Viðskipti innlent

Ed Sheeran-búð opnar í Kringlunni
Þann 18. júlí næstkomandi mun Sena Live opna Ed Sheeran-búð í Kringlunni. Búðin opnar í tilefni tveggja stórtónleika söngvarans sem fara fram 10. og 11. ágúst á Laugardalsvelli.

Wellington selur í Eimskip
Tveir sjóðir á vegum bandaríska sjóðastýringarfyrirtækisins Wellington Management hafa minnkað hlut sinn í Eimskipi úr 2,8 prósentum í 0,7 prósent frá því í febrúar.

Auka hlutafé um 300 milljónir
Kynnisferða juku við hlutafé fyrirtækisins um 300 milljónir króna í fyrra.

Valitor fellst á að greiða Datacell og SPP 1.200 milljónir
Samkomulag náðst um að greiðslumiðlunarfyrirtækið, sem er í eigu Arion banka, greiði Datacell og SPP, rekstrarfélagi WikiLeaks, skaðabætur í samræmi við dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í apríl.

Landsréttur úrskurðar öðru sinni vegna kyrrsettu vélarinnar
Landsréttur úrskurðaði í málinu í dag.

Segja Eldum rétt bregðast við með útúrsnúningi og rangfærslum
Efling gagnrýnir viðbrögð framkvæmdastjóra Eldum rétt við stefnu vegna fjögurra rúmenskra starfsmanna starfsmannaleigunnar MIV.

Starfsmönnum Íslandspósts tilkynnt um yfirvofandi uppsagnir
Forstjóri Íslandspósts segir að umtalverður hluti millistjórnenda og skrifstofustarfsmanna verði sagt upp. Sársaukafyllstu aðgerðunum eigi að ljúka að mestu fyrir haustið.

Ræðismaður Tyrklands á Íslandi orðinn aðstoðarhafnarstjóri
Gunnar Tryggvason rafmagnsverkfræðingur hefur verið ráðinn í starf aðstoðarhafnarstjóra Faxaflóahafna. Hann hefur störf 1. september n.k. Alls bárust 16 umsóknir um starfið en frá þessu er greint á vef Faxaflóahafna.

Eldum rétt taldi sig breyta rétt
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins Eldum rétt segir að fyrirtækið vilja axla ábyrgð og harmar það ef starfsfólk á vegum starfsmannaleigunnar MIV, sem áður hét Menn í vinnu, hafi verið beitt nauðung.

Bjóða 64 flugmönnum Icelandair hálft starf í stað uppsagnar
Icelandair mun ekki segja upp flugmönnum fyrir veturinn heldur bjóða á sjöunda tug flugmanna að minnka starfshlutfall sitt í 50 prósent yfir vetrartímann.

Skipt um gír eftir hraða uppbyggingu
Bláa Lónið fjárfesti fyrir 13 milljarða króna á fimm árum í innviðum án þess að safna skuldum eða auka hlutafé. Grímur Sæmundsen forstjóri segir að nú verði áhersla lögð á almennan rekstur.

Afnám hafta og háir vextir geri Ísland að góðum kosti
Fjárfestingastjóri BlueBay Asset Management, eins stærsta sérhæfða skuldabréfastýringarfyrirtækis Evrópu, telur að aflétting fjármagnshafta og háir vextir geri Ísland að aðlaðandi fjárfestingarkosti og býst við því að fleiri erlendir fjárfestar endurnýi kynni sín af landið.

Lausafjárstaðan fer enn versnandi
Lausafjáreignir viðskiptabankanna hafa haldið áfram að dragast saman á undanförnum mánuðum. Forstöðumaður greiningardeildar Arion banka segir hertar kröfur draga úr getu bankanna til þess að auka útlán á sama tíma og hagkerfið þurfi á auknu lánsfé að halda.

Stoðir bæta við hlut sinn í Símanum
Stoðir hafa bætt við sig í Símanum með kaupum á um 1,4 prósenta hlut í fjarskiptafélaginu að virði um 570 milljónir króna miðað við núverandi gengi hlutabréfa félagsins.

Taconic að auka hlut sinn í Arion um helming
Bandaríski vogunarsjóðurinn Taconic Capital, sem fer núna með sextán prósenta hlut í Arion banka, mun kaupa tæplega helminginn af tuttugu prósenta hlut Kaupþings í bankanum en eignarhaldsfélagið er nú að ganga frá sölu á öllum bréfum sínum í Arion banka, líklega strax í þessari viku.

Grunur um að skattkerfið sé misnotað í skipulagðri glæpastarfsemi
Milljarðar króna sem eiga að fara í ríkissjóð tapast á ári hverju vegna kennitölumisnotkunar íslenskra fyrirtækja.

Stefna Isavia og vilja lægri greiðslur
Kynnisferðir vilja að greiðslur þeirra til Isavia verði lækkaðar vegna ákvörðunar ríkisfyrirtækisins um að stöðva tímabundið gjaldtöku á fjarstæðum við Keflavíkurflugvöll. Hafi leitt til mismununar og röskunar á samkeppni.

Eydís á toppinn hjá Landmælingum Íslands eftir tuttugu ára starf
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Landmælinga Íslands til næstu fimm ára.

Simmi Vill orðinn talsmaður svína- og kjúklingabænda
Sigmar Vilhjálmsson ætlar sér að létta bændum umræðuna.

Vilja ekki pylsur við Sundhöllina
Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur leggst gegn því að komið verði upp pylsuvagni við Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg.

Kaupþing selur allan hlut sinn í Arion banka
Kaupþing hefur lengst af átt stóran meirihluta í Arion banka frá endurreisn bankans, en nú stendur til að selja þau 20% sem eftir eru af hlut félagsins.

XO á Hringbraut kveður
Forsvarsmenn XO hafa lokað veitingastað sínum við Hringbraut í JL-húsinu í vesturbænum í Reykjavík. Ástæðan er sögð breytingar á rekstri í húsnæðinu.

Gjaldþrota, fjallhress og sáttur
John Snorri göngugarpur hefur verið úrskurðaður gjaldþrota og honum er létt.

Íslandspóstur auglýsir Samskipti til sölu þrettán árum eftir kaup
Íslandspóstur er að undirbúa söluferli á prentþjónustufyrirtækinu Samskiptum. Salan er hluti af endurskipulagningu félagsins sem greint var frá á dögunum.

Verðhækkanir í kjötvinnslu: „Við höfum frekar haldið aftur af okkur en hitt“
Framkvæmdastjóri Ali ákvað að hækka vöruverð um 4,8% og forstjóri SS ákvað að hækka verð 23 af rúmlega 200 vöruliðum.

Kleinuhringjakeðjan Krispy Kreme kveður Ísland
Krispy Kreme opnaði hér á landi í nóvember árið 2016.

Arion selur hlut sinn í Stoðum
Arion banki hf. segist hafa samið um að sölu á öllum hlut bankans í fjárfestingafélaginu Stoðum hf

Sölustjóri Strætó verður sölustjóri Hreint
Skúli Örn Sigurðsson hefur tekið við sem sölustjóri hjá Hreint ehf.

Frá Eflu til Samorku
Gyða Mjöll Ingólfsdóttir hefur verið ráðin fagsviðsstjóri hjá Samorku.

Gistinóttum á Airbnb fækkaði um 29 prósent
Heildarfjöldi greiddra gistinátta í maí dróst saman um 10,2% milli 2018 og 2019.