Umfjöllun og viðtöl: Snæfell 87 - 70 Haukar | Snæfellssigur í toppslagnum Daníel Rúnarsson í Stykkishólmi skrifar 19. janúar 2016 19:30 Haiden Denise Palmer . Vísir/Anton
Snæfell fór með sigur af hólmi í uppgjöri toppliða Dominos-deildar kvenna í körfubolta í kvöld með 87 stigum gegn 70 stigum Hauka. Snæfell fer með sigrinum á topp Dominos-deildarinnar og situr í bílstjórasætinu á leiðinni að deildarmeistaratitlinum. Leikurinn byrjaði eins og búist var við, jafnt á flestum tölum og liðin skiptust á að skora. Mikill hraði var í upphafi leiks og ljóst að hið margumtalaða spennustig leikmanna var verulega hátt enda mikið í húfi. Þegar líða fór á fyrsta leikhluta var þó ljóst að Snæfellskonur voru tilbúnar í stríð á meðan hugur Hauka virtist enn vera á þjóðveginum. Varnarleikur heimakvenna til mikillar fyrirmyndar og barist um hvern einasta lausa bolta. Á meðan stóðu Haukar ráðþrota hjá og virtust eiga þann eina kost í stöðunni að senda boltann á Helenu Sverrisdóttir og bíða svo og horfa á hvað hún gæti töfrað fram. En körfubolti er liðsíþrótt og jafnvel drottning íslensks körfubolta getur ekki gert hlutina uppá eigin spýtur gegn jafn sterku liði og býr í Stykkishólmi. Undir traustri stjórn Haiden Palmer gekk sóknarleikur Snæfellinga eins og smurð vél. Hún teygði á vörn Hauka að vild og fann síðan annað hvort opið skot fyrir sjálfa sig eða meðspilara. Staðan að loknum fyrsta leikhluta 29-11, ótrúlegar tölur í uppgjöri toppliðanna. Ballið hélt áfram í öðrum leikhluta, Haukum gekk afar illa að skora þökk sé fantavörn heimaliðsins en þó hertu gestirnir aðeins á takinu í vörninni miðað við fyrsta leikhluta. Það hægði því aðeins á stigaskorun Snæfellinga en þær héldu þó áfram að valda Haukakonum vandræðum með fastri vörn. Það voru niðurlútar Haukakonur sem röltu til búningsherbergja að loknum fyrri hálfleik með stöðuna 50-30 á bakinu. Haiden Palmer gat þó valhoppað af gleði enda með 22 stig, 10 fráköst, 2 stoðsendingar og 3 stolna bolta. Í hálfleik, nota bene. Haukakonur hafa fengið að heyra það frá þjálfurum sínum í hálfleik og mættu bálreiðar til leiks í seinni hálfleik. Liðið skipti yfir í svæðisvörn sem virtist rugla sóknarleik Snæfells til að byrja með. Haukakonur jöfnuðu baráttu Snæfellinga og úr varð afar harður leikur þó lítið væri um stigaskor. Þegar leið á leikhlutann fóru skotin þó að detta hjá báðum liðum en Haukakonum tókst að saxa niður forskot Snæfells niður í 14 stig. Snöggt áhlaup heimakvenna undir stjórn Haiden Palmer skilaði heimakonum þó 18 stiga forystu fyrir lokaleikhlutann. Lokaleikhlutinn einkenndist af baráttu og vörn. Haukakonur gerðu nokkrar tilraunir til áhlaups á forystu Snæfellinga en var ýmist neitað um aðgang eða svarað um hæl. Helena Sverrisdóttir og Chelsie Scwheerz lögðu vel í púkki fyrir gestina en það dugði þó ekki til og Snæfell hafði að lokum 14 stiga sigur, 84-70, þökk sé flautuþrist frá Bryndísi Guðmundsdóttur. Leikurinn var frábær á að horfa og í háum gæðaflokki. Mikil barátta frábærra leikmanna er uppskrift að góðri skemmtun og ljóst að endi þessi tvö lið í lokaúrslitum Dominos-deildarinnar eiga áhorfendur gott eitt í vændum. Haiden Palmer var allt í öllu í leik Snæfells en fékk þó góða aðstoð frá liðsfélögum sínum. Má þar helst nefna þær systur Berglindi og Gunnhildi Gunnarsdætur sem börðust eins og ljónynjur frá fyrstu mínútu. Hjá Haukum var Helena Sverrisdóttir atkvæðamest en Chelsie Scwheerz átti einnig fínan leik. Snæfell-Haukar 84-70 (29-11, 21-19, 17-19, 17-21) http://kki.is/widgets_game.asp?season_id=91005&game_id=3086921 Snæfell: Haiden Denise Palmer 30/14 fráköst/5 stolnir, Berglind Gunnarsdóttir 15/8 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 14/4 fráköst/9 stoðsendingar, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 10/6 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 9, María Björnsdóttir 4/4 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 2, Andrea Björt Ólafsdóttir 0, Rebekka Rán Karlsdóttir 0, Anna Soffía Lárusdóttir 0, Sara Diljá Sigurðardóttir 0, Erna Hákonardóttir 0. Haukar: Helena Sverrisdóttir 26/13 fráköst, Chelsie Alexa Schweers 17, Pálína María Gunnlaugsdóttir 9, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 7/14 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 6, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 4, María Lind Sigurðardóttir 1, Dýrfinna Arnardóttir 0, Hanna Þráinsdóttir 0, Þóra Kristín Jónsdóttir 0, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Rósa Björk Pétursdóttir 0, Shanna Dacanay 0. Viðtöl væntanleg innan skamms.Textalýsing: Snæfell - HaukarIngi þjálfari Snæfells: Vinnusemin var meiri í okkar liði Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells var stoltur af sínu liði í leikslok sem leiddi leikinn nánast frá upphafi. "Okkur leið vel strax í byrjun. Vörnin var til fyrirmyndar og vinnusemin var meiri í okkar liði en þeirra. Ég var gríðarlega ánægður með alla sem koma að okkar liði í kvöld." sagði þjálfarinn síkáti. Haukar búa yfir afar sterku liði og fengu nýverið enn meiri liðsstyrk í formi Chelsie Schweerz, var Ingi ekkert hræddur um að við ofjarl væri að etja? "Nei, það er bara einn bolti inni á vellinum og þeim fjölgar ekkert þó það komi fleiri leikmenn. Við vissum alveg hvað við þurftum að gera og gerðum það vel. En það sást líka í veikleika okkar í þessum leik og við þurfum að fara á æfingar og vinna í þeim." Með sigrinum fara Snæfellingar á topp Dominos-deildarinnar, er deildarmeistaratitillinn í höfn? "Nei nei, við fórum því miður til Keflavíkur um daginn og héldum að við fengjum tvö stig án þess að spila leikinn og við steinlágum þar. Þar er einn af okkar veikleikum, kollurinn á okkur. En þetta er samt í okkar höndum og þannig viljum við hafa það." sagði Ingi að lokum.Andri þjálfari Hauka: Mættum kvíðablendin til leiks Andri þjálfari Hauka var þungur í brún að leik loknum. "Ég er mjög ósáttur að mæta hingað með lið sem er ekki fullt af leikgleði og orku í upphafi leiks. Við þurfum að fara yfir það af hverju við mætum í raun kvíðablendin hérna í upphafi." Haukar fengu mikinn liðsstyrk nýlega, óttast Andri ekki að það muni rugla leik liðsins? "Við vorum með kana í fyrsta skipti í byrjunarliðinu. Hlutverkaskipan var orðin nokkuð skýr hjá okkur en svo förum við núna í breytingar og við vissum að það tæki smá tíma fyrir það að jafnast út. Nú reynir á þolinmæðina hjá stelpunum að halda áfram að æfa og vinna vel." "Þetta snýst ekki um einstaklinga, það þurfa allir að fórna einhverju. Þessar stelpur eru sem betur fer þannig af guði gerðar að þær hafa talsverðan þroska og átta sig á því að ef þú ætlar að vera í liði þá þarftu að gefa ákveðið mikið eftir." sagði Andri að lokum.Tweets by @Visirkarfa1
Dominos-deild kvenna Mest lesið Slot vildi stöðva leik: Liverpool gerir ekki svona Enski boltinn Yfirlýsing Vals: „Þykir leitt að leikmaðurinn sé ósáttur“ Íslenski boltinn Bílstjóri grýttur til dauða eftir körfuboltaleik Körfubolti „Fannst slakt að fá skilaboðin í gegnum messenger“ Fótbolti Halldór út og Ólafur Ingi inn hjá Breiðabliki Íslenski boltinn Sjáðu ótrúlegt mark Hallgríms frá miðju Íslenski boltinn Segja að Halldór verði látinn fara og Ólafur Ingi taki við Íslenski boltinn Sjáðu frábært mark Hákonar sem öskraði samt líka „fokk“ Fótbolti Sendi stjórn FH lítt dulda hótun: „Það er bara ein trappa eftir“ Íslenski boltinn Dagur Kári sá fyrsti sem kemst í úrslit á HM Sport Fleiri fréttir Bílstjóri grýttur til dauða eftir körfuboltaleik Nýr Ármenningur „með allan pakkann“ og pabba sem vann NBA Skagamenn bæta fyrrum landsliðsmanni Serbíu í hópinn Kevin Durant semur við Rockets til tveggja ára Vallarþulurinn í Keflavík lét Ægi Þór heyra það Teitur segir að Keflavík eigi að stefna á titilinn Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 92-71 | Meistararnir teknir til slátrunar Leik lokið: ÍR-Tindastóll 67-113 | Stólarnir í stuði í Skógarselinu Vill að hún fái að þjálfa í NBA Hraðinn hjá Stjörnunni hentar Orra vel „Við þurfum að hafa mjög góðar gætur á bakvörðunum“ Rúnar Ingi: Glaður að ég þurfti ekki að vera í opnunarleiknum á nýja húsinu Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 70-79 | Grindvíkingar með fullt hús Uppgjörið: Valur-Ármann 94-83 | Valsmenn í vandræðum með nýliðana Uppgjörið: ÍA - Njarðvík 119-130 | Svakaleg spenna á Skaganum Uppgjörið: KR - Þór Þ. 95-75 | Fullkomin byrjun KR heldur áfram Mætti ryðgaður til leiks eftir aðgerðina Frákastadrottningin fyrirsæta hjá Victoria's Secret Uppgjörið: Njarðvík-Tindastóll 92-70 | Njarðvíkurkonur bruna áfram Westbrook verður einn af kóngunum í NBA í vetur Grátlegt tap hjá Elvari og félögum eftir framlengingu Martin fann liðsfélagana mun betur en körfuna Byrjar af fítonskrafti: Með þrjátíu stig að meðaltali í leik Segir að Wembanyama sé enn hærri en talið er Vekur athygli fyrir opinskáa umræðu um veikindi sín Spenna í Hveragerði og Ármann stríddi Keflavík Fullkomin byrjun Stólanna í Evrópu Uppgjörið:Haukar - Grindavík 68-85 | Grindavík skellti meisturunum og eru áfram ósigraðar Annar sigur KR kom í Garðabæ Kostuleg langstökkskeppni Nablans og Tomma Steindórs: „Á ég að spretta?“ Sjá meira