Vísitala framleiðsluverðs hækkar 14. ágúst 2004 00:01
Vísitala framleiðsluverðs er 100 stig á öðrum ársfjórðungi og hækkar um 1,9% á milli fjórðunga að því er greiningardeild Landsbankans greinir frá. Verðvísitala sjávarafurða hækkar um 1,1% á milli fjórðunga og önnur iðnaðarframleiðsla hækkar um 2,5%. Hækkanir á verðvísitölu framleiðslu eru aðallega tilkomnar vegna veikingar krónunnar en hún var 2,2% veikari á öðrum ársfjórðungi heldur en á þeim fyrsta. Þar af leiðandi er greinilegt að verð sjávarafurða hefur lækkað á erlendum mörkuðum á öðrum ársfjórðungi samkvæmt greiningardeildinni, en verð annarrar iðnaðarframleiðslu hefur hækkað lítillega. Þetta er einungis þriðji ársfjórðungurinn sem Hagstofan reiknar út vísitölu framleiðsluverðs og því er ekki hægt að bera tölurnar saman við fyrra ár. Vísitalan lækkaði um 1,9% á fyrsta ársfjórðungi en þá var krónan 3,9% sterkari að meðaltali heldur en á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Greiningardeild Landsbankans segir ljóst af framansögðu að þróun krónunnar hafi mikil áhrif á vísitölu framleiðsluverðs og þá sérstaklega á verð sjávarafurða. Verð annarra iðnaðarvara eru minna háð gengi krónunnar þó áhrifin séu vissulega einhver.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Viðskipti erlent Hefur styrkt KR um 300 milljónir Viðskipti innlent Wok to Walk opnar á Smáratorgi Viðskipti innlent Kaup Símans á Noona gengin í gegn Viðskipti innlent Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir Viðskipti innlent „Gamla góða“ Cocoa Puffsið aftur í verslanir Neytendur Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir Atvinnulíf Verð á kaffi sögulega hátt Viðskipti erlent KEA hefur innreið á íbúðaleigumarkað á Akureyri Viðskipti innlent Bilun hjá Símanum Neytendur Fleiri fréttir Hefur styrkt KR um 300 milljónir Kaup Símans á Noona gengin í gegn Verðstríð á jólabókamarkaði og hátt í þrefaldur verðmunur Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir KEA hefur innreið á íbúðaleigumarkað á Akureyri Hætta við skerðingar norðan- og austantil Bein útsending: Sameiginleg fjárfestakynning Marel og JBT Stefnu Samskipa gegn Eimskipi vísað frá dómi Wok to Walk opnar á Smáratorgi Krafa upp á 650 milljónir varði ekki verulega hagsmuni Samskip fá áheyrn Hæstaréttar í samkeppnismálinu Margrét tekur við nýju hlutverki hjá Advania Innlendir framleiðendur stundi samkeppnishindranir Fjölmiðlar á landsbyggðinni fá rúma milljón hver Kapp kaupir bandarískt félag Sesselja nýr forstjóri Genis Álfrún leiðir almannatengslin hjá Íslandsstofu Spá óbreyttri verðbólgu næstu tvo mánuði Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana Aðstoðarmaður Katrínar til Aton Lánakvótar svarið við háum vöxtum húsnæðislána Spánverjar sólgnir í íslenskar gellur Brotajárnsfyrirtæki metið á milljarða í kaupum Styrkáss Sækja reynslubolta í viðskiptagreind til Cubus Metsætanýting í nóvember hjá Icelandair Raforka hækkað um 13,2 prósent á árinu Forstjóri Dominos til N1 Verðhækkunin nemi ekki því sem Nói Síríus fái á sig Halli upp á tugi milljarða hjá hinu opinbera Segir að vel væri hægt að lækka vexti Sjá meira