Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. september 2026 13:24 Jörðin undir fótum okkar fjallar um vistmenn á hjúkrunarheimilinu Grund. Heimildarmyndin Jörðin undir fótum okkar, í leikstjórn Yrsu Roca Fannberg, verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna árið 2027. Dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sá um valið en í henni í sátu fulltrúar helstu fagfélaga kvikmyndaiðnaðarins, auk fulltrúa kvikmyndahúsa, gagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Jörðin undir fótum okkar er þriðja kvikmynd Yrsu Roca Fannberg og fjallar um vistmenn á hjúkrunarheimilinu Grund, þar sem Yrsa hefur sjálf unnið um árabil. Myndin var frumsýnd á Íslandi á RIFF á síðasta ári, var sýnd á Rúv um páskana og var valin heimildarmynd ársins á Eddunni fyrr á árinu. Jörðin undir fótum okkar er framleidd af Hönnu Björk Valsdóttur fyrir Akkeri Films og meðframleiðandi er Malgorzata Staron hjá Staron Film í Póllandi. Kvikmyndin er studd af Kvikmyndamiðstöð Íslands, pólska kvikmyndasjóðnum, Nordisk Film & TV Fund, Eurimage, RÚV og YLE. Mikil vinna, nærgætni og skilningur að baki „Jörðin undir fótum okkar er einstaklega vel gert, persónulegt og áhrifaríkt kvikmyndaverk sem nálgast síðasta skeið mannsævinnar af kærleika og virðingu. Myndin beinir sjónum að tímabili í lífinu sem sjaldan fær mikið rými í frásögnum okkar og gerir það af einlægni og án tilgerðar,“ sagði um myndina í umsögn dómnefndar. „Það er augljóst að mikil vinna, nærgætni og skilningur liggja að baki nálgun leikstjórans, Yrsu Roca Fannberg. Vistfólk hjúkrunarheimilisins Grundar hleypir áhorfandanum nærri sér af hispursleysi og úr verður frásögn sem er í senn blátt áfram og draumkennd,“ segir jafnframt. Yrsa Roca Fannberg er leikstjóri myndarinnar. Taktur hversdagslífsins á Grund myndi rauðan þráð í gegnum myndina þar sem kyrrð og máttur augnabliksins galdra fram ljúfsára fegurð. Kvikmyndataka, klipping, hljóðmynd og tónlist vinni einstaklega vel saman og myndi órofa heild þar sem formið dýpkar frásögnina. Umfram allt einkennist Jörðin undir fótum okkar af ást og virðingu fyrir fólkinu sem hún fjallar um. Óskarsverðlaunahátíðin verður haldin í 99. sinn sunnudaginn 14. mars 2027. Ferli kosninga Akademíunnar er þannig að stuttlistinn svokallaði verður kynntur 15. desember næstkomandi, en tilnefningar til verðlaunanna verða opinberaðar 21. janúar 2027.
Kvikmyndagerð á Íslandi Óskarsverðlaunin Bíó og sjónvarp Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist „Erum bara vinir“ Lífið Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Fleiri fréttir Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira