Bíó og sjónvarp

Kletturinn og ferðalag

Glímutrölið The Rock, sem vakti fyrst athygli í bíómyndum fyrir hörmulegan leik sinn í hlutverki The Scorpion King í The Mummy Returns, er mættur til leiks í myndinni Walking Tall sem er frumsýnd í dag.

Walking Tall byggir á sannsögulegum atburðum og var fyrst kvikmynduð árið 1973 þegar Joe Don Baker lék lögreglustjórann Buford Pusser sem reis upp gegn glæpum í suðurríkjabæ í Teenessee og hristi upp í glæpalýðnum. Myndin gat af sér tvær framhaldsmyndir, Walking Tall Part II og Final Chapter: Walking Tall.

Sagan hefur tekið nokkrum breytingum í nýju myndinni en grunnstefið er það sama. The Rock leikur Chris Vaugn sem snýr aftur til gamla heimabæjarins síns eftir glæsilegan feril í hernum. Honum bregður heldur betur í brún þegar hann sér að bærinn er orðinn hið versta lastabæli sem spilavítiseigandi og keppinautur hans úr skóla stjórnar.

Chris ákveður að bjóða glæpahyskinu sem drottnar fyrir bænum birginn og bíður sig fram til embættis fógeta á staðnum og eftir að hann er orðinn laganna vörður fer hann einn á móti öllum og lætur ekkert stöðva sig.

Harðhausar og hasarmyndahetjur drottna yfir þessari frumsýningarhelgi en slagsmálakínverjinn Jackie Chan lætur ljós sitt skína í ævintýramyndinni Around the World in 80 Days en sú saga þarfnast vart kyningar en flestir þekka æsispennandi veðmál of ferðalag breska sérvitringsins Phileas Fogg umhverfis jörðina á 80 dögum.

Upprunalega sagan er eftir Jules Verne en í þessari nýju mynd er aðstoðarmaður Foggs, Passepartout, í forgrunni. Jackie Chan leikur Passepartout sem leitar skjóls undan laganna vörðum með því að slást í för með Fogg. Þekking hans í bardagalistum bjargar þeim félögum síðan úr mörgum háskanum en vondir menn reyna að sjálfsögðu að hindra för þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.