Handbolti

Ómar Ingi ekki með Magdeburg í grátlegu tapi í Danmörku
Gísli Þorgeir Kristjánsson átti stórleik með Magdeburg sem beið lægri hlut gegn GOG í Meistaradeildinni í handknattleik í kvöld. Ómar Ingi Magnússon lék ekki með Magdeburg eftir að hafa gengist undir smávægilega aðgerð.

Arnar Freyr markahæstur hjá Melsungen í sigri gegn Gummersbach
Arnar Freyr Arnarsson var markahæstur í liði Melsungen þegar liðið lagði lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach í þýska handboltanum í kvöld. Þá voru Íslendingar í eldlínunni í Svíþjóð.

Jafnt hjá KA og Stjörnunni fyrir norðan
KA og Stjarnan gerðu 29-29 jafntefli þegar liðin mættust í Olís-deild karla í handknattleik á Akureyri í kvöld. Stjarnan náði mest sjö marka forystu í leiknum en KA átti frábæra endurkomu og var nálægt því að tryggja sér stigin tvö undir lokin.

Veszprem ennþá efstir í Meistaradeildinni
Bjarki Már Elísson og samherjar hans í Telekom Veszprem unnu í kvöld sinn fimmta sigur í sex leikjum í Meistaradeild Evrópu í handknattleik þegar þeir lögðu Orlen Wisla Plock frá Póllandi að velli.

Feðgar á ferð á Evrópuleik: Gaupi var svolítið stressaður
Guðjón „Gaupi“ Guðmundsson og Andri Már „Nablinn“ Eggertsson skelltu sér saman á fyrsta heimaleik Valsmanna í Evrópudeildinni og úr varð nýjasti ævintýri þeirra sem margir kalla „Feðgar á ferð“ og verður reglulega á dagskrá í Seinni bylgjunni.

Sigfús ekki hissa á velgengni Vals og hefur mikla trú á Snorra Steini
Velgengni Vals í Evrópudeildinni hefur ekki farið framhjá neinum handboltaáhugamanni. Sigfús Sigurðsson, fyrrum línumaður Vals og landsliðsins til margra ára, fylgdist að sjálfsögðu með Valsliðinu þegar liðið gerði góða ferð til Benidorm í Evrópudeildinni í handknattleik í vikunni.

Aron atkvæðamikill þegar Álaborg gerði jafntefli við Kiel
Aron Pálmarsson skoraði sex mörg fyrir lið Álaborgar þegar liðið gerði jafntefli við Kiel í Meistaradeildinni í handknattleik í kvöld.

Ýmir Örn hafði betur í bikarslag gegn Viggó
Ýmir Örn Gíslason og félagar hans í Rhein-Necker Löwen eru komnir áfram í þýsku bikarkeppninni í handknattleik eftir öruggan sigur í kvöld á Viggó Kristjássyni og samherjum hans í Leipzig.

Tvö mörk frá Orra Frey í fyrsta sigri Elverum
Orri Freyr Þorkelsson og félagar hans í Elverum unnu sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni í handknattleik þegar liðið lagði Celje Lasko á heimavelli í kvöld.

Rauða spjald Jóhanns Birgis dregið til baka
Aganefnd HSÍ fundaði í gær og tók þá fyrir mál fjögurra leikmanna sem fengu rautt spjald í 7.umferð Olís-deildar karla um síðustu helgi. Rauða spjaldið sem FH-ingurinn Jóhann Birgir Ingvarsson fékk gegn ÍBV var dregið til baka.

Ókeypis á leikina við Ísrael um helgina
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta leikur afar mikilvæga leiki við Ísrael um helgina á Ásvöllum í Hafnarfirði. Stefnt er á að fylla höllina og er aðgangur ókeypis í boði Arion banka.

Sendi leikmönnum Harðar sérstök skilaboð í síðasta Seinni bylgju þætti
Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur í Seinni bylgjunni, hafði áhyggjur af Harðarmönnum og að leikmenn liðsins skildu ekki ráðleggingarnar frá Seinni bylgju mönnum.

Stiven hló eftir stysta viðtal sögunnar
Valsarinn Stiven Valencia var fenginn í viðtal eftir sigurinn góða gegn Benidorm í Evrópudeildinni í handbolta í gærkvöld en þurfti ekki að verja löngum tíma fyrir framan míkrafóninn.

„Það er ótrúlegt hvernig hann nær þessu“
Björgvin Páll Gústavsson átti stórleik á Benidorm í gærkvöldi þegar Valsmenn héldu sigurgöngu sinni áfram í Evrópudeildinni.

Sjáðu magnaða vörslu Bjögga á Bene
Hinn 37 ára gamli Björgvin Páll Gústavsson sýndi algjörlega mögnuð tilþrif í þriggja marka sigri Vals gegn Benidorm í Evrópukeppni karla í handbolta í gær, 29-32.

„Þurftum að hafa fyrir hverju einasta marki“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var eðlilega ánægður með leik sinna manna eftir þriggja marka sigur liðsins gegn Benidorm í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 29-32. Valsmenn hafa nú unnið báða leiki sína í riðlakeppninni og eru með fullt hús stiga.

Umfjöllun: Benidorm - Valur 29-32 | Valur með fullt hús
Valur vann ótrúlegan sigur á Benidorm á Spáni 29-32. Valur var leiðandi allan leikinn og lenti aldrei undir. Staðan var jöfn í hálfleik 12-12. Valur komst mest fjórum mörkum yfir í seinni hálfleik en heimamenn komu til baka og voru lokamínúturnar afar spennandi. Arnór Snær Óskarsson gerði útslagið í brakinu þar sem hann gerði síðustu tvö mörk leiksins og Valur vann þriggja marka sigur 29-32.

Teitur hafði betur gegn Kristjáni og Ungverjarnir réttu úr kútnum eftir tapið gegn Val
Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg unnu öruggan fimm marka sigur er liðið tók á móti franska liðinu PAUC í B-riðli Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 30-25. Á sama tíma vann Ferencváros góðan þriggja marka sigur gegn sænska liðinu Ystads, 37-34.

Óðinn markahæstur í öruggum Evrópusigri Kadetten
Óðinn Þór Ríkharðsson var markahæsti maður vallarins er svissneska liðið Kadetten Schaffhausen vann öruggan átta marka sigur gegn Fejer B.A.L-Veszprém í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, 25-33.

Jóhann Gunnar valdi verstu dómaratuðara Olís-deildarinnar
Hvaða þjálfarar eru duglegastir að tuða í dómurum Olís-deildar karla? Jóhann Gunnar Einarsson reyndi að svara því í Seinni bylgjunni og valdi fimm mestu dómaratuðara deildarinnar.

„Hefur gríðarlega þýðingu fyrir okkur hérna heima“
Einar Jónsson, þjálfari Fram í Olís deild karla, þekkir ágætlega til BM Benidorm liðsins sem er að fara spila við Val í Evrópudeildinni í kvöld.

Gísli tilnefndur sem leikmaður mánaðarins
Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi Magdeburg, er tilnefndur sem leikmaður október-mánaðar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

„Vægt til orða tekið mjög óánægður með þessa breytingu“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, er hundóánægður með þá staðreynd að Valsmenn skuli ekki hafa fengið að spila leik á milli sigursins gegn Ferencváros í Evrópudeildinni í síðustu viku, og leiksins við Benidorm á Spáni í kvöld.

Spilar grófasti línumaður heims kannski í Argentínu?
Það er vel þekkt að það sé tekist aðeins í handboltanum en markmiðið er oftast að láta finna fyrir sér en ekki meiða andstæðinginn.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Fram 32-34 | Raunir Hauka halda áfram
Raunir Hauka í Olís deild karla í handbolta halda áfram en liðið tapaði með tveggja marka mun gegn Fram á Ásvöllum í kvöld. Fram hefur á sama tíma aðeins tapað einum leik og er aðeins stigi á eftir toppliði Vals. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

„Allar útskýringar hljóma eins og afsakanir eftir svona frammistöðu“
Haukar töpuðu gegn Fram á heimavelli 32-34. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Hauka, var ekki sáttur með fyrri hálfleik liðsins þar sem Haukar voru tíu mörkum undir í hálfleik.

„Varnarleikurinn leggur grunninn að þessu“
„Ég er virkilega sáttur að hafa unnið hérna í kvöld. Það er góð fyrsta tilfinning og á erfiðum útivelli. ÍR-ingar eru búnir að vera spila vel svo að við áttum von á hörkuleik. Þetta var þægilegra í seinni hálfleik, það var smá bras í fyrri,“ sagði Þórir Ólafsson, þjálfari Selfoss, sáttur eftir níu marka sigur á ÍR í Olís-deild karla í kvöld, lokatölur 26-35.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Selfoss 26-35 | Selfyssingar stöðvuðu sigurgöngu ÍR í Skógarselinu
ÍR-ingar sem hafa verið taplausir á heimavelli síðan þeir flutt í nýtt hús, tóku á móti Selfossi í 7. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Selfyssingum tókst að binda endi á það í kvöld er þeir unnu níu marka sigur á ÍR. Lokatölur 26-35.

Aftur vann Ísland með fimm marka mun í Færeyjum
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann fimm marka sigur á Færeyjum þegar þjóðirnar mættust í vináttuleik ytra í Klaksvík í dag, lokatölur 27-22 Íslandi í vil.

Gísli Þorgeir frábær í sigri Magdeburg
Þýskalandsmeistarar Magdeburg unnu öruggan átta marka sigur á Leipzig í úrvalsdeildinni í handbolta þar í landi. Gísli Þorgeir Kristjánsson var hreint út sagt frábær í liði Magdeburg á meðan Ómar Ingi Magnússon var heldur rólegur í tíðinni ef miða má við frammistöður hans undanfarin misseri.