Fréttir
149 150 151 152 153 154 155 156 157 … 334 ›
Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Efnt hefur verið til mótmæla víða í Venesúela vegna endurkjörs Nicolás Maduro í embætti forseta. Maduro hlaut 51 prósent atkvæða, þvert á það sem útgönguspár gerðu ráð fyrir og hefur stjórnarandstaðan þar í landi sagt kosningarnar meingallaðar. Erlent 29.7.2024 21:42
„Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Formaður VR hyggst boða til mótmælaaðgerða með haustinu, og krefjast þess að boðað verði til kosninga. Hann segir stjórnmálin, bankakerfið og fyrirtækin hafa brugðist fólkinu í landinu. Ekki sé hægt að sitja aðgerðarlaus fram að endurskoðun kjarasamninga Innlent 29.7.2024 21:01
Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Hún vekur mikla athygli gamla uppgerða rútan frá Króki í Ölfusi, Bens 1960 árgerð, sem fer nú um vegina eins og ný, rauð og hvít á litinn með bílnúmerið X – 44. Innlent 29.7.2024 20:04
Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaða göngukonu á Helgafell í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í kvöld. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir óvanalegt þyrlusveitin sé kölluð í svo stutt flug. Innlent 29.7.2024 19:56
Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Framkvæmdastjóri hjá Brimborg segir gríðarlegan fjölda fyrirspurna hafa borist um bílinn sem forsetahjónin keyptu af umboðinu og afsláttinn sem þau fengu af verði hans. Fólk óski nú eftir forsetaafslætti. Fyrrum forseti nemendafélags hafi fengið slíkan afslátt. Innlent 29.7.2024 19:00
Tvö börn stungin til bana í Southport Tvö börn létu lífið í fólskulegri stunguárás í bænum Southport í Norður-Englandi í dag. Níu börn til viðbótar særðust í árásinni, þar af sex alvarlega. Erlent 29.7.2024 18:38
Mælir gegn notkun á teflonvörum Sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði mælir gegn notkun á pönnum og öðrum eldhúsáhöldum sem innihalda teflon, og mælir með keramík- eða stáláhöldum í staðinn. Rannsóknir hafa sýnt fram á skaðleg langtímaáhrif teflons, þar með talið auknar líkur á krabbameini og hjarta- og æðasjúkdómum. Innlent 29.7.2024 18:16
Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup Formaður VR hyggst boða til mótmælaaðgerða með haustinu og krefjast þess að boðað verði til kosninga. Hann segir stjórnmálin, bankakerfið og fyrirtækin hafa brugðist fólkinu í landinu. Verðhækkanir séu til marks um taumlausa græðgi og ekki sé hægt að sitja aðgerðarlaus fram að endurskoðun kjarasamninga. Innlent 29.7.2024 18:11
Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Maður sem er grunaður um stunguárás í bænum Southport á Norðvestur-Englandi í dag er sautján ára gamall karlmaður. Hann er sagður vera íbúi þorpsins Banks, sem er skammt frá Southport. Hann var handtekinn skömmu eftir árásina Erlent 29.7.2024 16:46
„Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi með meiru rekur Islandus Bíla og hann segir mottó sitt og sinna manna vera það að vera ávallt með ódýrustu bílana. Hann býður ódýrari Volvó, ódýrari en sem nemur því sem Halla Tómasdóttir þurfti að borga fyrir sinn, afslátt sem nemur tveimur milljónum. Innlent 29.7.2024 16:00
Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur lagt til við dómsmálaráðherra að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari verði leystur tímabundið frá störfum vegna kæru á hendur honum fyrir ummæli um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum. Helgi er afar ósáttur við viðbrögð yfirmanns síns og spyr hvort hún sé embætti sínu vaxin. Innlent 29.7.2024 15:59
Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni vestur á firði að sækja mann sem slasaðist í mótorjólaslysi á Örlygshafnarvegi við Breiðuvík. Innlent 29.7.2024 15:38
Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Réttarhöldum í máli Daníels Gunnarssonar hefur verið frestað um nokkra daga vegna þess dómsátt milli hans og ákæruvaldsins er í undirbúningi. Á síðasta ári var hann dæmdur fyrir morð og limlestingu á líki, en málið sem nú er fyrir dómstólum varðar brot gegn barni. Erlent 29.7.2024 15:00
Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Í dag fer fram hin árlega Ólafsvaka í Færeyjum sem er þjóðhátíðardagur, eða -dagar, þessarar frændþjóðar okkar. Það vekur athygli á hverju ári hve duglegir Færeyingar ungir sem aldnir eru við að skarta þjóðbúningum sínum sem er fallegur og ekki ólíkur þeim íslenska. Innlent 29.7.2024 14:56
Mohamad vill flytja af landi brott Mál Mohamad Thors Jóhannessonar – áður Kourani – hafa vakið gríðarlega athygli á Íslandi. Hann var dæmdur í átta ára fangelsi í héraði en hefur áfrýjað þeim úrskurði. Stöðugur fréttaflutningur hefur verið af uppátækjum hans, hótunum og afbrotum. Innlent 29.7.2024 14:01
Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Að minnsta kosti átta manns voru stungnir þegar karlmaður gekk berserksgang í bænum Southport á Norðvestur-Englandi í dag. Fórnarlömbin eru sögð börn en árásarmaðurinn er í haldi lögreglu sem lagði einnig hald á hníf. Erlent 29.7.2024 13:45
Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Mælingar Veðurstofunnar benda til þess að Mýrdalsjökull sé tekinn að jafna sig eftir hlaup. Enn er mikið vatn í ám þar sem ferðafólk hefur lent í vandræðum, þrátt fyrir að dregið hafi úr úrkomu. Innlent 29.7.2024 12:19
Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Tilvonandi forsetahjón fengu um fimmhundruð og fimmtíu þúsund króna afslátt af bílakaupum hjá Brimborg. Halla Tómasdóttir gaf sér helgina til að gefa upp afsláttinn og birti á samfélagsmiðlum. Forstjóri Brimborgar segir kjörin í samræmi við reglur fyrirtækisins en afsláttarkjörin séu fjórþætt. Innlent 29.7.2024 12:17
Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Það stefnir í einn besta dag sumarsins í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Enn önnur lægðin er við landið og veldur rigningu og hlýjum blæstri um næstu helgi. Innlent 29.7.2024 12:13
Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Ökumaður rútu sem valt við Fagranes í Öxnadal þann fjórtánda júní síðastliðinn er sakborningur í rannsókn lögreglu á slysinu. Á meðal þess sem lögreglan er með til skoðunar er hvort reka megi slysið til gáleysis af hálfu bílstjórans sem mun hafa notast við hraðamæli á GPS-búnað í síma til að fylgjast með hraða rútunnar. Innlent 29.7.2024 11:57
Bílakaup verðandi forseta Tilvonandi forsetahjón fengu um fimmhundruð og fimmtíu þúsund króna afslátt af bílakaupum hjá Brimborg. Halla Tómasdóttir gaf sér helgina til að gefa upp afsláttinn og birti á samfélagsmiðlum. Forstjóri Brimborgar segir kjörinn í samræmi við reglur fyrirtækisins. Innlent 29.7.2024 11:57
Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Starfsmenn Vegagerðarinnar vinna nú hörðum höndum að viðgerð hringvegarins austan Skálmár, sem varð fyrir skemmdum vegna jökulhlaups í Mýrdalsjökli um helgina. Vegurinn eru verulega laskaður. Innlent 29.7.2024 11:47
Engin merki um hlaupóróa lengur Dregið hefur úr virkni í Mýrdalsjökli og hafa engin merki um hlaupóróa mælst síðasta sólarhringinn. Enn er þó sögð innistæða fyrir venjubundnum hlaupum sem verða úr jöklinum á sumrin. Innlent 29.7.2024 11:27
Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Fornleifastofnun Íslands hefur í sumar staðið að rannsókn á sundlaugarbyggingum á landsbyggðinni sem reistar voru á fyrri hluta tuttugustu aldar. Verkefnið er unnið í samvinnu við Hjörleif Stefánsson arkítekt og hófst árið 2020 með heimildakönnun og kortlagningu á laugum um land allt. Innlent 29.7.2024 11:23
Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Æviskipanir hæstaréttardómara heyra sögunni til og dómarar þurfa að starfa eftir siðareglum nái tillögur Joe Biden Bandaríkjaforseta fram að ganga. Fráfarandi forsetinn vill einnig breyta stjórnarskrá til þess að bregðast við nýlegum dómi um friðhelgi forseta. Erlent 29.7.2024 10:52
Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Karlmaður sem er sagður af íslenskum uppruna var handtekinn í borginni Mazatlán í Mexíkó fyrir helgi, en hann er grunaður um valda skemmdarverkum. Erlent 29.7.2024 10:34
Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Nokkur fjöldi ökumanna lenti í erfiðleikum í vaðinu í Hólmsá á Fjallabaksleið syðri síðdegis í gær og gærkvöldi, áður en þjóðvegur 1 var opnaður. Björgunarsveitamenn komu ferðamönnunum til aðstoðar en skilja þurfti þrjá bíla eftir. Innlent 29.7.2024 09:45
Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Miklir gróðureldar geisa í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum og ná þeir nú yfir tuttugu ferkílómetra svæði. Á fjórða þúsund viðbragðsaðila glímir við eldana en upptök þeirra eru rakin til brennandi bíls sem var velt út í gil í síðustu viku. Erlent 29.7.2024 08:20
Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Halla Tómasdóttir verðandi forseti Íslands og eiginmaður hennar fengu 549.127 króna afslátt af Volvo-bifreið sem þau keyptu hjá Brimborg á dögunum. Afsláttinn fengu þau vegna staðgreiðslu og „endurtekinna kaupa“. Innlent 29.7.2024 08:04
Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Nicolás Maduro hefur verið lýstur sigurvegari forsetakosninganna í Venesúela en stjórnarandstaðan segir þær hafa verið meingallaðar og boðað hefur verið til mótmæla. Erlent 29.7.2024 07:45