Innlent
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 334 ›
Segir kæru Kristjáns út í hött Eiríkur Rögnvaldsson, uppgjafaprófessor í íslenskri málfræði og málfarslegur aðgerðarsinni, segir kæru Kristjáns Hreinssons Skerjafjarðarskálds út í hött. Það sé ekkert til sem megi kalla lýtalausa íslensku. Innlent 1.7.2024 13:01
Sauðfé fækkar og framtíðarhorfur óljósar Formaður sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands segir fækkun sauðfjár á milli ára vera viðvarandi þróun. Margir þættir skýri fækkunina, en framhaldið sé afar óljóst. Innlent 1.7.2024 12:00
Samningur stærsta félags BHM gæti hreyft við öðrum félögum Viska, nýtt stéttarfélag innan Bandalags háskólamanna, gekk fyrst félaga bandalagsins frá kjarasamningi í gær. Formaður BHM segir ekki ólíklegt að samningurinn komi hreyfingu á viðræður annarra félaga sem enn eiga eftir að semja við ríki mög sveitarfélög. Innlent 1.7.2024 11:56
Kjarasamningar og stórsigur Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi Í hádegisfréttum fjöllum við um kjaramsamninga sem enn er verið að skrifa undir þrátt fyrir að komið sé fram á sumar. Innlent 1.7.2024 11:34
Lögregla stöðvaði unglingapartý í Guðmundarlundi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði á föstudag afskipti af hópi unglinga sem safnaðist hafði saman í Guðmundarlundi í Kópavog. Einhverjir þeirra voru með áfengi við hönd en ekki margir. Barnavernd hefur aðkomu að einhverjum málanna. Innlent 1.7.2024 11:33
Hundruð freista þess að gera góð kaup í Nexus Hundruð manna hafa gert sér ferð í sérvöruverslunina Nexus í morgun þar sem blásið var til hinnar árlegu sumarútsölu verslunarinnar. Myndarleg röð var við inngang verslunarinnar í Glæsibæ þegar hún var opnuð klukkan tíu og yfir tvö hundruð manns komu í verslunina á innan við tuttugu mínútum til að gera góð kaup. Innlent 1.7.2024 11:06
Brottfararsalurinn rýmdur vegna grunsamlegrar tösku Ákveðið var að rýma brottfararsalinn á Keflavíkurflugvelli undir miðnætti í nótt vegna grunsamlegrar tösku. Fjölmargir komu að aðgerðum en ekkert óeðlilegt reyndist í töskunni. Innlent 1.7.2024 10:45
Kjósendur hafi nýtt forsetakosningar til að senda pólitíkinni skilaboð Stefán Einar Stefánsson þáttastjórnandi segir mikla þreytu meðal almennings á núverandi ríkisstjórn og niðurstöður kannanna endurspegli það. Samkvæmt nýjustu könnun Maskínu er Sjálfstæðisflokkurinn aðeins með 14,7 prósenta fylgi og Samfylkingin með mest fylgi, 27,1 prósent. Miðflokkurinn er með 12,7 prósent í sömu könnun og Vinstri græn fimm prósent. Innlent 1.7.2024 10:44
Blóð á veggjum og gólfi og maður fluttur með sjúkrabíl Einn var fluttur á sjúkrahús með skurð á hendi eftir að óður hundur réðst á konu og karlmann í stigagangi fjölbýlishúss í Grafarvogi á föstudagskvöld. Konan og karlmaðurinn eru á sjötugsaldri og voru með hundinn í pössun. Innlent 1.7.2024 10:38
Blendnar tilfinningar í Borgarnesi: „Það hefur nær ekkert samráð verið“ Sveitarstjórn Borgarbyggðar er sökuð um skort á samráði við ákvörðun um uppbyggingu á íþróttasvæðinu í Borgarnesi. Áformin vekja blendnar tilfinningar meðal íbúa og íþróttahreyfingar, sem fagna uppbyggingu en telja forgangsröðun furðulega. Innlent 1.7.2024 10:28
Spennt fyrir menningarlífinu og náttúrunni á Akureyri Áslaug Ásgeirsdóttir er frá og með deginum í dag formlega tekin við embætti rektors Háskólans á Akureyri. Innlent 1.7.2024 09:55
Eldur kom upp í rafmagnshlaupahjóli í hleðslu innandyra Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um tíuleytið í gærmorgun vegna elds í bílskúr í Ártúnsholti. Eldurinn kom upp í rafmagnshlaupahjóli sem var í hleðslu innandyra. Innlent 1.7.2024 09:08
Útilokar ekki rétt til reykinga á hjúkrunarheimilum Réttur starfsmanna til reyklauss vinnuumhverfis útilokar ekki að íbúa hjúkrunarheimilis sé veitt undanþága til að reykja inni á eigin herbergi ef aðstæður leyfa. Umboðsmaður Alþingis telur þó ekki forsendur til að gera athugasemdir við ákvörðun sveitarfélags sem meinaði íbúa að reykja inn á herbergi sínu. Innlent 1.7.2024 09:00
Von á átján stiga hita á Hallormsstað Reikna má með því að landsmenn hristi höfuðið í sumum landshlutum í dag og haldi áfram að bíða eftir sumrinu. Þeir sem eru á Austurlandi gætu þó viljað hafa stuttbuxur og sólarvörn innan seilingar. Innlent 1.7.2024 06:42
Brotist inn í fataverslun Brotist var inn í fataverslun í miðæ Reykjavíkur í nótt. Málið er í rannsókn lögreglu. Innlent 1.7.2024 06:30
Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Séra Guðrún Karls Helgudóttir, verðandi biskup Íslands, stýrði í dag sinni síðustu messu sem sóknarprestur í Grafarvogskirkju. Guðrún tekur formlega við sem biskup á morgun. Innlent 30.6.2024 22:06
Hundsbitum fari fjölgandi Deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg segir málum þar sem hundar bíta fólk og önnur dýr fara fjölgandi. Hann hefur áhyggjur af því hversu margir trassa að skrá hunda hjá sveitarfélögum. Innlent 30.6.2024 21:01
Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Eins og landsmenn hafa tekið eftir þá eru komnir áfastir tappar á drykkjarfernur frá Mjólkursamsölunni vegna nýrrar Evróputilskipunar. Einhverjir láta tappana fara í taugarnar á sér og segja þá þvælast fyrir en því fólki er boðið í mjólk og skúffuköku hjá Mjólkursamsölunni til að fara yfir hvernig nýju tapparnir virka. Innlent 30.6.2024 20:06
Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Kjörstöðum í Frakklandi hefur verið lokað og útgönguspár gefnar út strax í kjölfarið. Við förum yfir fyrstu tölur í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og fáum Torfa Tulinius, prófessor og sérfræðing í málefnum Frakklands, til að greina stöðuna í myndveri í beinni útsendingu. Innlent 30.6.2024 18:01
Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Börkur Hrólfsson rútubílstjóri var á leið til Keflavíkur um tvöleytið eftir hádegi í gær, þegar sofandi ökumaður ók í veg fyrir hann rétt hjá álverinu í Straumsvík. Engin meiriháttar slys urðu á fólki, en Börkur segir algjörri heppni, loftpúðum og bílbeltum að þakka að ekki hafi farið verr. Hann segir of algengt að ósofnir ferðamenn ætli sér að aka langar vegalengdir eftir langt ferðalag til landsins. Innlent 30.6.2024 17:02
Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Hjólhýsi fauk út af veginum í sunnanverðum Borgarfirði á fjórða tímanum í dag. Nokkrar tafir voru á umferð í kjölfarið. Innlent 30.6.2024 15:58
Séra Arna Ýrr tekur við af verðandi biskupi Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir hefur verið ráðin sóknarprestur í Grafarvogsprestakalli, en hún tekur við 1. júlí af sr. Guðrún Karls Helgudóttur sem hefur verið ráðin biskup Íslands. Innlent 30.6.2024 15:23
Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Borgarstjóri segir áhyggjur íbúa Grafavogs af fyrirhugaðri uppbyggingu í hverfinu óþarfar. Enginn sé að fá margra hæða blokk í bakgarðinn hjá sér. Innlent 30.6.2024 15:01
Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Tilkynnt var um óðan hund sem réðst á tvo í Grafarvoginum síðastliðið föstudagskvöld. Hundurinn var handsamaður og færður í vörslu Dýraþjónustu Reykjavíkur. Deildarstjóri Dýraþjónustunnar hefur áhyggjur af því að bitmálum fari fjölgandi. Innlent 30.6.2024 13:08
Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Fyrsta hálendisvakt sumarsins leggur af stað upp úr hádegi. Tólf björgunarsveitarmenn sjá um fyrstu vaktina og segir einn þeirra gleðina vera ein af aðalástæðunum fyrir því að fólk nýti sumarfríið sitt í að bjarga ferðamönnum. Innlent 30.6.2024 12:54
Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Nokkuð öflugur jarðskjálft, af stærðinni 3,4, mældist í norðanverðri Bárðarbunguöskjunni í morgun. Innlent 30.6.2024 12:10
Kosningar, uppbygging í Grafarvogi og hálendisvakt Allt bendir til þess að þingkosningarnar sem nú eru hafnar í Frakklandi verði sögulegar, að sögn fyrrverandi þingmanns sem búsettur er í París. Hann kveðst aldrei hafa upplifað viðlíka spennu og ótta í frönsku samfélagi og nú, þar sem mikilla breytinga sé að vænta fari kosningarnar eins og kannanir bendi til. Fjallað eru kosningarnar í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 30.6.2024 11:54
„Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur, get bara sagt fólki það,“ sagði Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Þá sagði hann að smáflokkur í ríkisstjórnarsamstarfinu, Vinstri græn, hefði alltof mikil áhrif, og að íslenska stjórnmálamenn vanti þrek og kjark til að gera eitthvað, vitandi það að fullt af fólki muni garga á þau. Innlent 30.6.2024 11:31
Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Ökumaður sem var stöðvaður í hverfi 108 í nótt fyrir að aka á 120 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, reyndist án gildra ökuréttinda. Tveir aðrir voru stöðvaðir í nótt sem reyndust án ökuréttinda, einn þeirra var undir áhrifum fíkniefna. Þá var einn sektaður fyrir að nota ekki bílbelti við akstur. Innlent 30.6.2024 10:34
Samsæriskenningar, borgarstjóri um húsnæðismál og kosningar Fyrsti gestur Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi í dag er Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðiprófessor. Hann ræðir nýja bók sína um samsæriskenningar og fjallar um kosningar í Bretlandi og Frakklandi. Innlent 30.6.2024 09:52