Viðskipti innlent „
192 193 194 195 196 197 198 199 200 … 334 ›
„Smassa kjötið“ niður á pönnu á nýjum hamborgarastað við Ægissíðu Nýr hamborgarastaður, Smass, hefur verið opnaður við Ægissíðu. Hamborgarastaðurinn er rekinn samhliða mexíkóska veitingastaðnum Chido sem fyrir var í húsnæði veitingastaðarins við Ægissíðu 123. Rekstraraðilar staðarins fengu til liðs við sig reynslumikinn sérfræðing um hamborgara til að þróa uppskriftina en um um helgina verður prufuopnun staðarins. Viðskipti innlent 12.12.2020 12:17
Starfsfólk Landspítalans þarf að borga með jólagjöfinni sinni í ár Um sex þúsund starfsmenn Landspítalans hafa fengið jólagjöf sína í hendur. Um er að ræða sjö þúsund króna gjafabréf í skóbúðina Skechers sem er að finna í Kringlunni og Smáralind. Auk þess fylgdi súkkulaði frá Omnom. Viðskipti innlent 12.12.2020 06:00
Hætta á að erlend stórfyrirtæki gleypi ferðaþjónustumarkaðinn Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, segir mikla hættu á því að erlendir ferðaþjónusturisar sópi að sér viðskiptavinum sem áður versluðu við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki. Viðskipti innlent 11.12.2020 23:31
Vill skattleggja fiskeldið fyrir byggðir sem leggja til firðina Formaður íbúasamtaka Þingeyrar vill leggja gjöld á fiskeldi sem renni til sveitarfélaga á viðkomandi stöðum. Dýrfirðingar horfi auk þess upp á það að eldisfiskurinn þaðan sé fluttur til vinnslu í öðru sveitarfélagi. Viðskipti innlent 11.12.2020 22:35
Messenger virðist kominn í samt lag eftir „sambandsleysi“ Samskiptaforritið Facebook Messenger á nú að vera komið í samt lag eftir að hafa legið niðri framan af degi. Viðskipti innlent 10.12.2020 16:18
22 milljarða samdráttur í veitingageiranum Kortavelta í veitingageiranum hefur dregist saman um 22 milljarða að raunvirði frá því í mars á þessu ári þar til í október sé miðað við veltuna á árinu 2019. Viðskipti innlent 10.12.2020 07:55
Vara við svikapóstum sem sendir hafa verið í nafni DHL og Póstsins Valitor varar við svikahröppum sem reynt hafa að blekkja korthafa til að staðfesta kort í Apple Pay-snjallsímalausninni eða gefa upp SMS-öryggiskóða. Þannig hafa „sviksamlegir tölvupóstar“ til að mynda verið sendir út í nafni þekktra fyrirtækja á borð við DHL og Póstinn að því er fram kemur í tilkynningu frá Valitor. Viðskipti innlent 9.12.2020 19:04
Ferðahugur í Íslendingum í kjölfar bóluefnafrétta Íslendingar eru margir farnir að huga að sólarlandaferðum á næsta ári í ljósi fregna af bóluefni. Erlendir ferðamenn eru farnir að sýna landinu áhuga á ný. Viðskipti innlent 9.12.2020 18:31
Ríflega 130 milljóna gjaldþrot Lækjarbrekku Lýstar kröfur í þrotabú veitingastaðarins Lækjarbrekku nema hátt í 133 milljónum króna. Félagið Brekkan 101 ehf. var úrskurðað gjaldþrota í sumar en engar eignir fundust í búinu og lauk gjaldþrotaskiptum í lok nóvember að því er fram kemur í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í dag. Viðskipti innlent 9.12.2020 18:26
Eins og allir aðrir en kráareigendur eigi að fá að halda gleðileg jól Kráareigandi í miðbæ Reykjavíkur segist nú íhuga, líkt og fleiri veitingamenn og kráareigendur, að höfða mál gegn stjórnvöldum vegna sóttvarnaaðgerða síðustu vikur. Hann segir um mismunun að ræða og að svo virðist sem kráareigendur séu þeir einu sem ekki eigi að fá gleðileg jól. Viðskipti innlent 9.12.2020 17:33
Hollandsflug frá Akureyri blásið af í vetur Ekkert verður af fyrirhuguðum flugferðum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel í vetur til og frá Akureyri, líkt og áætlað var. Viðskipti innlent 9.12.2020 13:15
Eigendur Finnsku búðarinnar þurfa að greiða þrotabúinu milljónir Eigendur Finnsku búðarinnar sem rekin var í Kringlunni voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða þrotabúi búðarinnar um tíu milljónir króna. Um var að ræða greiðslur frá búðinni til eigendanna, sem þær skýrðu m.a. sem vangoldin laun. Viðskipti innlent 9.12.2020 11:00
Afar fáir tóku yfirtökutilboði Samherja Hlutur Samherja Holding í Eimskip mun aukast lítillega eftir yfirtökutilboð þess fyrrnefnda. Afar lítill hluti hluthafa tók tilboðinu. Viðskipti innlent 9.12.2020 09:05
Fjárfesting sonarins þrefaldaðist Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, segir ótrúlegt að fólk sé til í að ræða kynlíf, geðsjúkdóma og alls kyns aðra hluti við börnin sín en sleppi oft að ræða við þau um fjármál heimilisins. Viðskipti innlent 9.12.2020 09:01
Evran 12 krónum ódýrari en fyrir sex vikum Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst mikið undanfarna daga eftir mikla veikingu hennar gagnvart helstu gjaldmiðlum síðustu mánuði vegna kórónuveirufaraldursins. Þannig kostar evran nú tólf krónum minna en í lok október. Viðskipti innlent 8.12.2020 19:31
Segir tilslakanir hafa gríðarlega þýðingu fyrir rekstraraðila Verslunareigendur eru nokkuð ánægðir með tilslakanir, sem boðaðar voru af heilbrigðisráðherra í dag, enda skiptir það miklu máli þegar jólaverslun er við það að fara á fullt. Tinna Jóhannsdóttir markaðsstjóri Smáralindar segir það skipta miklu máli fyrir rekstraraðila að geta sinnt jólavertíðinni með sem eðlilegustum hætti. Viðskipti innlent 8.12.2020 18:47
Krónan að braggast og þrýstingur á verðlag minnkar Mikil styrking á gengi krónunnar á undanförnum vikum ætti að leiða til umtalsverðrar lækkunar á verði innfluttrar vöru í vetur að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Jákvæðar væntingar vegna frétta af bóluefnum gegn kórónuveirunni hafa sitt að segja um styrkingu krónunnar. Viðskipti innlent 8.12.2020 15:01
Fylltist örvæntingu eftir fréttir dagsins Eigandi Sporthússins telur það mismunun að halda líkamsræktarstöðvum lokuðum til 12. janúar hið minnsta, líkt og gert er ráð fyrir í nýjum sóttvarnareglum sem taka gildi á fimmtudag. Hann segir fréttir dagsins áfall og tjónið sem af lokununum hlýst gríðarlegt. Viðskipti innlent 8.12.2020 14:53
Opna IKEA á fimmtudag eftir fimm vikna lokun IKEA mun opna verslun sína í Kauptúni klukkan tíu á fimmtudagsmorgun. Undirbúningur við opnunina stendur nú sem hæst eftir að tilkynnt var um tilslakanir á sóttvarnareglum í dag. Viðskipti innlent 8.12.2020 14:24
Áfrýjar dómi sem gæti kostað ríkið milljarða Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að áfrýja dómi í máli hjóna sem höfðu betur í dómsmáli gegn Íbúðarlánasjóði. Ríkið segir að þetta sé gert í ljósi þeirra verulegu hagsmuna sem undir séu. Viðskipti innlent 8.12.2020 14:15
Íslendingar og Bretar skrifa undir viðskiptasamning Bresk og íslensk stjórnvöld hafa skrifað undir bráðabirgðafríverslunarsamning sem mun taka gildi í ársbyrjun 2021. Viðskipti innlent 8.12.2020 13:13
Ljósmyndara synjað um lokunarstyrk: „Þeir segja að ég hefði getað unnið í öðrum verkefnum“ Rán Péturs Bjargardóttir, ljósmyndari, furðar sig á því að hún skuli ekki eiga rétt á lokunarstyrk frá stjórnvöldum vegna kórónuveirufaraldursins. Viðskipti innlent 8.12.2020 10:08
Reglurnar „mjög einkennilegar“ í ljósi fermetranna 22.500 Framkvæmdastjóri IKEA segir að ef ekki verði slakað á fjöldatakmörkunum á fimmtudag, þannig að unnt verði að opna verslunina á ný, sé jólasalan ónýt. Hann segir núverandi reglur, sem gera aðeins ráð fyrir tíu viðskiptavinum í gríðarstórri versluninni í einu, einkennilegar. Viðskipti innlent 7.12.2020 22:06
54 milljónir í uppsagnarstyrki, endurráða alla og fjárfesta í um 600 bílum Bílaleigan Hertz ætlar að endurráða alla 66 starfsmenn fyrirtækisins sem var sagt upp í september. Fyrirtækið hefur fengið um 54 milljón króna ríkisstuðning vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnafresti en starfsfólk vann allan uppsagnarfrestinn. Forstjórinn segir bílasölu og langtímaleigu hafa gengið vel og býst við að fjárfest verði í um 600 bílum á næstunni. Viðskipti innlent 7.12.2020 21:00
Sjö þúsund flugu með Icelandair í nóvember Lítil breyting hefur orðið í farþegaflugi á vegum Icelandair á milli mánaða og voru farþegatölur í nóvember sambærilegar því sem þær voru í október. Alls flugu um sjö þúsund farþegar milli landa með Icelandair í nóvember, 97 prósent færri en í nóvember í fyrra. Viðskipti innlent 7.12.2020 19:19
Neytendasamtökin hvetja verslanir til að lengja skilafrestinn fram í janúar Athugulir neytendur hafa ef til vill tekið eftir því að það er óbreytt sem áður var; að margar verslanir veita aðeins frest til 31. desember til að skila jólagjöfum. Þetta þykir einhverjum ekki í takt við tíðarandann, nú þegar fólk er hvatt til að forðast hópamyndanir eins og heitann eldinn. Viðskipti innlent 7.12.2020 15:03
Lyf og heilsa kaupir Garðs apótek Haukur Ingason, eigandi Garðs apóteks, og Lyf og heilsa hafa undirritað með sér samning þess efnis að Lyf og heilsa taki yfir rekstur Garðs apóteks sem mun þó áfram verða rekið undir því nafni. Viðskipti innlent 7.12.2020 14:54
Forstjórinn seldi allan hlut sinn í Skeljungi Árni Pétur Jónsson, forstjóri Skeljungs, seldi í morgun hlutabréf í Skeljungi fyrir 20 milljónir króna. Hann átti 2,25 milljónir hluta og seldi á genginu 8,78 í gegnum félag sitt Hái klettur. Viðskipti innlent 7.12.2020 13:40
Ráðin nýr framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Wise Inga Birna Ragnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Wise. Viðskipti innlent 7.12.2020 12:55
Allar plastflöskur Coca-Cola á Íslandi úr endurunnu plasti á fyrsta ársfjórðungi Frá og með fyrsta ársfjórðungi 2021 verða allar plastflöskur, sem Coca-Cola á Íslandi framleiðir, úr 100% endurunnu plasti en við breytinguna mun notkun á nýju plasti á Íslandi minnka um 530 tonn. Forstjórinn segir fátt fara meira í taugarnar á honum en að sjá drykkjarumbúðir sem hann framleiðir úti á götu eða í fjörunni. Viðskipti innlent 7.12.2020 12:51