Erlent

Banda­ríkin hafi samið við Dan­mörku um Græn­land

Freyja Þórisdóttir skrifar
Donald Trump hreykir sér af því í færslunni að hafa þorað því og tekist það sem síðustu Bandaríkjaforsetar höfðu ekki kjark til þess að gera: ná yfirráðum á öryggismálum á Grænlandi.
Donald Trump hreykir sér af því í færslunni að hafa þorað því og tekist það sem síðustu Bandaríkjaforsetar höfðu ekki kjark til þess að gera: ná yfirráðum á öryggismálum á Grænlandi. Samsett/AP/Truth Social

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið frá sér tilkynningu þar sem hann segir Danmörku og Bandaríkin hafa gert samning um Grænland. Með honum hafi Danir veitt Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum á Grænlandi til frambúðar. Þegar í stað verði hafist handa við að koma á fót töluverðri viðveru Bandaríkjahers á Grænlandi.

Í færslunni sem hann birti á miðlinum Truth Social segist hann hafa náð að vinna með ráðamönnum í Danmörku til að tryggja að Bandaríkin muni að eilífu hafa fulla getu til að gera það sem nauðsynlegt sé á Grænlandi til að tryggja öryggi Grænlands og Bandaríkjanna.

„Þar að auki getur enginn andstæðingur Bandaríkjanna héðan í frá nokkurn tíma haft herstöð á Grænlandi,“ skrifar hann einnig í færslunni. Samningurinn uppfylli að fullu öll þau áhyggjuefni sem Bandaríkjamenn hafi haft í tenglsum við málið.

„Við munum þegar í stað hefja ferlið við að koma á fót mikilli hernaðarviðveru á viðkomandi svæði á Grænlandi, þar sem mörg hentug svæði eru. Við munum vinna með íbúum Grænlands að þróun og uppbyggingu,“ skrifar hann.

Lausnin sé góð fyrir bæði Danmörku, Grænland, Bandaríkin og alla bandamenn landanna. Þau hlakki jafnframt til að vinna með „hinu dásamlega fólki í Danmörku og á Grænlandi“ og muni gæta landsvæðisins sem byggt og starfað verði á af mikilli alúð.

Þá hefur danska forsætisráðuneytið staðfest að útlit sé fyrir að samningur milli ríkjanna verði undirritaður í næstu viku, er fram kemur í fréttavakt Berlingske.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×