Fréttir

Skipu­leggur eigin jarðar­för

„Mig langar bara að minna fólk á að finna það fallega í litlu hlutunum,“ segir Dagný Ósk Vestmann aðspurð hvað henni sé ofarlega í huga á átakanlegum tímamótum. Hún er þrjátíu og átta ára gömul tveggja barna móðir og stendur frammi fyrir því að eiga einungis nokkrar vikur ólifaðar. Í stað þess að skipuleggja næsta barna- eða brúðkaupsafmæli er hún að skipuleggja og safna fyrir eigin kistulagningu og útför.

Innlent

Hvessir all­veru­lega á morgun

Veðurfræðingar á Veðurstofu Íslands vekja athygli á því að snemma á morgun gangi í austan hvassviðri syðst á landinu sem geti verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Veður

Eldur í bíl í Heið­mörk

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út eftir miðnætti í nótt vegna eldsvoða í bíl í Heiðmörk nærri Rauðhólum.

Innlent

Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt að hann muni stofna „gervigreindarsveit“ og skipa „gervigreindarkeisara“ í náinni framtíð. Hann segir gervigreindina vera næstu iðnbyltingu og þvertekur fyrir það að ríkisstjórn sín muni hindra eða hefta vöxt hennar. Þau muni fylgjast grannt með þeim sem kunni að nýta tæknina í óæskilegum tilgangi og refsa þeim.

Erlent

Sér­stakt veiði­leyfi gefið út eftir að há­karl banaði sundmanni á sjö­tugs­aldri

Maðurinn sem lést í hákarlaárás undan ströndum Ástralíu í vikunni hefur verið nafngreindur og nú hefur leyfi fyrir því að veiða og drepa hvítháfinn sem banaði honum verið gefið út. Enn er leitað að líki mannsins en málið hefur vakið mikla athygli enda umdeilt að gefa út svokallaða „catch-and-kill“ skipun þar sem hvítháfurinn er friðuð tegund.

Erlent

Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun

Atvinnuvegaráðuneytið staðfesti í ágúst ákvörðun MAST um að leggja 288 þúsund króna stjórnvaldssekt á nautgriparæktanda vegna ítrekaðra alvarlegra frávika. Sektin var lögð á hann í desember í fyrra en hann kærði ákvörðunina til atvinnuvegaráðuneytisins sem hefur nú staðfest hana með tilliti til þess að bæði hafi jafnræðis og meðalhófs verið gætt við ákvörðun MAST.

Innlent

Utan­ríkis­ráð­herra Úkraínu lýsir yfir gríðar­legu þakk­læti

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með utanríkisráðherra Úkraínu í dag en sá síðarnefndi segist hafa lýst þakklæti á fundi sem hann átti með utanríkismálanefnd Alþingis. Þar hafi verið lögð áhersla á að styrkja samstarf ríkjanna. Einnig hafi verið rætt um þá alvarlegu stöðu sem skapast hefur á Svartahafi þar sem Rússar koma í veg fyrir kornútflutning Úkraínu með árásum á hafnir og flutningaskip.

Erlent

Fluttur á lög­reglu­stöð til að sanna hver hann væri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti í dag útkalli þar sem ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Sá reyndist einnig vera með hníf á sér og án ökuréttinda. Þegar farþegi í bílnum neitaði að framvísa skilríkjum var hann fluttur á lögreglustöð eitt til þess að sanna hver hann væri.

Innlent

Ís­lands­ferð með meintri hjá­konu dró dilk á eftir sér

Tveir erlendir ríkisborgarar, karl og kona, hafa verið dæmdir í fimm og þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti. Við skýrslutökur breyttist framburður þeirra beggja iðulega en maðurinn sagði konuna hjákonu sína á meðan konan sagði þau ætla að gifta sig.

Innlent

Á­tök innan SÁÁ eins og „klassísk valda­bar­átta“

Fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ líkir átökum innan samtakanna við „klassíska valdabaráttu“ og sakar fráfarandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga hafa ætlað að sölsa undir sig völd. Hann óttast samt að brotthvarf reynslumikils framkvæmdastjóra muni draga úr gæðum heilbrigðisþjónustu SÁÁ og vonast til að fundin verði leið fyrir hana aftur til starfa, þó með skýrari verkaskiptingu. „En tvo þarf til.“

Innlent

Ný um­gjörð um dag­gæslu til skoðunar í ráðu­neytinu

Nýr meirihluti í Reykjavík hefur sniðið nýja umgjörð um nýtt daggæslustig fyrir 12 til 30 mánaða börn í Reykjavík. Sigrún Ásta Einarsdóttir, formaður daggæslu- og leikskólaráðs í borginni, segir breytingarnar háðar reglugerðarbreytingum. Samkvæmt upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu er málið komið í formlegt ferli þar og er til skoðunar.

Innlent

Vissi að við­ræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“

Utanríkisráðherra Íslands fagnar því að Danir, Grænlendingar og Bandaríkin hafi komist að samkomulagi í Grænlandsdeilunni. Þrátt fyrir „skrítin kort“ hafi hún verið upplýst um að viðræðum á milli ríkjanna miðaði fram. Hún telur að samstaða Íslands og annarra líktþenkjandi ríkja með Grænlendingum og Dönum hafi skipt sköpum í málinu.

Erlent

Danir sigur­vegarar og ofurfólk í Heið­mörk

Bandaríkin og Danmörk hafa komist að samkomulagi um framtíð varnarmála á Grænlandi. Blaðamaður telur dönsk stjórnvöld hafa náð sínum markmiðum og alþjóðastjórnmálafræðingur segir Grænlendinga rólega yfir tíðindunum.

Innlent

Glæpahópurinn 764: Á­tján ára í tíu ára fangelsi fyrir til­raunir til manndráps og nauðgun á netinu

Átján ára piltur hefur verið dæmdur til tíu ára fangelsis í dómstóli í Umeå í Svíþjóð fyrir tvær tilraunir til manndráps gegn ungmenni í Þýskalandi og fjölmörg kynferðis- og ofbeldisbrot gegn ástralskri stúlku. Brotin áttu sér stað á netinu og pilturinn hefur verið kallaður „Chai“ í sænskum miðlum og var hluti af glæpahópnum 764.

Erlent

Bjart framan af en skúrir síð­degis

Í dag er spáð norðlægri átt, 3-8 m/s, og rigningu eða súld með köflum, einkum á norðaustanverðu landinu. Bjart með köflum sunnan- og suðvestanlands framan af degi, en skúrir síðdegis. Hiti 7 til 13 stig.

Veður

Eftir­lýstur og með vopn á sér

Eftirlýstur einstaklingur var handtekinn og vistaður í fangaklefa Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að lögregla hafði af honum afskipti og fann á honum vopn.

Innlent

„Þetta er örugg­lega dauða­stríð sem tekur langan tíma“

Starfsmaður Vegagerðarinnar á Patreksfirði segir andarnefjuna sem liggi á Skeiðsnesi í Kjálkafirði ekki vera þá fyrstu sinnar tegundar sem reki á land á Vestfjörðum í sumar. Hann telji hvalreka hafa verið tíðari á svæðinu í sumar en áður sem sé miður enda langur og hræðilegur dauðdagi. Dýrið sem hefur verið fjallað um hafi líklega rekið á land og drepist fyrr en áður hefur komið fram.

Innlent

Banda­ríkin hafi samið við Dan­mörku um Græn­land

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann segir Danmörku og Bandaríkin hafa gert samning um Grænland. Með honum hafi Danir veitt Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum á Grænlandi til frambúðar. Þegar í stað verði hafist handa við að koma á fót töluverðri viðveru Bandaríkjahers á Grænlandi.

Erlent

„Það var bara blanka­logn hjá þeim og þeir voru með ó­virka vél“

Þrír voru um borð í skútu sem dregin var til hafnar á Siglufirði af björgunarskipinu Sigurvini á sjöunda tímanum í dag. Fyrstu samskipti viðbragðsaðila við skipverja fóru fram í morgun þegar þeir síðarnefndu höfðu samband og óskuðu eftir aðstoð vegna þess að skútan væri vélarvana og það væri ekki nægur byr í seglin og því kæmust þeir hvorki lönd né strönd. Svo bætti í vindinn um stund og var þá hætt við að sækja skútuna en á þriðja tímanum reyndist það svo nauðsynlegt á ný.

Innlent

Trump rekur CNN og fleiri fjöl­miðla úr Hvíta húsinu

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tekið ákvörðun um að fjölmiðlunum CNN, Politico og MSNOW verði tafalaust bannaður aðgangur að Hvíta húsinu. Hann sakar blaðamenn miðlanna um að hafa ítrekað birt falsfréttir er varða ríkisstjórn hans, hann sjálfan sem og Bandaríkin. Með þessu bætast blaðamenn miðlanna í sístækkandi hóp þeirra sem mega ekki stíga fæti inn á blaðamannafundi forsetans.

Erlent

Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna bílveltu á Barðastrandarvegi á fimmta tímanum í dag en einn var fluttur á Borgarspítalann til aðhlynningar. Alls voru sjö í bílnum sem valt tvisvar eða þrisvar sinnum og fór betur en á horfðist en allt tiltækt lið lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita á svæðinu var kallað á vettvang.

Innlent