Viðskipti erlent

Lyfjarisar semja sig frá lögsókn vegna ópíóíðafaraldursins
Ísraelskt samheitalyfjafyrirtæki sem keypti starfsemi Actavis er á meðal þeirra sem samþykktu að greiða milljónir dollara í sátt.

Starfsmenn Boeing vissu af göllum 737 Max þotanna
Starfsmenn Boeing grunaði að sjálfvirkt öryggiskerfi 737 Max vélanna væri ekki í lagi en nokkrir starfsmenn sendu skilaboð um málið sín á milli árið 2016.

Gervigreind vélhönd leysir Rubikskubb
Með gervigreind var notuð jákvæð styrking til að kenna vélhendi með fingranema að leysa Rubikskubb. Gervigreind lærir mun hraðar en hugur manns. Ef sama aðferð yrði notuð á manneskju myndi það taka rúmlega 13.000 ár.

Fyrstu Harley Davidson rafmagnsmótorhjólin
Fyrstu rafmagnsmótorhjólin frá hinu sögufræga fyrirtæki Harley Davidson, voru seld í september. Vandræði komu upp með hleðslu þeirra en talsmenn fyrirtækisins segja nú að eigendur geti óhræddir hlaðið þau heima hjá sér.

Adidas hefur endurvinnslu
Íþróttavöruframleiðandinn Adidas og sprotafyrirtækið Stuffstr vinna nú saman að því að draga úr sóun með því að gera breskum neytendum kleift að skila notuðum vörum fyrir inneignarnótur.

Olíuboranir aukast hvergi meira en hjá Norðmönnum
Olíufélög hafa ekki borað meira í lögsögu Noregs frá olíuverðfallinu árið 2014. Engin önnur þjóð hefur aukið olíuleit meira en Norðmenn á þessu ári.

Nýr sími Google inniheldur ratsjá
Fyrirtækið Google kynnti í dag ný tæki og tól sem notendur munu geta nálgast á næstunni.

Deutsche bank tók fimm ár í að tilkynna grunsamlegar færslur Danske bank
Færslurnar eru allt að fimm ára gamlar en þýski bankinn tilkynnti þær ekki til yfirvalda fyrr en í febrúar á þessu ári.

Færeyingar eignast stóran hluta af laxeldi Skotlands
Færeyska fyrirtækið Bakkafrost hefur eignast 78 prósenta hlut í næst stærsta fiskeldisfyrirtæki Skotlands. Skoska fyrirtækið er með eldiskvíar á um 60 stöðum í Skotlandi og með yfir 600 starfsmenn.

Fall Thomas Cook reiðarslag fyrir ferðamannaiðnað Spánar
Stjórnvöld og fyrirtæki í geiranum búa sig undir mikið högg.

Stórhækka verður kolefnisgjald til að ná loftslagsmarkmiðum
Á Íslandi þyrfti að hækka kolefnisgjald á bensín um 160% miðað við hugmyndir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

WOW air frestar fyrstu ferðum til desember
Michele Ballarin, stjórnarformaður USAerospace Associates LLC, segir fyrirhugað að hefja sölu á flugmiðum hjá endurreistu WOW air í nóvember.

Nýjustu olíulindir taldar tryggja auðlegð Noregs næstu áratugi
Norðmenn hófu um helgina að dæla olíu upp af Johan Sverdrup-svæðinu, en þar eru einhverjar verðmætustu olíulindir sem fundist hafa í lögsögu Noregs.

Lögmenn stofnanda Theranos vilja losna við hann
Holmes var stjórstjarna í nýsköpunarbransanum á sínum tíma en stjarna hennar féll í skugga ásakana um meiriháttar svik og pretti hjá Theranos.

Ekki verið minna atvinnuleysi í 50 ár
Bandarískt hagkerfi bætti við 136.000 nýjum störfum í september en það dregur úr launaskriði. Vísbendingar um færri ráðningar. Atvinnuleysi er komið niður í 3,5 prósent og hefur ekki verið svo lítið síðan í desember 1969.

Tölvupóststækni á snjallsímaöld
Endurskoðendur þurfa reglulega að koma flóknum upplýsingum til skila í tölvupósti, en margir lesa tölvupóst í snjallsímum, sem gerir lesskilning erfiðari. Mikilvægt er því að skrifa mjög skýrt.

Banksy-verk seldist á metfé
Það er hæsta verð sem fengist hefur fyrir Banksy-verk.

2,2 milljarða tap hjá Arnarlaxi
Laxeldisfyrirtækið Arnarlax skilaði 16 milljóna evra tapi á síðasta rekstrarári.

Microsoft gerir aðra atlögu að símanum
Forsvarsmenn Microsoft kynntu í gær símann Surface Duo og er fyrirtækið þar með að gera aðra atlögu að símaframleiðslu rúmum tveimur árum eftir að framleiðslu síma var „hætt“ hjá Microsoft.

Bandaríkin geta lagt milljarða tolla á evrópskar vörur eftir úrskurð
Alþjóðaviðskiptastofnunin úrskurðaði Bandaríkjunum í vil í deilu um stuðning við flugvélaframleiðendur.

Vinnur mál vegna kaffiþyrstra grínista á rúntinum
Gamall samstarfsfélagi Jerry Seinfeld höfðaði mál og sakaði Seinfeld um að hafa stolið hugmyndinni að þáttunum.

Fatakeðjan Forever 21 sækir um gjaldþrotavernd
Til stendur að loka verslunum í fjörutíu löndum og fjölda verslana í Bandaríkjunum.

Vindmylluframleiðandinn Vestas segir upp 590 manns
Danski vindmylluframleiðandinn sagði upp starfsmönnum í verksmiðjum í Danmörku og Þýskalandi.

Risavaxinn flugvöllur opnar í Peking
Kínverjar opnuðu Daxing-flugvöllinn í höfuðborginni Peking í dag. Búist við tugum milljóna ferðamanna ár hvert.

Barbie kynnir kynhlutlausar dúkkur til leiks
Barbie-dúkkuframleiðandinn Mattel hefur hafið sölu á kynhlutlausum dúkkum sem framleiðendur segja að munu gefa börnum kleift að „tjá sig frjálslega“.

Fyrrverandi yfirmaður Danske Bank í Eistlandi fannst látinn
Aivar Rehe fór fyrir starfsemi Danske Bank í Eistlandi á árunum 2006 til 2015, en talið er að hundruð milljarða Bandaríkjadala hafi verið þvættaðir í gegnum útibú bankans í Eistlandi.

Boeing greiðir bætur til aðstandenda
Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing mun greiða aðstandendum þeirra sem létust í tveimur mannskæðum flugslysum í Eþíópíu og Indónesíu á þessu ári og hinu síðasta 144,5 þúsund dollara í skaðabætur.

Mikið verk að koma ósáttum strandaglópum heim
Gjaldþrot bresku ferðaskrifstofunnar Thomas Cook bitnar á sex hundruð þúsund ferðamönnum, þar af um hundrað og fimmtíu þúsund Bretum.

Thomas Cook fallið
Eftir árangurslausar viðræður í nótt ákváðu lánadrottnar og hluthafar að leggja niður starfsemi ferðaþjónustufyrirtækisins Thomas Cook.

Talið að Thomas Cook verði gjaldþrota
Líklegt er að ferðaþjónustufyrirtækið Thomas Cook sé á leið í gjaldþrotaferli.