauðafæri og leit lengst af út fyrir að það myndi kosta Víking tvö stig. ÍBV reyndi að færa sig framar á völlinn eftir því sem leið á leikinn og náðu leikmenn liðsins að skapa sér nokkur færi á síðustu tíu mínútum leiksins. Var það því nokkuð óvænt þegar Víkingur skoraði sigurmark leiksins á þriðju mínútu uppbótartíma. Eftir góða spilamennsku upp vinstri kantinn fékk Davíð Örn Atlason boltann og renndi boltanum inn á varamanninn Andra Rúnar Bjarnason sem lagði boltann í netið af vítapunktinum. Glæsileg sókn og kom á besta tíma en Guðmundur Ársæll Guðmundsson, góður dómari leiksins, flautaði leikinn af aðeins örfáum sekúndum síðar. Gríðarlega mikilvægur sigur Víkings staðreynd sem með sigrinum gekk langt með að gulltryggja sæti sitt í Pepsi-deildinni á næsta ári. Hefur liðið fengið alls 12 stig af 18 mögulegum undir stjórn Milosar og er sjö stigum frá fallsæti þegar aðeins fimm umferðir eru eftir. Leikmenn ÍBV hljóta að sjá á eftir stiginu en þeir eru enn með eins stigs forskot á Leikni í fallsæti. Spilamennska liðsins í kvöld var slök, sérstaklega fram á við en varnarleikur liðsins hélt uppteknu striki og leit vel út í kvöld. Það verður sannkallaður fallbaráttuslagur í næstu umferð þegar ÍBV tekur á móti Keflavík á Hásteinsvelli en sama dag á Víkingur erfiðan leik fyrir höndum gegn FH í Kaplakrika. Milos: Hélt að þetta yrði enn eitt jafnteflið„Maður var orðinn þreyttur á öllum þessum jafnteflum og ég hélt að þetta yrði enn einn jafnteflisleikurinn,“ sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkings, létt eftir að hafa séð leikmenn sína skora sigurmarkið á 93. mínútu. „Við gerðum það sem við höfum verið að reyna að æfa síðustu daga á æfingarsvæðinu og náðum að klára leikinn á því. Upp úr því fáum við þrjú kærkomin stig á heimavelli.“ Með sigrinum eru leikmenn Víkings nánast búnir að tryggja sæti sitt í Pepsi-deildinni að ári en hefði leikurinn tapast hefði liðið sogast niður í fallbaráttuna. „Allir sigrar eru stórir og maður veit aldrei í þessu. Við reynum bara að einbeita okkur að okkar leik og næsti leikur liðsins er gríðarlega mikilvægur leikur gegn FH. Þeir unnu síðasta leik okkar 1-0 og það verður gaman að sjá hvar við erum staddir gegn þeim í næstu umferð.“ Milos tók undir að spilamennska liðanna í kvöld hefði ekki verið til fyrirmyndar en liðunum gekk illa að skapa sér færi. „Mér fannst spilamennska liðsins vera allt í lagi í fyrri hálfleik. Við vorum að spila vel upp völlinn en svo var alltaf eitthvað sem fór úrskeiðis á lokaþriðjungi vallarins. Í seinni hálfleik var þetta meira kaflaskipt, þeir voru meira með boltann heldur en í fyrri en fengu engin færi.“ Milos sagðist vera hrifinn af ÍBV liðinu. „Þeir eru með flott lið með góðum einstaklingum. Spænski framherjinn þeirra er einn af bestu leikmönnum deildarinnar í sinni stöðu og svo er Gunnar Heiðar alltaf hættulegur.“ Ásmundur: Ekkert sérstakur leikur„Það er alltaf grátlegt að vera í tapliðinu þegar sigurmarkið kemur svona seint í leiknum,“ sagði Ásmundur Arnarson, þjálfari ÍBV, svekktur eftir leikinn. „Við áttum ekki góðan dag í dag, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við vorum undir á öllum sviðum fótboltans að mínu mati og heppnir að fara inn í hálfleik í stöðunni 0-0.“ Ásmundur gerði breytingar á liðinu um miðbik seinni hálfleiksins sem skilaði sér í auknum sóknarþunga af hálfu ÍBV. „Liðinu tókst að vinna sig vel inn í leikinn og að mínu mati stjórnuðum við leiknum síðustu tuttugur mínúturnar. Við fengum færi til að skora sem gerir það ennþá súrara að fá þetta í andlitið í lokin.“ Ásmundur var ekki hrifinn af spilamennskuni í dag en lítið flæði var í leik liðanna. „Það var margt í okkar leik sem var stirt í dag, sérstaklega framan af. Ég er sammála því að það hafi verið lítið flæði í spilamennskunni og hreint út sagt var þetta ekkert sérstakur leikur.“vísir/andri marinó
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Túlkurinn stal meira en tveimur milljörðum króna Sport Maguire hetja United í bikarnum Enski boltinn LeBron James tók met af Jordan með stórleik sínum Körfubolti Danska sambandið græddi meira en átta hundruð milljónir Fótbolti „Eins og menn hafi bara slökkt á fokking heilanum“ Körfubolti Anníe Mist verður ekki með í The Open af siðferðislegum ástæðum Sport Andri Lucas skoraði í kvöld Fótbolti HK-ingar byrja vel eftir HM-frí en Haukarnir byrja illa Handbolti ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Íslenski boltinn „Félagið setur mig í skítastöðu“ Enski boltinn Fleiri fréttir ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Ísfold Marý til liðs við Víking Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Róbert Orri semur við Víkinga Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Guy Smit frá KR til Vestra Ekki hrifinn af tvöfaldri sekt frá KSÍ: „Af hverju að gera það?“ Íslandsmeistararnir unnu Þungavigtarbikarinn Vigdís Lilja seld til Anderlecht KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val Páll sækist ekki eftir endurkjöri hjá KR Norðurálsmótið fagnar fjörutíu ára afmæli í ár Sjá meira