Erlent „
265 266 267 268 269 270 271 272 273 … 334 ›
„Eigingjörn nálgun getur haft skaðlegar afleiðingar síðar meir“ Tilfellum apabólu fjölgar nú hratt í Evrópu og er til skoðunar að lýsa yfir neyðarástandi. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við slæmum afleiðingum ef ríkari lönd sýna ekki samstarfsvilja til að bregðast við útbreiðslunni. Erlent 20.6.2022 07:01
Japanskur dómstóll slær á vonir samkynja para Dómstóll í Osaka í Japan hefur komist að þeirri niðurstöðu að bann gegn hjónaböndum samkynja para gangi ekki í berhögg við stjórnarskrá landsins. Japan er eina G7 ríkið sem heimilar ekki einstaklingum af sama kyni að ganga í hjónaband. Erlent 20.6.2022 06:57
Aflýsingar á Heathrow vegna heilu fjallanna af farangri Aflýsa þarf 90 flugferðum frá Heathrow-flugvelli á morgun, mánudaginn 20. júní, vegna ófremdarástands í farangursmeðhöndlun. Risastór farangursfjöll hafa myndast á vellinum vegna ástandsins, sem hefur staðið yfir síðan á föstudag. Erlent 19.6.2022 23:46
Meirihlutinn í Frakklandi kolfallinn Meirihluti Ensemble, flokks Emmanuels Macron, er kolfallinn samkvæmt fyrstu tölum úr seinni umferð frönsku þingkosninganna. Flokkurinn missir um þriðjung fylgis og er langt frá þeim 289 sætum sem þarf til að ná meirihluta. Hægriflokkur Le Pen vinnur sögulegan sigur og vinstribandalag Mélenchon uppsker ríkulega. Erlent 19.6.2022 18:15
Búi sig undir að stríðið í Úkraínu geti staðið yfir í nokkur ár Vesturlönd þurfa að búa sig undir langvarandi stríðsátök í Úkraínu og halda áfram að styðja við stjórnvöld þar til að aftra frekari árásumVladimírs Pútín Rússlandsforseta. Þetta segja leiðtogar Bretlands og NATO. Erlent 19.6.2022 15:20
Shakira sökuð um stórfelld skattsvik Fátt getur nú komið í veg fyrir að kólumbíska söngstjarnan Shakira verði ákærð fyrir milljarða skattsvik á Spáni. Söngkonan segist ekki ætla að semja um greiðslu sektar til að ljúka málinu, en verði hún fundin sek á hún nokkurra ára fangelsisvist yfir höfði sér. Erlent 19.6.2022 14:31
Líklegt að vinstrimenn felli meirihluta Macron Frakkar ganga að kjörborðinu í dag þegar seinni umferð frönsku þingkosninganna fer fram. Vinstrimenn eru í mikilli sókn og ógna þingmeirihluta Emmanuel Marcron Frakklandsforseta, sem virðist ætla að tapa talsverðu fylgi. Erlent 19.6.2022 11:32
Mikið í húfi fyrir Macron í þingkosningunum í dag Frakkar ganga að kjörborðinu í dag þegar seinni umferð frönsku þingkosninganna fer fram, viku eftir að sókn vinstri bandalags Jean-Luc Mélenchon ógnaði óvænt meirihluta Macron í neðri þingdeildinni. Erlent 19.6.2022 08:58
Drónar nýttir til að flytja lyf og sýni á Grænlandi Grænlensk heilbrigðisyfirvöld í samstarfi við danska sjúkraflutningafyrirtækið Falck hyggjast á næstu mánuðum prófa notkun dróna við að flytja lyf og greiningarsýni milli byggða á Grænlandi. Tilgangur verkefnisins er að kanna hvernig drónar geta styrkt heilbrigðiskerfið á stöðum þar sem innviðir eru áskorun og langt er í næsta sjúkrahús en landið er án vegakerfis. Erlent 19.6.2022 08:58
Uffe Ellemann-Jensen látinn Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur og formaður flokksins Venstre, er látinn. Hann átti lengi í baráttu við krabbamein og var áttræður þegar hann lést. Erlent 19.6.2022 08:21
Milljónir manna heimilislaus eftir gríðarleg flóð Milljónir manna eru heimilislaus og 18 látnir eftir gríðarmikil flóð í Bangladess og norðausturhluta Indlands. Herir beggja landa hafa verið kallaðir út til að hjálpa fólki sem er strandað vegna flóðanna. Búist er við því að rigningin haldi áfram út helgina. Erlent 18.6.2022 23:26
Biden datt af hjóli Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, datt af hjóli sínu í Delaware í dag. Ekki virðist forsetinn hafa hlotið nein meðsli af en nokkur hræðsla virðist hafa gripið um sig á staðnum enda forsetinn kominn á virðulegan aldur. Erlent 18.6.2022 16:11
Skógareldar loga um allan Spán Ekkert lát er á gríðarlegri hitabylgju á Spáni sem nú hefur staðið í meira en viku. Skógareldar loga um allt land og hefur þurft að rýma á annan tug bæja á Norður-Spáni. Erlent 18.6.2022 14:31
Hungursneyð í uppsiglingu vegna stríðsins Árásir Rússa í Úkraínu hafa gert það að verkum að hluti heimsins stendur frammi fyrir hungursneyð, að mati talsmanna í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Erlent 18.6.2022 12:45
Gefa grænt ljós á bólusetningar barna niður í sex mánaða aldur Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur ákveðið að leyfa Covid-19 bólusetningar barna frá sex mánaða aldri. Talið er að bólusetningar geti hafist strax í næstu viku en hingað til hafa fimm ára börn verið þau yngstu sem hafa mátt fá bóluefni. Erlent 17.6.2022 16:54
Tveir látnir eftir skotárás í pálínuboði eldri borgara Minnst tveir eru látnir og einn alvarlega særður eftir að karlmaður skaut fólk á færi í pálínuboði í úthverfakirkju í Alabama í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Maðurinn hefur verið handtekinn og færður til yfirheyrslu. Erlent 17.6.2022 14:34
Rússneskt herskip sigldi í tvígang inn í danska landhelgi Rússneskt herskip sigldi í tvígang inn í danska landhelgi í nótt og í morgun. Skipið var á siglingu í norðurhluta Eystrasaltsins nærri dönsku eyjunni Bornholm. Samkvæmt tilkynningu frá danska hernum var fjöldi danskra þingmanna og athafnafólks á eyjunni vegna lýðræðishátíðar sem fer þar fram um helgina. Erlent 17.6.2022 13:53
Framkvæmdastjórn ESB lýsir yfir stuðningi við aðild Úkraínu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lýst yfir stuðningi við að Úkraína fái formlega stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu. Ákvörðun stjórnarinnar er stórt skref í baráttu Úkraínu fyrir aðild að sambandinu. Erlent 17.6.2022 11:06
Innanríkisráðherra Bretlands gefur grænt ljós á framsal Assange Priti Patel innanríkisráðherra Bretlands hefur gefið grænt ljós á framsal Julians Assange, stofnanda Wikileaks, frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Erlent 17.6.2022 09:33
Ætla að beita sér fyrir inngöngu Úkraínu í ESB Fjórir evrópskir leiðtogar lofuðu stuðningi við Úkraínu þegar þeir funduðu með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta í Kænugarði í gær. Þeir hétu því að styðja umsókn Úkraínu um aðild að Evrópusambandinu og að senda fleiri hergögn til Úkraínu vegna innrásar Rússa þar í landi. Erlent 17.6.2022 08:58
Grunnbúðir Everest færðar vegna hverfandi jökuls Yfirvöld í Nepal hafa hafið undirbúning á tilfærslu grunnbúðanna við Everestfjall. Að sögn yfirvalda er það vegna þess að búðirnar eru orðnar hættulegar vegna áhrifa loftslagsbreytinga og ágangs manna á svæðinu. Erlent 17.6.2022 08:19
Vissu að það sem þeir báðu Pence um væri ólöglegt Donald Trump og ráðgjafar hans sem vildu að Mike Pence varaforseti neitaði að staðfesta úrslit forsetakosninganna vissu að ráðabrugg þeirra væri ólöglegt. Einn ráðgjafa Trump bað um að vera hafður með á sérstökum náðunarlista. Erlent 16.6.2022 23:20
Spacey laus gegn tryggingu Breskur dómstóll féllst á að Kevin Spacey fengi að vera laus gegn tryggingu þegar mál hans var tekið fyrir í dag. Bandaríski leikarinnar er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þremur karlmönnum í Bretlandi. Erlent 16.6.2022 21:39
Macchiarini sakfelldur fyrir eina plastbarkaígræðsluna Ítalski skurðlæknirinn Paulo Macchiarini var í morgun sakfelldur í einum af þremur ákæruliðum í tengslum við plastbarkaígræðslur sem hann framkvæmdi á árunum 2010 til 2012. Erlent 16.6.2022 10:11
Vaktin: Leiðtogar Evrópuþjóðanna vilja Úkraínu í ESB Þrír valdamestu leiðtogar Evrópusambandsins, forseti Frakklands, kanslari Þýskalands og forsætisráðherra Ítalíu mættu í heimsókn til Kænugarðs í nótt til að ræða við Volodomir Selenskí Úkraínuforseta. Erlent 16.6.2022 07:54
Ekkert saknæmt við dauða Lars Vilks Lögregla í Svíþjóð hefur lokið við rannsókn á dauða listamannsins Lars Vilks og tveggja lögreglumanna sem fórust í bílslysi skammt frá Markaryd í Smálöndunum á síðasta ári. Niðurstaðan er sú að ekkert saknæmt hafi átt sér stað. Erlent 16.6.2022 07:54
Fundu líkamsleifar í Amasonfrumskóginum og játning sögð liggja fyrir Dómsmálaráðherra Brasilíu segir að lögregla hafi fundið líkamsleifar í Amasonfrumskóginum á þeim slóðum þar sem breskur blaðamaður og brasilískur fræðimaður hurfu fyrir meira en viku. Tveir bræður eru sagðir hafa játað að hafa myrt þá. Erlent 15.6.2022 23:29
Hraðasta hlýnun á jörðinni yfir Norður-Barentshafi Norður-Barentshaf og eyjarnar þess eru sá staður á jörðinni þar sem loftslag hlýnar hraðast svo vitað sé samkvæmt rannsóknum norrænna veðurfræðinga. Hlýnunin þar er allt að sjöfalt hraðari en annars staðar á jörðinni. Erlent 15.6.2022 22:12
Siðaráðgjafi Johnson segir af sér Ráðgjafi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, í siðfræðilegum efnum sagði af sér í dag. Hann segir gildar spurningar enn á lofti um hvort að Johnson hafi brotið siðareglur með ítrekuðu veisluhaldi í kórónuveirufaraldrinum. Erlent 15.6.2022 18:46
Fjöldamorðinginn í Buffalo ákærður fyrir hatursglæpi Bandarískri alríkissaksóknarar ákærðu átján ára gamlan karlmann sem myrti tíu manns í stórverslun í Buffalo í síðasta mánuði fyrir hatursglæpi í dag. Yfirvöld telja að kynþáttahatur hafi verið tilefni fjöldamorðsins. Erlent 15.6.2022 17:54