Fréttir
109 110 111 112 113 114 115 116 117 … 334 ›
Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Vinna við að kæla hraunið við varnargarðinn kringum Svartsengi og Bláa lónið hefur gengið mjög vel. Kælingin hefur staðið yfir frá því í gærkvöldi og mun halda áfram á meðan verið er að hækka varnargarðinn. Innlent 24.11.2024 10:30
Minni virkni í miðgígnum Dregið hefur úr virkni í miðgígnum í Sundhnúkagígsröðinni. Það er sagt hafa gerst um klukkan fimm í morgun en þá dró úr gosóróa og samhliða því minnkaði sjáanleg virkni í gígnum, sem hefur verið hvað virkast af þremur hingað til. Innlent 24.11.2024 10:18
Vextir og kosningar í Sprengisandi Sprengisandur er á sínum stað klukkan 10 þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti. Innlent 24.11.2024 09:30
Vargöldin á Haítí versnar hratt Þegar lögregluþjónar frá Kenía mættu til Haítí fyrr á þessu ári voru íbúar ríkisins nokkuð vongóðir um að nú gæti dregið úr gífurlega umfangsmiklu ofbeldi glæpagengja þar. Þær vonir hafa ekki raungerst enn og búa íbúar Haítí enn og aftur við mikla óvissu. Erlent 24.11.2024 08:47
Réttindalausir stútar á ferðinni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um bílslys þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Sá var handtekinn en í öðru tilfelli var ökumaður stöðvaður þar sem lögregluþjónum þótti hann aka ógætilega. Hann reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum og fundust meint fíkniefni á honum. Innlent 24.11.2024 07:37
Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Eldgosið í Sundhnúkagígsröðinni sýnir þess engin merki að hafa minnkað. Samkvæmt Veðurstofunni hafa engar sýnilegar breytingar orðið á hraunflæði eða krafti í nótt. Innlent 24.11.2024 07:19
Ók á ljósastaur við Grensásveg Ökumaður ók bifreið á ljósastaur við Grensásveg á ellefta tímanum í dag. Sjúkrabíll var sendur á svæðið en engin meiriháttar slys urðu á fólki. Innlent 23.11.2024 23:46
Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út þegar eldur kviknaði í bifreið á Vesturlandsvegi við Brúarfljót í Mosfellsbæ á níunda tímanum í kvöld. Innlent 23.11.2024 23:28
Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Samkomulag hefur náðst á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um að skilgreind þróuð ríki muni greiða allt að 300 milljarða dollara á ári til þróunarríkja til að aðstoða þau í baráttunni við loftslagsvána. Erlent 23.11.2024 23:12
Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Steinunn Þórðardóttir formaður læknafélags Íslands segir að fundur félagsins með samninganefnd ríkisins í dag hafi gengið vel og hún horfir bjartsýn á morgundaginn. Náist samningar á morgun verður ekkert af boðuðu verkfalli lækna sem annars myndi hefjast á miðnætti annað kvöld. Innlent 23.11.2024 22:36
Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Viðreisn er orðin stærsti flokkurinn í nýrri kosningaspá Metils, en afar mjótt er á munum milli Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar, sem skipa annað og þriðja sætið. Gangi spáin eftir næðu Sósíalistar, Vinstri grænir, Píratar og Lýðræðisflokkurinn ekki á þing. Innlent 23.11.2024 22:02
Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segist ekki treysta Sjálfstæðisflokknum til að fjárfesta í menntakerfinu. Hann segir flokkinn hafa barist gegn fjárveitingum til málaflokksins og lagt til niðurskurð á hverju ári. Innlent 23.11.2024 20:51
Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Skrúðgarðyrkjumeistari á Flúðum er ekki að spara málninguna eða glimmerið á birkigreinar, sem skreyttar eru fyrir jólin. Birkifræið af greinunum er allt gefið til Landgræðslunnar til sáningar, eða að andvirði tuttugu og sex milljóna króna síðustu tólf árin frá skrúðgarðyrkjumeistaranum. Innlent 23.11.2024 20:06
Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hraun ógnar nú innviðum af ýmsu tagi í Svartsengi, þar sem unnið er hörðum höndum að því að hækka varnargarða og bjarga mikilvægum rafmagnsmöstrum. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir brýnt að Bláa lónið verði opnað um leið og það er öruggt. Hann óttast ekki að sláandi myndir frá síðustu dögum hafi fælingarmátt. Innlent 23.11.2024 19:52
Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið HS Orka biður viðskiptavini sína á Suðurnesjum um að vera undir það búin að eldgosið við Grindavík gæti haft áhrif á afhendingu á heitu vatni. Íbúar eru hvattir til að fara sparlega með heita vatnið og halda varma inn í húsum með því að hafa glugga lokaða. Innlent 23.11.2024 18:25
Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Hraun ógnar nú innviðum af ýmsu tagi í Svartsengi, þar sem unnið er hörðum höndum að því að hækka varnargarða og bjarga mikilvægum rafmagnsmöstrum. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir brýnt að Bláa lónið verði opnað um leið og það er öruggt. Hann óttast ekki að sláandi myndir frá síðustu dögum hafi fælingarmátt. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 23.11.2024 18:15
Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir Ísland virða sjálfstæði og ákvarðanir Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag sama hver eigi í hlut. Dómstóllinn gaf í fyrradag út handtökuskipanir á hendur Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, og þremur leiðtogum Hamas, sem allir eru taldir látnir. Innlent 23.11.2024 18:10
Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Fjölmiðlabanni hefur verið komið á í kjaradeilu Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þetta staðfestir Ástráður Haraldssson ríkissáttasemjari í samtali við Vísi en hann lagði bannið til. Deiluaðilar hafa setið á samningafundi í Karphúsinu frá því í hádeginu. Innlent 23.11.2024 17:03
Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hnýtir í Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins í færslu á Facebook og segir það ekkert nema eðlilegt að þingmenn taki „snúning“ og greiði atkvæði eftir eigin sannfæringu gagnvart málum frá ríkisstjórninni. Hún segir staðhæfingar formannsins miklar ýkjur. Innlent 23.11.2024 16:44
Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Enn gýs á þremur stöðum í eldgosinu við Sundhnúksgíga og er virknin enn nokkuð stöðug. Jafnframt mælist gosórói stöðugur en engir jarðskjálftar hafa mælst á svæðinu. Staðan er viðkvæm hvað varðar möguleg áhrif á innviði í og við Svartsengi vegna hraunflæðis. Innlent 23.11.2024 15:39
Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira Mikil eftirspurn er eftir íbúðum á Suðurlandi og er verð á nýjum íbúðum í Ölfusi, Hveragerði og Árborg að nálgast sama verð og á nýjum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Í Árborg er nú tvö þúsund og fimm hundruð íbúðir í byggingu eða í deiliskipulagsferli og aðrar tvö þúsund íbúðir eru á teikniborðinu. Innlent 23.11.2024 15:03
KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ Forsvarsmenn Kennarasambands Íslands segja að það sé „rannsóknarefni“ að formaður samninganefndar sveitarfélaga hafi hugmyndaflug til að tjá sig eins og hún hafi gert í dag. Er vísað til ummæla Ingu Rúnar Ólafsdóttur um að það að KÍ hafi tilkynnt að félagið væri reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum gerði lítið úr verkfallsrétti félagsmanna. Innlent 23.11.2024 14:42
Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna Cop 29, sem fer nú fram í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, er í uppnámi og á hættu að verða frestað eða aflýst eftir að fulltrúar frá smáum eyjaþjóðum strunsuðu út af lykilfundi ráðstefnunnar. Erlent 23.11.2024 14:22
„Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir tilkynningu um opnun lónsins næsta föstudag alls ekki endanlega. Staðan sé endurmetin á hverjum degi. Mikil vinna fer fram á Svartsengis-svæðinu við að vernda innviði. Innlent 23.11.2024 13:35
Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Umhverfis- og loftlagsmálin verða rædd á pallborðsfundi í dag þar sem fulltrúar allra flokka munu mæta. Þar munu frambjóðendur ræða stefnumál sín og flokka þeirra og munu Ungir umhverfissinnar mæta með einkunnagjöf Sólarinnar og fjalla um styrkleika, veikleika og stöðu flokkanna í umhverfismálum. Innlent 23.11.2024 13:25
Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, hefur tilnefnt Russell Vought, einn aðalhöfunda hins umdeilda Project 2025, til að leiða fjárlagaskrifstofu forsetaembættisins. Vought gegndi embættinu um tíma í fyrri stjórnartíð Trumps og mun koma til með að forgangsraða fjárveitingum og koma kosningaloforðum Trumps um umfangsmikið afnám reglugerða til framkvæmda. Erlent 23.11.2024 12:21
Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir Kennarasambandið gera lítið úr verkfallsrétti félagsmanna með nýjasta útspili sínu. Kennarasambandið tilkynnti í gær að það væri reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum. Innlent 23.11.2024 12:19
Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Stjórnmálafræðingur segir allt stefna í sögulegar alþingiskosningar. Fjórir flokkar séu í fallbaráttu og margt bendi til þess að Sjálfstæðisflokkurinn gjaldi afhroð á kjördag. Innlent 23.11.2024 12:17
„Dapurlegt“ útspil kennara og opnun Bláa lónsins Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir Kennarasambandið gera lítið úr verkfallsrétti félagsmanna með nýjasta útspili sínu. Kennarasambandið tilkynnti í gær að það væri reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni á slaginu 12. Innlent 23.11.2024 11:52
Sigmundur fjarverandi allar atkvæðagreiðslur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, var ekki viðstaddur eina atkvæðagreiðslu á nýliðnu þingi sem var sett í september og slitið á mánudaginn. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var aðeins viðstödd eina atkvæðagreiðslu þar sem hún greiddi atkvæði með beiðni um skýrslu í tengslum við aðgerðir fyrir Grindvíkinga. Innlent 23.11.2024 11:44