Svínum sleppt út í Saltvík Oddur Ævar Gunnarsson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 2. september 2026 12:58 Frá svínabúi Stjörnugríss á Kjalarnesi þar sem svínum var sleppt í maí. Vísir/Vilhelm Svínum Stjörnugríss var sleppt út í Saltvík og var lögregla kölluð út að staðnum í morgun. Fimm smágrísir drápust og ein gylta fótbrotnaði svo þurfti að aflífa, auk þess sem fjölmörg dýr eru særð og með áverka. Verksummerki eru með svipuðum hætti og síðast þegar brotist var inn hjá Stjörnugrís og dýrum sleppt í maí síðastliðnum.
Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Rannsókn á innbrotinu stendur nú yfir. Geir Gunnar Geirsson forstjóri Stjörnugríss segir að búið sé að ná tökum á ástandinu, búið sé að reka öll svín inn. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að afleiðingar innbrotsins fyrir dýrin séu mjög alvarlega, smitvarnir búsins hafi verið alvarlega rofnar. Málið hafi verið kært til lögreglu. Síðast var brotist inn hjá Stjörnugrís í maí síðastliðnum og svínum sleppt. Skemmdarvargarnir skildu í það skiptið eftir svokallaða stefnuskrá á vettvangi. Í júní var brotist í Reykjabú og hænum sleppt. Var samskonar yfirlýsing skilin eftir á vettvangi. Í lok júlí var svo brotist inn í Dalsbú í Mosfellsdal og hundruðum minka sleppt út í náttúruna. „Okkur er mjög brugðið yfir því að þetta skuli hafa endurtekið sig, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingar fyrra innbrotið hafði fyrir velferð dýranna. Hvað gengur þessu fólki eiginlega til?“ er haft eftir Geir í tilkynningu frá fyrirtækinu. „Við töldum í einfeldni okkar að þeir sem stóðu að fyrra innbrotinu hefðu ekki gert sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna og að vanþekking þeirra hefði orðið þess valdandi að úr varð dýraníð af verstu sort. Í ljósi nýlegra atburða á Reykjabúinu og Dalsbúinu, auk þessa endurtekna innbrots í svínabú okkar, tel ég hins vegar ljóst að þessar aðgerðir hafa snúist upp í andhverfu sína það er að segja virðast ekkert með umhyggju fyrir dýrum eða velferð þeirra að gera. Þvert á móti er engu líkara enn að tilgangurinn sé að valda dýrum ótta, meiðslum og dauða.“ Tilkynning Stjörnugríss í heild sinni: Alvarlegt og endurtekið innbrot í svínabú Stjörnugríss Aðfaranótt 2. september var enn á ný brotist inn í svínabú Stjörnugríss að Brimnesi á Kjalarnesi. Í þetta sinn var rúða brotin og farið inn um hana. Verksummerki voru með svipuðum hætti og við fyrra innbrot. Innréttingar voru rifnar upp, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar. Afleiðingarnar voru þær að dýrin gengu laus um húsin og sum þeirra komust út á tún við búið. Afleiðingar innbrotsins fyrir dýrin eru mjög alvarlegar. Fimm smágrísir drápust og ein gylta fótbrotnaði og þurfti að aflífa. Þá eru fjölmörg dýr særð og með áverka. Búast má við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, minnkaðrar mjólkurframleiðslu hjá gyltum og mögulegra fósturláta. Ljóst er að smitvarnir búsins voru alvarlega rofnar þar sem dýr úr mismunandi hópum blönduðust saman og sum þeirra fóru út fyrir húsakynni búsins. Málið hefur verið kært til lögreglu og er nú til rannsóknar. Matvælastofnun og embætti yfirdýralæknis hafa jafnframt verið upplýst um atvikið. Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss, segir: Okkur er mjög brugðið yfir því að þetta skuli hafa endurtekið sig, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingar fyrra innbrotið hafði fyrir velferð dýranna. Hvað gengur þessu fólki eiginlega til? Við töldum í einfeldni okkar að þeir sem stóðu að fyrra innbrotinu hefðu ekki gert sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna og að vanþekking þeirra hefði orðið þess valdandi að úr varð dýraníð af verstu sort. Í ljósi nýlegra atburða á Reykjabúinu og Dalsbúinu, auk þessa endurtekna innbrots í svínabú okkar, tel ég hins vegar ljóst að þessar aðgerðir hafa snúist upp í andhverfu sína þ.e.a.s. virðast ekkert með umhyggju fyrir dýrum eða velferð þeirra að gera. Þvert á móti er engu líkara enn að tilgangurinn sé að valda dýrum ótta, meiðslum og dauða. Í ljósi alvarleika málsins hvetjum við þá sem stóðu að þessum verknaði til að gefa sig fram og axla ábyrgð á gjörðum sínum. Jafnframt biðjum við alla sem kunna að hafa upplýsingar um málið að hafa samband við lögreglu. Fréttin verður uppfærð.
Tengdar fréttir Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir „manifesto,“ svokallaða stefnuyfirlýsingu, samskonar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar. 2. júní 2026 10:08 Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt handtökur í tengslum við innbrotið í minkabúið í Mosfellsdal. Ekki hefur þó verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum. Bóndinn segir mikið uppbyggingarstarf fram undan en mikilvægt sé að fá ný dýr til landsins. 25. ágúst 2026 12:18 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sjá meira
Brotist inn í Reykjabú og annað „manifestó“ skilið eftir Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar og skemmdarverk unnin á býlinu aðfaranótt mánudags. Skilið var eftir „manifesto,“ svokallaða stefnuyfirlýsingu, samskonar og skilin var eftir í innbroti í svínabú Stjörnugríss í upphafi maímánaðar. 2. júní 2026 10:08
Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt handtökur í tengslum við innbrotið í minkabúið í Mosfellsdal. Ekki hefur þó verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum. Bóndinn segir mikið uppbyggingarstarf fram undan en mikilvægt sé að fá ný dýr til landsins. 25. ágúst 2026 12:18