Innlent
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 334 ›
Fyrsti ríkisstjórnarfundur starfsstjórnar Bjarna Benediktssonar Fyrsti ríkisstjórnarfundur starfsstjórnar Bjarna Benediktssonar er hafinn. Starfsstjórnin var mynduð í kjölfar stjórnarslita en um er að ræða minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Innlent 18.10.2024 09:20
Hætta í bili að rukka fyrir stæðin í þremur götum nærri HÍ Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að hætta við gjaldskyldu fyrir notkun bílastæða í þremur götum nálægt Háskóla Íslands þar til að skólinn mun sjálfur hefja gjaldtöku á bílastæðum sínum. Innlent 18.10.2024 08:47
Sagðir hafa fundið um 1.500 skilaboð milli Þorsteins og Jóhannesar Héraðssaksóknara hefur tekist að endurheimta um það bil 1.500 smáskilaboð sem fóru á milli Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara. Innlent 18.10.2024 08:05
Fá að leita í innrituðum farangri farþega að þeim fjarstöddum Nýtt frumvarp fjármálaráðherra kveður á um að tollgæslu verði heimilt að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að eigandanum fjarstöddum. Innlent 18.10.2024 06:46
„Nauðsynlegt að bregðast við“ en aðgerðum fækkar Fjármagn streymir úr landi í tengslum við efnaskiptaaðgerðir. Á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld segja nauðsynlegt að takast á við offituvandann eru slíkar aðgerðir á íslenskri einkastofu ekki niðurgreiddar. Innlent 17.10.2024 23:00
„Fullt út úr dyrum“ á öllum fundum Samfylkingarinnar Vali á lista Samfylkingarinnar verður hagað með uppstillingu. Þetta var staðfest á fundum kjördæmisráðs í kvöld en formaður framkvæmdastjórnar segir fullt út úr dyrum á öllum fundum flokksins. Innlent 17.10.2024 22:51
Mál umdeilda skákborðsins ætlar engan endi að taka Landsréttur hefur sent mál sem varðar eftirlíkingu af skákborði sem Bobby Fischer og Boris Spasskí notuðu þegar þeir tefldu í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972 aftur í hérað. Innlent 17.10.2024 22:11
Stillt upp á alla lista Viðreisnar Uppstillingarnefndir stilla upp á alla lista Viðreisnar fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið í landshlutaráðum í gær og í kvöld. Spenna ríkir í baráttu um sæti á Reykjavíkurlistum flokksins. Innlent 17.10.2024 22:01
„Af hverju á ekki að bjarga börnunum?“ Drengur sem hefur verið lagður sextán sinnum inn á Stuðla á einu ári segir betrun þeirra sem fara þangað inn litla sem enga. Faðir hans kallar úrræðið geymslu fyrir börn í vanda þar til þau verða átján ára. Innlent 17.10.2024 19:57
Starfsstjórn tekin við stjórnartaumunum Starfsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er tekin við völdum. Þetta var tilkynnt að loknum ríkisráðsfundi á Bessastöðum í kvöld. Innlent 17.10.2024 19:17
Sögulegur fundur á Bessastöðum og átakanleg saga af Stuðlum Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan sex, þar sem ráðherrar Vinstri grænna biðjast formlega lausnar úr embætti. Við verðum í beinni útsendingu frá sögulegum fundi á Bessastöðum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 17.10.2024 18:02
Alma hættir sér ekki í oddvitabaráttuna Alma Möller landlæknir gefur kost á sér í annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hún fer í leyfi frá störfum sem landlæknir þegar listinn verður birtur og tekur Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir við embættinu á meðan. Innlent 17.10.2024 17:46
Ítrekuð brot gegn grunnskólastúlku nauðgun eftir allt saman Landsréttur hefur þyngt dóm Najeb Mohammad Alhaj Husin, fyrrverandi starfsmanns grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra, fyrir brot, þar á meðal nauðgun, gegn stúlku í unglingadeild skólans. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður dæmt hann í þriggja og hálfs árs fangelsi vegna málsins, en vildi meina að háttsemi hans hefði ekki verið nauðgun. Landsréttur segir að um nauðgun sé að ræða og dæmir hann í fimm ára fangelsi. Innlent 17.10.2024 17:05
Sá elsti vonar að draumur um ráðherrasæti rætist Tómas A. Tómasson segist lifa æskudrauminn. Hann vonast til að verða næsti forseti Alþingis og segir að það hafi tekið tíma að læra að taka fréttir af blundum hans í þingsal ekki inn á sig. Innlent 17.10.2024 16:23
Ekkert bendi til þess að kvikusöfnun sé að hætta Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi hefur haldið áfram á svipuðum hraða síðustu vikuna. Haldi hún áfram á svipuðum hraða og undanfarið er líklegasta sviðsmyndin sú að annað kvikuhlaup og mögulega eldgos verði á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 17.10.2024 16:01
Vilhjálmur blandar sér í baráttuna í Kraganum Enn bætist í fjölda þeirra sem vilja sæti ofarlega á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður flokksins, gefur kost á sér í annað til fjórða sæti listans. Innlent 17.10.2024 15:42
Sara sækist eftir fyrsta sæti í Reykjavík hjá Pírötum Sara Oskarsson varaþingmaður Pírata sækist eftir því að leiða lista Pírata í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Fyrr í dag tilkynnti Lenya Rún Taha Karim um það sama. Áður hafa oddvitar kjördæmanna og þingmenn flokksins, Halldóra Mogensen og Björn Leví Gunnarsson, gefið það út að þau ætli að halda áfram. Það er því ljóst að slagur verður um efstu sætin í prófkjöri Pírata. Innlent 17.10.2024 15:41
Líneik Anna lætur af þingmennsku Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi Alþingiskosningum. Innlent 17.10.2024 15:37
Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Kosið verður til Alþingis þann 30. nóvember. Fylgst verður með nýjustu tíðindinum í aðdraganda kosninga hér í Kosningavaktinni. Ábendingar má senda á ritstjorn@visir.is. Innlent 17.10.2024 15:25
Skrifar sundurlyndið ekki bara á Vinstri græn Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra og væntanlegur innviðaráðherra á ný, mætti pollrólegur í Samtalið hjá Heimi Má sem var í beinni útsendingu á Vísi klukkan 14. Mikið hefur gengið á í stjórnmálunum og á ríkisstjórnarheimilinu undanfarna daga eins og vart ætti að þurfa að fara yfir. Innlent 17.10.2024 15:09
G. Sigríður vill annað sætið í Norðvestur G. Sigríður Ágústsdóttir hefur tilkynnt að hún hafi ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hún er fædd og uppalin á Bíldudal og býr í dag í Reykjavík. Innlent 17.10.2024 14:56
Lárus leiðir uppstillingarnefnd Framsóknar í Reykjavík Lárus Sigurður Lárusson lögmaður leiðir kjörnefnd í Reykjavíkurkjördæmunum fyrir Framsóknarflokkinn. Með honum í nefndinni eru þau Haukur Logi Karlsson, Fanný Gunnarsdóttir, Ásta Björg Ólafsdóttir, Teitur Erlendsson, Björn Ívar Björnsson og Unnur Þöll Benediktsdóttir Innlent 17.10.2024 14:45
Bjarni hættur í Vinstri grænum Bjarni Jónsson þingmaður hefur sagt sig úr Vinstri grænum og sagt skilið við þingflokkinn. Hann segir flokkinn hafa sveigt af leið og brugðist grunngildum sínum og væntingum þeirra sem stóðu að stofnun hans. Innlent 17.10.2024 14:44
Hætt hjá SFS og til liðs við Miðflokkinn Laufey Rún Ketilsdóttir er hætt sem upplýsingafulltrúi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og hefur gengið til liðs við Miðflokkinn. Innlent 17.10.2024 14:40
Örn í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps Örn Geirdal Steinólfsson, 48 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir manndrápstilraun í vesturbæ Reykjavíkur í janúar síðastliðnum. Þá þarf hann að greiða karlmanni sem hlaut hættulega áverka 2,2 milljónir króna í miskabætur. Innlent 17.10.2024 14:08
Kennarar í MR samþykkja verkfall Niðurstaða atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls í Menntaskólanum í Reykjavík liggur fyrir. Mikill meirihluti styður boðun verkfalls. Þar með hafa verið boðaðar aðgerðir í tíu skólum í lok mánaðar og byrjun næsta mánaðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kennarasambandinu. Innlent 17.10.2024 13:52
Forsetaframbjóðandi vill leiða lista Pírata Viktor Traustason, sem bauð sig fram í forsetakosningunum í júní síðastliðinn, hefur boðið sig fram í prófkjöri Pírata í Norðausturkjördæmi. Innlent 17.10.2024 13:16
Alma Möller skellir sér í pólitíkina Alma Möller landlæknir hefur ákveðið að gefa kost á sér til framboðs hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 17.10.2024 13:13
Píratar halda prófkjör Kjörstjórn Pírata fyrir alþingiskosningar 2024 hefur boðað til prófkjörs dagana 20.–22. október næstkomandi þar sem kosið verður um sæti á framboðslista flokksins í öllum kjördæmum. Innlent 17.10.2024 12:56
Rósa sækist eftir þriðja sætinu Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði gefur kost á sér í 3. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Rósa sagði í gær í samtali við Vísi vera að íhuga málið alvarlega. Innlent 17.10.2024 12:44