Innlent

Starfsemi í lóninu vart forsvaranleg að mati lögreglu
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur vart forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu við núverandi aðstæður en hætta er talin á loftmengun vegna eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni.

„Meiri líkur en minni“ á að Jón Gnarr fari fram
Jón Gnarr leikari og fyrrverandi borgarstjóri segir meiri líkur en minni á að hann gefi kost á sér í komandi forsetakosningum.

Meta hvort hægt sé að nota hluta námunnar aftur
Undirbúningur fyrir hækkun varnargarðanna norðan við Grindavík hefur staðið yfir í dag. Þá ætla sérfræðingar einnig að leggja mat á hvort hægt verði að sækja til þess efni í Melhólsnámu, eftir að hraun flæddi inn í hana í gær.

„Að okkar mati er þetta stórslys sem hefði verið auðvelt að forðast“
Breytingar sem samþykktar voru á búvörulögum í gær jafngilda stórslysi að mati framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Nú geti fyrirtæki sem skili milljarða hagnaði hagað sér eins og þeim sýnist á markaði án aðhalds frá Samkeppniseftirlitinu.

Fjórða uppstokkunin á örfáum árum og yfir tuttugu nýir forstöðumenn
Landspítalinn hefur ráðið um tuttugu nýja forstöðumenn. Langflestir voru starfandi á spítalanum og færast ofar í skipuriti. Þetta er fjórða breytingin á örfáum árum og áætlaður kostnaður er á þriðja hundrað milljónir króna.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Formaður Bankaráðs Landsbankans segir ráðið telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna um fyrirhuguð kaup á TM. Bankasýslunni hafi fyrst verið greint frá áhuga bankaráðs á tryggingamarkaðnum síðasta sumar.

Lóan er komin
Lóan er komin til landsins að kveða burt snjóinn og leiðindin. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur staðfestir það í samtali við fréttastofu.

Ellefu manns óvart í framboði
Að minnsta kosti ellefu manns hófu meðmælasöfnun fyrir forsetaframboð á Ísland.is fyrir slysni. Þau ætluðu öll að mæla með öðrum frambjóðenda en stofnuðu svo sjálf til meðmælasöfnunnar.

Aukin hætta vegna gasmengunar
Aukin hætta er vegna gasmengunar á öllum svæðum við eldstöðvarnar við Sundhnúk. Hætt er við því að gasmengun muni berast yfir Grindavík og önnur nærliggjandi svæði um helgina.

„Við höfum ekki séð svona áður“
Ísak Finnbogason hefur á undanförnum árum verið iðinn við að sýna frá eldgosum á Íslandi í beinni útsendingu með drónum. Í gær fangaði hann hraun flæða inn í Melhólsnámu og fylgdust þúsundir með útsendingunni.

Þriggja ára nauðgunardómur mildaður í Landsrétti
Ómar Örn Reynisson, 27 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs ára fangelsi fyrir að nauðga konu sem var gestur á heimili hans árið 2020. Ómar Örn hafði áður verið dæmdur í þriggja ára fangelsi í héraði, en Landsréttur mildaði dóminn.

Spáir því að Katrín tilkynni um forsetaframboð á næstu dögum
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, segir alla innan raða Vinstri grænna og ríkisstjórnarinnar nú velta fyrir sér hvort Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra muni gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Sjálfur er hann þeirrar skoðunar að hún muni gera það og verða kjörin næsti forseti lýðveldisins.

Illa fengin dekk uppspretta dómsmáls
Karlmaður hlaut í vikunni sextíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundna til tveggja ára, í Héraðsdómi Vesturlands vegna dekkja.

„Hvergi er gengið svo langt í að skapa möguleika á einokun“
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir nýsamþykkt búvörulög mun róttækari en þekkist í löndunum í kringum okkur. Löggjafinn hafi gengið mun lengra en þekkist í nágrannaþjóðum.

Fær um tólf milljónir í biðlaun sem skerðast ekki fái hann annað starf
Geir Sveinsson fær greiddar um þrettán milljónir í nokkrum greiðslum sem hluta af starfslokasamningi. Greiðslur til Geirs skerðast ekki fái hann aðra vinnu þrátt fyrir bókun sem samþykkt var í bæjarráði um það. Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti starfslokasamning hans í dag.

Zuism-bræður dæmdir í Landsrétti
Bræðurnir Ágúst Arnar og Einar Ágústssynir voru í dag sakfelldir af ákæru um að hafa stundað fjársvik og peningaþvætti í tengslum við trúfélagið Zuism. Landsréttur sneri dómi héraðsdóms í málinu sem hafði sýknað bræðurna.

Orkumálastjóri íhugar forsetaframboð
„Ég hef fengið fullt af hvatningu í þetta embætti og almennt í ólík störf í gegnum tíðina en þetta er kveðja sem hittir beint í hjartastað,“ segir Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri, sem íhugar forsetaframboð.

„Framsókn tryggt að páskalambið renni ljúflega niður í ár“
Halla Signý Kristjánsdóttir fagnaði breytingum á búvörusamningum á þinginu áðan en það gerði Sigmar Guðmundsson Viðreisn ekki. Hann óskaði Sjálfstæðisflokknum sérstaklega til hamingju með að hafa á örfáum dögum ríkisvætt tryggingafélag og tryggt einokun milliliða í landbúnaði.

Hæstiréttur tekur ekki fyrir níu ára gamalt nauðgunarmál
Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál Fjölnis Guðsteinssonar, sem hlaut átján mánaða fangelsisdóm í Landsrétti í desember fyrir nauðgun sem átti sér stað í júní 2015.

Vill samskipti Bankasýslunnar og ráðuneytis upp á yfirborð
Fjárlaganefnd ætlar að óska eftir upplýsingum frá Bankasýslunni um samskipti stofnunarinnar og fjármálaráðuneytisins vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingafélagi. Formaður nefndarinnar hefur efasemdir um kaupin en telur rétt að bíða eftir skýringum.

Nýsamþykkt búvörulög harðlega gagnrýnd
Í hádegisfréttum fjöllum við um búvörulög sem samþykkt voru á Alþingi í gær en meðferð Alþings á málinu hefur verið harðlega gagnrýnd

Hyggjast opna námuna og sækja efni
Verktakar sem vinna að vegagerð og varnargörðum á Reykjanesi hyggjast freista þess að opna Melhólsnámu, þar sem hraun flæddi inn í gærkvöldi. Til stendur að reyna að útvíkka námuna svo hægt sé að ná í efni sem notað yrði til að hækka varnargarða við Grindavík.

Starfslok Geirs staðfest í bæjarstjórn
Tillaga að starfslokasamningi Geirs Sveinssonar var samþykkt í bæjarstjórn í morgun. Geir hefur gegn starfi bæjarstjóra síðustu tvö ár og lætur strax af störfum. Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri Hveragerðisbæjar, verður staðgengill bæjarstjóra þangað til nýr bæjarstjóri verður ráðinn.

Umboðsmaður Alþingis sækir um hjá Hæstarétti
Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, er á meðal þeirra sem sótti um laust sæti dómara við Hæstarétt. Fjórir sóttu um embættið, sem var auglýst þann fyrsta mars síðastliðinn, en umsóknarfrestur rann út átjánda mars.

Flutningabifreið á hliðinni undir Ingólfsfjalli og lokar veginum austur
Flutningabifreið fór á hliðina undir Ingólfsfjalli nú fyrir stundu og þverar algjörlega leiðina austur. Lögregla er á vettvangi og bíður þess að bílinn verðir fluttur af veginum. Hjáleið er um gamla Suðurlandsveginn fyrir neðan hringveginn.

Kærkomin snjósending fyrir skíðaviku en heldur mikil ófærð
Ófært er víða á Vestfjörðum og óvissustig í gangi vegna snjóflóðahættu. Vegir eru víða lokaðir og gul veðurviðvörun í gildi til hádegis. Bæjarstjórinn segir snjósendinguna hafa verið kærkomna en ekki ófærðina.

Umdeilt afurðastöðvafrumvarp samþykkt á Alþingi í gær
Frumvarp matvælaráðherra um breytingar á búvörulögum var samþykkt á Alþingi í gær, þrátt fyrir hörð mótmæli Samkeppniseftirlitsins, Neytendasamtakanna, Alþýðusambands Íslands, VR, Félags atvinnurekenda og fleiri.

Tíu pósthúsum vítt og breitt um land lokað í sumar
Til stendur að loka tíu pósthúsum Póstsins í sumar. Um er að ræða fjögur pósthús á Austfjörðum, fjögur á Norðurlandi, eitt á Vesturlandi og eitt á Vestfjörðum. Sendingar verða í staðinn afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum.

Vaka vann nauman meirihluta í Stúdentaráði
Vaka – félag lýðræðissinnaðra stúdenta komst í meirihluta í kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands í nótt. Það er í fyrsta sinn síðan árið 2017 sem Vaka nær meirihluta. Samkvæmt tilkynningu frá kjörstjórn var kjörsókn um 31 prósent til Stúdentaráðs og 28 prósent til Háskólaráðs.

Yngstu börnin innrituð í Garðabæ og Mosfellsbæ
Á höfuðborgarsvæðinu er nú unnið að því að innrita börn í leikskóla fyrir bæði næsta haust og sum þetta vorið. Um er að ræða árganga barna sem fæddust árin 2022 og 2023 en misjafnt er eftir sveitarfélögum hversu langt þau ná inn í árið 2023.