Innlent
326 327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Refsiábyrgð heilbrigðisstofnana orðin að lögum Frumvarp Willums Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra um refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsóknir alvarlegra atvika hefur verið samþykkt á Alþingi. Markmið laganna er að auka öryggi sjúklinga og segir ráðherra þau marka tímamót. Innlent 19.12.2023 16:06
Gosið hafi lítil áhrif á björgunarsveitir í bili Eldgosið við Sundhnúksgíga hefur lítil áhrif á störf björgunarsveita á landinu enn sem komið er. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir tímann þurfa að leiða í ljós hvort ræsa þurfi út sveitir alls staðar að til þess að gæta galvaskra göngumanna. Innlent 19.12.2023 15:42
Fylgjast með hraunlíkönum og hvort nýjar sprungur myndist Benedikt Gunnar Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir jarðvísindamenn nú fylgjast með hraunlíkönum og hvort það séu nýjar sprungur að myndast við kvikuganginn á Reykjanesskaga. Innlent 19.12.2023 15:39
Lagt til að Svanhildur verði sendiherra í Bandaríkjunum Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra hefur lagt til að Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, verði nýr sendiherra Íslands í Washington í Bandaríkjunum. Þetta staðfestir Svanhildur við fréttastofu. Innlent 19.12.2023 15:27
Ekki samstaða innan ASÍ um áherslur í komandi kjaraviðræðum Ekki tókst að ná samstöðu um að landsambönd og félög innan Alþýðusambandsins fari sameiginlega fram í viðræðum við Samtök atvinnulífsins í komandi kjaraviðræðum. Forseti ASÍ segir samningaviðræður geta orðið flóknari fyrir vikið en vonar engu að síður að nýir samningar náist áður en núgildandi samningar renna út í lok janúar. Innlent 19.12.2023 15:19
Dæmdir fyrir að aka um á vespu og fremja vopnuð rán Tveir karlmenn hafa hlotið fangelsisdóma fyrir fjölda brota, meðal annars vopnað rán sem framið var í Fossvogi og annað eins í Hamraborg skömmu síðar. Innlent 19.12.2023 15:10
Myndasyrpa: Rauðglóandi næturhiminn og myndun nýrra gíga Eldgosinu, sem hófst við Sundhnúksgíga seint í gærkvöldi, er ekki hægt að lýsa öðruvísi en stórfenglegu. Fjöldi fólks lagði leið sína í átt að eldgosinu til að berja það augum og næturhimininn var rauður vegna endurvarpsins frá eldinum. Innlent 19.12.2023 15:09
Eldfjallafræðingar freista þess að ná sýnum úr eldgosinu Eldfjallafræðingar frá Háskóla Íslands freista þess nú að taka stöðuna og ná sýnum af eldgosinu. Eldfjallafræðingur segir aðgerðina taka einhverjar klukkustundir og mikilvægt sé að nýta dagsbirtuna vel. Innlent 19.12.2023 14:23
Sjónarspil gærkvöldsins engu líkt „Sú sjón sem við sáum í gærkvöldi og náðum að fanga var eitthvað sem við höfum ekki séð síðan þessir eldar byrjuðu á Reykjanesi árið 2021,“ segir myndatökumaðurinn Björn Steinbekk. Hann flaug dróna sínum yfir eldgosinu í nótt. Innlent 19.12.2023 14:17
Skella í lás á Húsavík Tekin hefur verið ákvörðun um að loka starfsstöð Persónuverndar á Húsavík og hefur tveimur starfsmönnum verið sagt upp. Starfsstöðin mun loka dyrum sínum um áramót. Forstjóri segir fjárlaganefnd ekki hafa veitt styrk til verkefnisins og því hafi þurft að loka. Innlent 19.12.2023 14:06
Nokkrum göngumönnum snúið við í morgun Hlynur Stefánsson björgunarsveitarmaður, sem staðið hefur vaktina við eldgosið á Reykjanesskaga, segir vinnu björgunarsveitar hafa gengið vel. Fólk hafi farið að fyrirmælum um að vera ekki á svæðinu. Innlent 19.12.2023 13:30
Taldi niður sekúndurnar þar til konur myndu deyja Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás gegn tveimur konum og hótunarbrot, með því að hafa hótað þeim lífláti og talið niður sekúndur þar til að þær létust. Innlent 19.12.2023 13:18
Átta sækja um embætti forstjóra Veðurstofunnar Átta sóttu um embætti forstjóra Veðurstofu Íslands sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í síðasta mánuði. Innlent 19.12.2023 13:11
Gosmengun á höfuðborgarsvæðinu í nótt Einar Halldórsson teymisstjóri loftgæðateymis Umhverfissstofnunar segir að gosmengunar gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu seint í nótt eða fyrramálið. Það kemur einnig fram í tilkynningu á síðu Veðurstofunnar. Innlent 19.12.2023 12:58
Fólk geti komið sér í þannig ógöngur að ekki sé hægt að bjarga því Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, biðlar til fólks að fylgja fyrirmælum stjórnvalda varðandi eldgosið. Fólk sem fari að gosinu í óleyfi geti komið sér í þá stöðu að ekki verði hægt að bjarga því. Innlent 19.12.2023 12:57
Þróunin svipuð og var við Fagradalsfjall Áfram dregur úr krafti eldgossins við Sundhnúksgíga en hraunflæði er um það bil fjórðungur af því sem það var í byrjun og er einungis þriðjungur sprungunnar virkur. Kvikustrókar eru lægri en þeir voru í byrjun og eru um það bil þrjátíu metrar þar sem þeir ná hæst. Innlent 19.12.2023 12:45
Þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð að leiðarljósi Katrín Jakobsdóttir foræstisráðherra segir ríkisstjórnina að sjálfsögðu hafa rætt eldgosið á Reykjanesskaga á reglubundnum fundi sínum í ráðherrabústaðnum í morgun. Hún sé þess þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð í hávegum og enginn hafi verið í Grindavík þegar eldgos hófst. Innlent 19.12.2023 12:38
Lúðvík skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Lúðvík Þorgeirsson í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða til næstu fimm ára, frá 1. mars 2024. Lúðvík hefur síðustu ár starfað sem rekstrarstjóri hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Hann tekur við stöðunni af Gylfa Ólafssyni. Innlent 19.12.2023 11:55
Í áfalli og ósofin: Fóru með verðmæti til Grindavíkur í gær Íbúi í Grindavík segir fréttir gærkvöldisins hafa verið mikið áfall þrátt fyrir að eldgosinu fylgi einnig léttir. Fjölskyldan hafi farið í gær með verðmæti aftur til Grindavíkur í kjölfar ummæla lögreglustjórans á Suðurnesjum um að hann teldi líklegt að Grindvíkingar gætu haldið jól heima. Þau séu nú í áfalli og ósofin. Innlent 19.12.2023 11:36
Norðurlandabúar gera ráð fyrir brennisteinsmengun Norska veðurfræðistofan gerir ráð fyrir að brennisteinsmengun úr gosinu sem hófst við Sýlingarfell í gær berist til suðvesturstrandar Noregs um fimmleytið á morgun. Innlent 19.12.2023 10:43
Samþykkja tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi Skipulagsráð Kópavogs hefur samþykkt tillögu umhverfissviðs bæjarins um tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi í Kópavogi og hefur málinu verið vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Innlent 19.12.2023 10:41
Von á erlendum fjölmiðlum og fjölmiðlamiðstöðin opnuð á ný Fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fjölmiðla, vegna eldgossins á Reykjanesi sem hófst í gærkvöldi, verður opnuð í Hafnarfirði á ný í dag að sögn ferðamálastjóra. Eldgosið hófst um fjóra kílómetra norðaustan Grindavíkur, norðan Sundhnúks í Sundhnúkaröðinni klukkan 22:17 í gærkvöldi. Innlent 19.12.2023 10:27
Framleiðnin gæti vel hafa verið meiri en 200 rúmmetrar Í færslu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands á Facebook segir að verulega hafi dregið úr framleiðni gossins síðan það hófst fyrir hálfum sólarhring. Innlent 19.12.2023 10:18
Aukafréttatími í sjónvarpi í hádeginu Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar efnir til aukafréttatíma klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins á Sundhnúkagígaröðinni norðan Grindavíkur. Innlent 19.12.2023 09:49
Alls ekkert túristagos Eldgosið norður af Grindavík er alls ekkert túristagos að sögn samskiptastjóra almannavarna. Eins og er stefnir hraunið ekki í átt að Grindavík en mögulega gæti það runnið yfir Grindavíkurveg. Innlent 19.12.2023 09:26
Mikil óánægja á skrifstofu Sameykis Óánægju hefur gætt meðal starfsmanna stéttarfélagsins Sameykis, meðal annars með framgöngu formannsins Þórarins Eyfjörð. Þetta herma heimildir fréttastofu en viðmælendum ber ekki saman um andrúmsloftið á skrifstofunni nú né í hvaða farveg mál hafa verið sett. Innlent 19.12.2023 09:24
Eldgosið raskar ekki flugumferð Allt flug í dag er samkvæmt áætlun sem gerð var vegna verkfallaflugumferðarstjóra. Þær raskanir sem verða eru því ekki vegna eldgossins. Þetta segir Birgir Olgeirsson hjá PLAY. Innlent 19.12.2023 08:41
Enginn reykskynjari í húsinu Enginn reykskynjari var í húsnæðinu í Skipholti sem kviknaði í í gær. Enginn var heima þegar eldurinn kviknaði og sá gangandi vegfarandi um að tilkynna um eldsvoðann. Innlent 19.12.2023 08:34
Háalvarlegt en léttir á sama tíma Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir það ákveðinn létti hvar gossprungan á Reykjanesskaga liggur, þrátt fyrir að það sé alvarlegt hve nálægt bænum hún er. Til skoðunar er að reisa leiðigarða á svæðinu svo hraun renni ekki til byggðar. Innlent 19.12.2023 08:27
Gosvaktin: Gosið mallar áfram inn í nóttina Eldgos hófst um fjóra kílómetra norðaustan Grindavíkur, norðan Sundhnúks í Sundhnúkaröðinni, klukkan 22:17 í gærkvöldi. Fréttastofa Vísis heldur áfram að vakta ástandið. Innlent 19.12.2023 05:30