Innlent

Þrjár af­lýsingar hjá Icelandair

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Samtals níu flugferðum Icelandair hefur veri aflýst í gær og í dag vegna mönnunarvanda. 
Samtals níu flugferðum Icelandair hefur veri aflýst í gær og í dag vegna mönnunarvanda.  Vísir/Anton Brink

Þremur flugferðum Icelandair var aflýst í nótt og í morgun. Vélarnar áttu að koma til landsins frá Mílanó, Boston og New York.

Leiða má líkur að því að flugunum hafi verið aflýst vegna mönnunarvanda en sex flugferðum var aflýst í gær vegna manneklu. 

Enn bólar ekkert á boði til nýs fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara. Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, segir að gera megi ráð fyrir fundi innan „tíðar“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×