Erlent
116 117 118 119 120 121 122 123 124 … 334 ›
Þrjár milljónir í fundarlaun fyrir strokufangann Löggæsluyfirvöld í Bretlandi bjóða tuttugu þúsund pund, eða rúmar þrjár milljónir, fyrir upplýsingar sem leitt geta til handtöku manns sem strauk úr fangelsi í vikunni. Gríðarmikil leit hefur staðið yfir síðustu daga, mest í Lundúnum en raunar um gjörvallt land. Erlent 8.9.2023 21:47
Lögðu einnig til að ákæra Lindsay Graham og fleiri Meðlimir svokallaðs ákærudómstóls í Georgíu í Bandaríkjunum lögðu til að töluvert fleiri yrðu ákærðir með Donald Trump fyrir að reyna að breyta úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu. Trump og átján aðrir hafa verið ákærðir en einnig var lagt til að Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður, Kelly Loeffler og David Perdu, fyrrverandi öldungadeildarþingmenn, og Micheal Flynn, þjóðaröryggisráðgjafi Trumps, yrðu ákærð vegna málsins. Erlent 8.9.2023 16:49
Tíu látnir í flóðunum í Grikklandi og fleiri saknað Tala látinna í flóðunum í Grikklandi hækkar enn. Nú eru tíu taldir af og fjögurra til viðbótar er saknað. Björgunarlið flytur enn hundruð íbúa þorpa á hamfararsvæðinu burt með þyrlum og bátum. Erlent 8.9.2023 15:48
Sjósettu kafbát sem borið getur kjarnorkuvopn Kim Jong Un, einræðisherra Norður Kóreu opinberaði í vikunni nýjan kafbát sem á að geta borið kjarnorkuvopn. Kóreumenn hafa lengi unnið að þróun slíkra kafbáta. Erlent 8.9.2023 15:10
Barist um Wagner-veldið Eftir að rússneski auðjöfurinn og stríðsherrann Jevgení Prígósjín dó í Rússlandi í síðasta mánuði hafa mismunandi fylkingar í Rússlandi barist um yfirráð yfir viðskiptaveldi hans. Barátta þessi fer fram í þremur heimsálfum en verðmætasti hluti veldis Prígósjíns var í Afríku. Erlent 8.9.2023 12:45
Ár frá andláti Elísabetar og Karli vegnar bara nokkuð vel Ár er liðið frá því að Karl III tók við konungstigninni af móður sinni Elísabetu II Bretadrottningu, við fráfall hennar hinn 8. september 2022. Karl virðist hafa tekist nokkuð vel að feta í fótspor móður sinnar en nýtur engu að síður töluvert minni vinsælda. Erlent 8.9.2023 11:32
Tugir borgara féllu í árás hryðjuverkamanna í Malí Herforingjastjórn Malí segir að 49 borgarar og fimmtán hermenn hafi fallið í árásum hryðjuverkamanna í norðurhluta landsins í gær. Hryðjuverkamenn sem tengjast al-Qaeda eru sagðir hafa ráðist á ferju nærri Timbuktu og á varðstöð í Gao-héraði. Erlent 8.9.2023 10:57
Handtökur á Kúbu vegna mansals til Rússlands Yfirvöld á Kúbu segjast hafa handtekið sautján manns sem tengjast mansalshring sem er sakaður um að tæla unga Kúbverja til þess að berjast fyrir hönd Rússlands í Úkraínu. Þeir handteknu gætu átt yfir höfði sér þunga fangelsisdóma eða jafnvel dauðarefsingu. Erlent 8.9.2023 09:15
Ráðgjafi Trump dæmdur fyrir að óhlýðnast þinginu Fyrrverandi viðskiptaráðgjafi Donalds Trump frá því að hann var Bandaríkjaforseti var fundinn sekur um að óhlýðnast Bandaríkjaþingi fyrir að neita að verða við stefnu í tengslum við rannsókn á árás stuðningsmanna Trump á þinghúsið. Hann bar fyrir sig trúnað við Trump. Erlent 8.9.2023 08:38
Mesta rigning í Hong Kong í 140 ár Gríðarlegar rigningar í Hong Kong og í fleiri borgum í suðurhluta Kína hafa framkallað mikil flóð víða en rigningin er sú mesta sem riðið hefur yfir svæðið í manna minnum. Erlent 8.9.2023 08:13
Segir málamiðlun ómögulega og að lokamarkmiðið sé tortíming Úkraínu Oleksii Reznikov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, hefur hvatt til samstöðu gegn Rússlandi til að bjarga heimsbyggðinni frá þriðju heimsstyrjöldinni. Hann segir lokamarkmið Rússa að útrýma Úkraínu. Erlent 8.9.2023 07:55
Masterson dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun Danny Masterson, leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í That ´70 Show, hefur verið dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Masterson var sakfelldur í vor fyrir að nauðga tveimur konum á árum áður. Erlent 7.9.2023 19:10
Næsti forseti Mexíkós að öllum líkindum kona Allt útlit er fyrir að næsti forseti Mexíkós verði í fyrsta skipti kona eftir að tveir stærstu flokkar landsins tilnefndu konu sem frambjóðanda sinn. Misrétti og karlremba er þó enn almenn í mexíkósku samfélagi. Erlent 7.9.2023 15:50
Sanna Marin hverfur af þingi Sanna Marin, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands, hefur sagt af sér þingmennsku. Sanna, sem hefur setið á þingi fyrir Jafnaðarmannaflokkinn, hefur ráðið sig í starf hjá Stofnun Tony Blair. Erlent 7.9.2023 15:37
Slökkti á Starlink fyrir árás Úkraínumanna Elon Musk, auðugasti maður heims, skipaði starfsmönnum sínum að slökkva á netþjónustu Starlink undan ströndum Krímskaga í fyrra. Það gerði hann til að stöðva leyniárás Úkraínumanna á rússneska flotann, þar sem notast var við dróna sem stýrt var með nettengingu í gegnum Starlink. Erlent 7.9.2023 14:56
Fundu vel varðveitt rómversk sverð í helli Fornleifafræðinar í Ísrael tilkynntu í gær að fjögur 1.900 ára gömul rómversk sverð hefðu fundist í helli nærri Dauðahafinu. Sverðin þykja merkilega vel varðveitt eftir veruna í hellinum en auk þeirra fannst spjótsoddur, sem Rómverjar kölluðu pilum. Erlent 7.9.2023 11:21
Freista þess að tryggja að nafn Trump rati ekki á kjörseðla Sex kjósendur í Colorado í Bandaríkjunum hafa höfðað mál til að freista þess að koma í veg fyrir að nafn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og núverandi forsetaframbjóðanda, nái inn á atkvæðaseðilinn í ríkinu fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Erlent 7.9.2023 09:12
Boðar nýja ákæru á hendur syni Biden Sérstakur rannsakandi bandaríska dómsmálaráðuneytisins segist stefna að því að gefa út nýja ákæru á hendur Hunter Biden, syni Bandaríkjaforseta, fyrir lok þessa mánaðar. Biden hafði áður samþykkt að játa sig sekan um skatta- og skotvopnalagabrot en sáttinni var spillt í sumar. Erlent 7.9.2023 08:50
Gekkst undir fullt brjóstnám og greindist svo í annað sinn Ofurfyrirsætan Linda Evangelista hefur greint frá því að hafa tvívegis greinst með krabbamein og hafa gengist undir fullt brjóstnám. Hún segir horfurnar ágætar en ekki frábærar. Erlent 7.9.2023 07:36
Drónaárásir í Rússlandi og Úkraínumenn fá umdeild skotfæri Úkraínumenn eru sagðir hafa gert drónaárásir í nótt á rússnesku landsvæði. Erlent 7.9.2023 07:31
Þungunarrof afglæpavætt í Mexíkó Hæstiréttur Mexíkó fjarlægði í dag þungunarrof úr alríkishegningarlögum. Mikill fögnuður hefur orðið meðal Mexíkóbúa í kjölfarið. Erlent 7.9.2023 00:03
Dæmdur morðingi slapp úr fangelsi á ótrúlegan hátt Lögreglan í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hefur leitað logandi ljósi að Danelo Cavalcante, sem var nýverið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða fyrrverandi kærustu sína, en slapp úr fangelsi í lok ágúst. Yfirvöld birtu í dag myndskeið af ótrúlegri flóttaaðferð hans. Erlent 6.9.2023 22:07
Batt sig undir sendiferðabíl og strauk úr fangelsi Lögreglan í Bretlandi leitar nú 21 árs gamals fanga sem tókst að strjúka úr fangelsi í suðvesturhluta Lundúna í morgun. Mannsins er nú leitað um allt landið. Erlent 6.9.2023 21:40
Tveir til viðbótar látnir í flóðunum í Grikklandi Þrír eru látnir og fjögurra er enn saknað eftir að gríðarmikil flóð urðu víðsvegar um Grikkland vegna óveðursins Daniel sem nú ríður yfir landið. Erlent 6.9.2023 19:49
Sextán borgarar féllu í árás Rússa Að minnsta kosti sextán borgarar létu lífið og 31 særðist þegar eldflaug lenti á markaði í borginni Kostiantynivka í austurhluta Úkraínu í dag. Ráðamenn í Úkraínu segja Rússa hafa skotið eldflauginni en sprengingin náðist á myndband. Erlent 6.9.2023 15:13
Segir að Kim muni gjalda fyrir vopnasendingar Jake Sullivan, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, og ríkið allt muni gjalda fyrir mögulega vopnasendingar til Rússlands. Hann segir að sendi Kóreumenn vopn til Rússlands sem notuð yrði í Úkraínu, kæmi það niður á Norður-Kóreu á alþjóðasviðinu. Erlent 6.9.2023 14:27
Notkun klasasprengja nær nýjum hæðum Úkraína var í fyrra það ríki þar sem flestir dóu vegna notkunar klasasprengja. Það var í fyrsta sinn í rúman áratug sem Sýrland var ekki efst á þessum lista en talið er að rúmlega þrjú hundruð manns hafi dáið vegna klasasprengja í Úkraínu í fyrra og rúmlega sex hundruð hafi særst. Erlent 6.9.2023 12:13
Vísað á dyr fyrir að sitja ekki í sætum útötuðum gubbi Flugfélagið Air Canada hefur sent frá sér afsökunarbeiðni eftir að hafa ætlast til þess að farþegar myndu sitja í sætum sem voru útötuð í gubbi. Tveir farþegar, sem neituðu að sitja í umræddum sætum, var vísað úr vélinni. Erlent 6.9.2023 12:02
Flugmaður dó eftir brotlendingu í kynjaveislu Flugmaður lét lífið í Mexíkó á sunnudaginn þegar annar vængur flugvéla hans rifnaði af. Þá var flugmaðurinn að taka þátt í kynjaveislu og notaði hann flugvélina til að dreifa bleikum reyk yfir veislugesti, til marks um það að parið sem hélt veisluna var að eignast stúlkubarn. Erlent 6.9.2023 10:43
Hlýjasta sumarið á norðurhveli frá upphafi Sumarið á norðurhveli var það hlýjasta sem hefur nokkru sinni mælst. Ágúst var hlýjasti ágústmánuður á jörðinni frá upphafi mælinga og næsthlýjasti mánuðurinn á eftir júlí í sumar. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir heimsbyggðina standa frammi fyrir „loftslagshruni“. Erlent 6.9.2023 10:23