Torg ehf. kaupir Fróða 10. ágúst 2004 00:01
Torg ehf., fyrirtæki í eigu Prentsmiðjunnar Odda hf., hefur keypt öll hlutabréf í útgáfufyrirtækinu Fróða hf. og mun taka við rekstri Fróða hf. frá og með deginum í dag. Í fréttatilkynningu frá Fróða segir að Fróði hf. og forveri hans, Frjálst framtak hf., hafi verið umfangsmesti tímaritaútgefandi landsins í á þriðja áratug. Fyrirtækið gefur nú út tvö vikublöð, Vikuna og Séð og heyrt, og að auki tímaritin bOGb, Gestgjafann, Hús og híbýli, Mannlíf og Nýtt Líf sem koma út mánaðarlega. Heildartölublaðafjöldi á ári er um 170. Í tilkynningu Fróða segir að aðaleigandi Fróða hf., Magnús Hreggviðsson, hafi ákveðið að draga sig út úr útgáfurekstri. Þá segir að í nokkra mánuði hafi staðið yfir viðræður við stórt erlent útgáfufyrirtæki um kaup á Fróða hf. og hafi þeir samninga verið að nálgast lokastig. Þá segir að vegna mikilla samskipta og viðskipta fyrirtækjanna Fróða hf. og Prentsmiðjunnar Odda hafi orðið úr að Oddi hf. gengi inn í þau samningsdrög sem fyrir lágu og keypti Fróða hf. Ekki eru áformaðar breytingar á útgáfustarfsemi Fróða hf. né heldur miklar breytingar á starfsmannahaldi, en hjá Fróða hf. starfa nú um 80 manns í föstum störfum. Fyrst um sinn mun Knútur Signarsson sem starfað hefur um langt árabil sem framkvæmdastjóri hjá Prentsmiðjunni Odda sjá um framkvæmdastjórn hjá Fróða hf. Hægt er að horfa á frétt Stöðvar 2 um málið með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Viðskipti erlent Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Opna menningarmiðstöð í Smáralind Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Neytendur Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Sjá meira