„Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Freyja Þórisdóttir skrifar 7. maí 2026 22:06 Sjálfstæðisflokkurinn hefur aukið fylgi sitt undanfarið og mælist nú með sjö borgarfulltrúa. Samfylkingin hefur gefið eftir, mælist með fimm fulltrúa. Vísir/Vilhelm/Arnar Halldórsson Flókið gæti reynst að mynda meirihluta í Reykjavík miðað við nýjustu kosningaspá Vísis. Það megi búast því að fylgi flokkanna verði á fleygiferð fram að kosningum og tölur eftir viku gætu verið gjörólíkar því sem fram kemur í könnunum í dag.
Þetta og fleira kom fram í kvöldfréttum Sýnar í kvöld en í sett mætti stjórnmælafræðingurinn Hafsteinn Birgir Einarsson. Hann bendir á að miðað við nýjustu kosningaspá Vísis sé tveggja flokka meirihluti samsettur af Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni mögulegur. „Pólitískt sér maður þetta ekki alveg gerast, þetta eru flokkarnir sem svona á landsvísu skipa sér upp sem stóru turnana og erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir. Kannski ef að allt fer í hnút,“ áætlar Hafsteinn. Tveir mismunandi meirihlutamöguleikar í borgarstjórn miðað nýjustu kosningaspá. Annars vegar tveggja flokka meirihluti með Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni og hins vegar þriggja flokkar meirihluti með Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og Miðflokknum. En Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna, hefur mikið haft orð á því í aðdraganda kosninga að „gefa Samfylkingunni frí“ og telur Hafsteinn það vera viðbúið að slík orð séu látin falla í ljósi þess að meira en minna vinstri stjórn hefur verið í Reykjavík um nokkuð langt skeið. „Ég hugsa að þetta sé ekki fyrsti kostur á blaði, fyrir hvorugan flokk,“ bætir hann við. Enginn flokkanna í núverandi meirihluta En það er einnig mögulegur þriggja flokka meirihluti þar sem Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Miðflokkurinn myndu gera með sér samkomulag. „Þarna höfum við auðvitað flokka sem eru hægra megin og svona miðju til hægri og enginn þessara flokka er í núverandi meirihluta. Það gæti maður ímyndað sér að myndi höfða til þeirra svona hvað þetta varðar,“ segir Hafsteinn. Hann segir þó að ágreiningur um skipulagsmálin og óvild milli Viðreisnar og Miðflokksins á landsvísu gæti komið í veg fyrir að samkomulag gengi eins og í sögu þessarra flokka á milli. Fleiri möguleikar innan seilingar Stutt er í áttunda mann hjá Sjálfstæðisflokknum ef þróun heldur áfram líkt og hún hefur gert undanfarið en þá gæti þriðji möguleikinn á meirihluta í borgarstjórn komið fram á sjónarsviðið. „Við gætum séð meirhluta Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Viðreisnar en það munar bara einhverjum kommum þarna upp á að þetta takist eða takist ekki, sem segir manni bara að þetta er allt opið,“ segir Hafsteinn. Hér má sjá hvernig gæti þurft fjóra flokka til og segir stjórnmálafræðingurinn Hafsteinn Birgir Einarsson að það minni að nokkru leyti á þann meirhluta sem byrjaði síðasta kjörtímabil saman. Hafsteinn segir það geta orðið flókið ef fjórir flokkar mynda meirihluta en að erfitt sé að finna samstæðumynd. Það gangi vel hjá Vinstrinu í könnunum þessa dagana og að mögulega rati flokkurinn í meirihluta. Þá kannski einna helst ef skipulagsmálin verði til þess að Viðreisn sjái sér ekki fært að mynda meirihluta með flokkum hægra megin við miðju.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Samfylkingin Vinstrið Skoðanakannanir Reykjavík Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Töluvert fleiri vilja sjá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins sem borgarstjóra en Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu um hug borgarbúa til þess hver oddvitanna eigi að verða borgarstjóri. 7. maí 2026 18:46 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Fleiri fréttir Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Sjá meira
Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Töluvert fleiri vilja sjá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur oddvita Vinstrisins sem borgarstjóra en Björgu Magnúsdóttur oddvita Viðreisnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu um hug borgarbúa til þess hver oddvitanna eigi að verða borgarstjóri. 7. maí 2026 18:46