Lífið

Tæki Brynjar Níels með í bústaðinn
Sanna Magdalena Mörtudóttir leiðtogi Sósíalistaflokksins segist spennt að kynnast nokkrum þingmönnum fari svo að hún komist á þing. Hún segir að líklega væri best að bjóða einum þingmanni úr öllum flokkum í sumarbústaðarferð.

„Hann kemur inn með algerlega einstakt sánd“
Tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Carl Craig kemur fram í Gamla bíó annað kvöld. Helgi Már Bjarnason, annars stjórnenda Partyzone, dansþáttar þjóðarinnar, segist afar spenntur fyrir komu Craig og að það megi búast við góðu partýi.

Stóð með sjálfri sér og ekki talað við pabba sinn síðan 2015
Þegar hún eignast maka skiptir kyn, litarháttur og trúarbrögð engu. En pólitískar skoðanir gera það.

Heiðdís Rós fagnaði sigrinum með sjálfum Trump
Heiðdís Rós Reynisdóttir, athafnakona og förðunarfræðingur, mætti og studdi Donald Trump, nýkjörsins forseta Bandaríkjanna, á kosningavöku hans í Flórída á þriðjudaginn.

Gunnhildur og Erin eignuðust dreng
Knattspyrnukonurnar, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Erin McLeod, eignuðust dreng í lok október. Um er að ræða fyrsta barn þeirra hjóna.

Seljaskóli og Ölduselsskóli áfram í úrslit í Skrekk
Seljaskóli og Ölduselsskóli tryggðu sér áfram í úrslit á þriðja og síðasta undanúrslitakvöldi Skrekks 2024 sem fram fram í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi.

„Dagurinn var algjörlega fullkominn“
Hinir nýgiftu Einar Guðmundsson og Aron Freyr eru búnir að vera par í rúm átta ár, eru báðir grafískir hönnuðir og reka saman verslunina Mikado á Hafnartorgi. Þeir trúlofuðu sig í Lissabon og á borgin svo stóran stað í hjarta þeirra að þeir ákváðu að halda brúðkaupið þar sömuleiðis. Blaðamaður ræddi við Einar og Aron um stóra daginn.

Þrjár menntastofnanir og þrír kennarar handhafar Íslensku menntaverðlaunanna
Þrjár menntastofnanir og þrír grunnskólakennarar eru handhafar Íslensku menntaverðlaunanna 2024 en tilkynnt var um úrslit þeirra í dag, miðvikudaginn 6. nóvember, með hátíðlegri athöfn á Bessastöðum.

Heitt, sveitt og óhugnanlegt á klúbbnum
Það var tryllt stemning á skemmtistaðnum AUTO um síðustu helgi þar sem fjöldi fólks skemmti sér fram á rauða nótt í mis óhugnanlegum búningum.

Aron selur húsið ári eftir kaupin
Aron Pálmarsson, handboltakappi og fyrirliði íslenska karlalandsliðsins, hefur sett hús sitt við Stekkjarberg í Hafnarfirði á sölu. Ásett verð er 142,8 milljónir. Aron er á leið til Ungverjalands þar sem hann mun spila með ungverska stórliðinu Veszprém.

Með 120 þúsund króna Dior der í golfi
Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class og áhrifavaldur, nýtur lífsins með fjölskyldunni í sólinni á erlendri grundu. Hún birti mynd á Instagram af sér á golfvelli, klædd í smart golfdress og með blátt der frá franska tískuhúsinu Christian Dior.

Gulrótasalat sem rífur í bragðlaukana
Heilsukokkurinn Kristjana Steingrímsdóttir, jafnan þekkt sem Jana, er dugleg að deila ýmsum uppskriftum í heilsusamlegri kantinum með fylgjendum sínum á Instagram. Nýlega deildi hún uppskrift að auðveldu gulrótarsalati sem hún segir rífa aðeins í.

Setning Steinda gerði keppendur brjálaða
Í 8-liða úrslitunum í Kviss á laugardagskvöldið mætti Þróttur Stjörnunni en þetta var fyrsta viðureignin í 8-liða úrslitunum.

Myndaveisla: Víkingskonur kunna að halda gott partí
Mikil gleði og stemning var á Kvennakvöldi Víkings í Safamýrinni síðastliðið laugardagskvöld. Færri komust að en vildu en uppselt varð á viðburðinn.

Versti óttinn að raungerast
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata segist hafa mjög takmarkað þol fyrir sterkum mat. Hún segist hinsvegar elska að stíga stundum út fyrir þægindarammann og skellir sér líka í störukeppni á meðan hún smakkar sterkustu sósuna.

Árbæjarskóli og Laugalækjarskóli áfram í úrslit í Skrekk
Atriði Árbæjarskóla og Laugalækjarskóla komust áfram í úrslit á öðru undanúrslitakvöldi Skrekks sem fram fór í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi.

Hvuttar á kjörstað
Það er ekki bara mannfólk sem mætir á kjörstað heldur gera bestu vinir mannsins það líka.

„Ég er miklu oftar gröð en hann“
Spurning barst frá lesenda: „Hvernig er best að tækla það að vera með ólíkar þarfir í kynlífi. Er búin að vera með manni í fimm mánuði og ég er miklu oftar gröð en hann. Ég upplifi höfnun og hann upplifir að hann sé ekki að standa sig. Sambandið er svo nýtt og mér þætti eðlilegast að stunda fullt af kynlífi. En hann hefur ekki þörf eða löngun eins og ég. Höfum rætt opið um þetta en ekkert breytist,“ - 47 ára kona.

Frægt fólk og feimnir karlar leita til Valgerðar spákonu
Valgerður Bachmann, spákona og miðill, hefur unnið í andlegum málefnum í næstum tvo áratugi. Hún segir alls konar fólk sækja þjónustu hjá henni; þekkt fólk og óþekkt, gamalt og ungt. Þá sæki karlar einnig mikið í spádóma en fari gjarnan krókaleiðir að því.

Þvertekur fyrir að typpið hafi verið stækkað
Leikarinn Barry Keoghan þvertekur fyrir það að hafa verið með gervityppi við tökur á kvikmyndinni Saltburn. Í lokaatriði myndarinnar dansar Oliver Quick, karakter Keoghan, um nakinn og segir leikarinn að honum hafi ekki þótt það neitt óþægilegt.

Hryllingurinn sveif yfir vötnum hjá fræga fólkinu
Hryllingurinn sveif yfir vötnum á hrekkjavökupartýinu Skuggamessunni á Ölveri um helgina. Metnaðurinn sem lagður var í búninga var mikill og fræga fólkið lét sig ekki vanta.

Finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl
„Við erum náttúrlega komnar á þann aldur að við verðum að vera í tiltekt, innri sem ytri, á bókaskápnum sem er spegill sálarinnar,“ segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og nú hlaðvarpsstjórnandi.

Fólk grípi til sænsku dauðhreinsunarinnar fyrr en ella
Sjónvarpsstjarnan Soffa Dögg Garðarsdóttir sem oftast er kennd við Skreytum hús hvetur fólk til þess að huga að því fyrr en ella að henda dóti í þeirra eigu þegar það kemst á miðjan aldur til þess að auðvelda afkomendum þeirra lífið þegar það fellur frá. Þetta hefur öðlast miklar vinsældir í Svíþjóð og er kallað sænska dauðahreinsunin.

Björn keypti sex hundruð ára höll í Frakklandi og ætlar að gera hana upp
Í síðasta þætti af Gulla Byggi var smiðurinn handlagni mættur til Frakklands.

„Ef við erum ekki að fara fá matareitrun núna þá er ekki hægt að fá matareitrun“
Þeir Dóri DNA og Steindi skelltu sér til Parísar í síðasta þætti af 1 Stjörnu á Stöð 2.

Siðlaus maður étur skít og öðlast samkennd
Bragi Páll var að senda frá sér sína fjórðu bók; Næstsíðasta líf Jens Ólafssonar Olsen. Þrándur Þórarinsson málar myndina á kápuna en þar má sjá söguhetjunni eftir að nokkur umskipti hafa átt sér stað. Hann étur skít og öðlast samkennd.

Fegurðardrottning fékk nýtt herbergi
Í fyrsta þætti af fimmtu þáttaröð af Skreytum hús, sem er í umsjón Soffíu Daggar Garðarsdóttur, heimsótti hún mæðgurnar, Emilíu Þóru Ólafsdóttur og Írisi Kristinsdóttur, gjarnan kennd við Buttercup, sem eru nýlega fluttar á Álftanes úr Grindavík.

Breiðholtsskóli og Hagaskóli áfram í Skrekk
Fyrsta undanúrslitakvöld Skrekks 2024 fór fram í Borgarleikhúsinu í gær. Í úrslit komust Breiðholtsskóli með atriðið Hraða lífsins og Hagaskóli með atriðið Stingum af.

Íslenskur leiklistarnemi upplifði óraunverulega stund í New York
Unnar Steinn Sigurðsson, leiklistarnemi í New York, skellti sér á umtalaðan kosningafund Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og forsetaframbjóðanda, í Madison Square Garden á dögunum. Unnar segir upplifunina hafa verið óraunverulega.

Segist aldrei myndu deita Depp
Camille Vasquez lögmaður Hollywood stjörnunnar Johnny Depp segir að hún myndi aldrei deita leikarann. Tilefnið er þrálátur orðrómur þess efnis að þau séu nú að stinga nefjum saman.