Viðskipti innlent

Mikið spurt um kvikmyndatökur á Íslandi
Síminn hefur vart stoppað hjá Íslandsstofu eftir að yfirmaður Netflix tilkynnti að nánast öll framleiðsla kvikmynda hefði stöðvast nema í Suður-Kóreu og á Íslandi. Beðið er eftir leyfi frá yfirvöldum til að hleypa erlendu starfsliði til landsins.

Sautján starfsmenn kláruðu sóttkví í Kína og Dettifoss loks á heimleið
Skipið Dettifoss, sem hefur verið í smíðum í Kína undanfarin misseri, er nú á heimleið en skipið sigldi af stað frá Guangzhou í Kína í gær.

Flugmönnum boðin sömu laun og vinna þá meira, fara á hlutabótaúrræði eða lækka launin sín
Flugfélagið Air Atlanta bauð flugmönnum sínum að halda óbreyttum launum og vinna umfram vinnuskyldu, fara á hlutabótaleið stjórnvalda eða taka á sig launalækkun. Forstjórinn segir það gert til að takast á við mikið tekjutap vegna kórónuveirufaraldurs.

Hagar endurgreiða og Festi hættir að þiggja
Fyrirtækin Hagar og Festi hafa ákveðið að nýta sér ekki hlutabótaleið stjórnvalda. Þetta kemur fram í tilkynningum frá fyrirtækjunum á fimmta tímanum.

Ferðagjöfina til Íslendinga verður hægt að nálgast fyrstu vikuna í júní
Hver Íslendingur fær um 5300 krónur í sinn hlut.

Geti lagt inn atvinnuleyfi sitt
Leigubílstjórar sem hafa haft atvinnuleyfi í skemur en tvö ár munu fá heimild að leggja inn atvinnuleyfi sitt samkvæmt nýju frumvarpi samgönguráðherra.

Vildu verja störf og völdu því hlutabótaleiðina
Félagið Origo sem skráð er í Kauphöllinni skilaði 425 milljóna króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi.

Bein útsending: Sækjum fram í breyttum heimi - Stafræn tækniráðstefna fyrir íslenska ferðaþjónustu
Þann 8.maí standa Íslenski ferðaklasinn og Ferðamálastofa fyrir ráðstefnunni Iceland Travel Tech sem miðuð er að breiðri virðiskeðju ferðaþjónustunnar.

„Bankarnir eru nú hluti af lausninni ekki vandamálinu“
Bankastjóri Arion banka segir efnahagssamdrátt vegna áhrifa af kórónuveirufaraldrinum meiri en í fjármálakreppunni árið 2008. Hins vegar sé efnahagslífið mun betur í stakk búið að takast á við kreppuna nú en þá.

Hveragerði hótar að hætta viðskiptum við Arion loki bankinn útibúinu
Bæjarráð Hveragerðisbæjar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Arion banka að loka útibúi bankans í bænum

Töluverður tekjusamdráttur hjá stærstu drykkjarvöruframleiðendum landsins vegna Covid-19
Bæði Ölgerðin og Coca-Cola á Íslandi hafa þurft að nýta sér úrræði ríkisstjórnar sem snýr að hlutabótum en hjá Ölgerðinni hafa alls 115 starfsmenn farið á hlutabætur og hjá Coca-Cola 60 starfsmenn þegar mest var. Hvorugt fyrirtækið hefur sagt upp starfsfólki.

Langaði í stríð við eftirlitið en ákvað að láta frekar af störfum
Guðmundur Kristjánsson segist hafa ákveðið að láta af störfum sem forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Brims í síðustu vikur eftir að Samkeppniseftirlitið tilkynnti honum að það hyggðist rannsaka tiltekin viðskipti Útgerðarfélags Reykjavíkur og tengdra aðila með eignarhluti í Brimi.

Finnur kemur í Finns stað hjá Högum
Finnur Oddsson, sem verið hefur forstjóri Origo síðustu sjö ár, hefur verið ráðinn forstjóri Haga.

Gerir ráð fyrir 7,3 milljarða rekstrarhagnaði en ætlar ekki að hætta við hlutabótaleiðina
Forstjóri Festar áætlar að hlutabótagreiðslur til starfsfólks nemi 40 milljónum á tímabilinu en Festi sér fram á 7,3 milljarða rekstrarhagnað á árinu 2020.

Landsbankinn tapar 3,6 milljörðum
Landsbankinn tapaði 3,6 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins 2020, samanborið við 6,8 milljarða króna hagnað á sama tímabili í fyrra.

Skeljungur býður starfsmönnum fullt starf á ný og endurgreiðir Vinnumálastofnun
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skeljungi.

„Algjörlega óþolandi“ að sjá fyrirtæki misnota aðstoð stjórnvalda
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra er verulega ósáttur yfir þeim tíðindum að stöndug fyrirtæki í landinu noti hlutabótaleið stjórnvalda.

Íslandsbanki veitir fyrirtækjum brúarlán
Íslandsbanki hefur tekið ákvörðun um að taka þátt í veitingu brúarlána til fyrirtækja en skrifað var undir samning þess efnis í dag milli Seðlabanka Íslands og Íslandsbanka.

Karl Hrannar og Vigdís Sigríður til Land lögmanna
Karl Hrannar Sigurðsson og Vigdís Sigríður Jóhannsdóttir hafa gengið til liðs við Land lögmenn.

Sárt að fá ekki að opna á sama tíma og sundlaugarnar
Eigendur líkamsræktarstöðva hafa verið ósáttir við að fá ekki að opna á sama tíma og sundið og sendu bréf á sóttvarnalækni í fyrradag vegna málsins.

WOW air ræður framkvæmdastjóra Rússlandsflugs
Michele Ballarin, stjórnarformaður nýja WOW air, segir flugfélagið hafa ráðið til sín Dmitry Kaparulin.

Þrír mánuðir af pöntunum fuðruðu upp
Þrátt fyrir að farið sé að birta til í kórónuveirumálum Íslendinga segjast aðstandendur veitingastaðarins Dills enn vera langt frá landi.

Verslunarmenn hafa aldrei séð annað eins
Garðhúsgögn, heitir pottar og gasgrill rjúka nú út sem aldrei fyrr og trampólín eru uppseld. Verslunarmenn segjast aldrei hafa upplifað annað eins.

Settu starfsmenn á hlutabætur, keyptu eigin bréf og greiddu arð
Tvö félög sem skráð eru á aðallista Kauphallarinnar nýttu sér hlutabótaleið stjórnvalda samhliða því að kaupa eigin bréf.

Sölu á Íslandsbanka slegið á frest
Áformum ríkisins um að selja eignarhluti sína í bönkunum hefur verið frestað sökum efnahagsþrenginga af völdum faraldurs kórónuveiru.

Arion og Íslandsbanki tapa milljörðum
Þetta kemur fram í árshlutauppgjörum bankanna sem bæði voru birt nú síðdegis.

1700 farþegar flugu með Icelandair í apríl
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu þar sem segir að þessi fjöldi farþega endurspegli þá stöðu sem nú ríkir í alþjóðaflugi vegna kórónuveirufaraldursins og þeirra ferðatakmarkana sem eru í gildi núna um allan heim.

Arion lokar útibúinu í Hveragerði
Starfsemi þess verður sameinuð útibúi bankans á Selfossi.

Samkeppniseftirlitið rannsakar viðskipti með bréf Brims
Samkeppnisyfirlitið hyggst rannsaka „hvort stofnast hafi til yfirráða Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og tengdra aðila í Brimi hf. vegna tiltekinna viðskipta Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og tengdra aðila á árinu 2019 með eignarhluti í Brimi hf.“

Starfslok Finns og Guðmundar kosta Haga vel yfir 300 milljónir
Starfslok þeirra Finns Árnasonar, forstjóra Haga, og Guðmundar Marteinsson, framkvæmdastjóra Bónus, munu kosta Haga vel yfir 300 milljónir króna.