Ummæli um Írak stangast á 19. janúar 2005 00:01
Samkvæmt orðum Halldórs Ásgrímssonar á Alþingi 12. mars 2003 hafði Íraksmálið aldrei verið rætt í ríkisstjórn. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra vill þó halda því fram að "...þetta Íraksmál [hafi] á síðustu árum verið margrætt í ríkisstjórn, utanríkismálanefnd, á vegum Alþingis og í flokkunum, á fundum flokkanna, fyrir og eftir þessa miklu ákvörðun". Orð Guðna stangast einnig á við orð flokksbróður hans, Magnúsar Stefánssonar þingmanns Framsóknarflokksins, sem jafnframt á sæti í utanríkismálanefnd. Í frétt á forsíðu Fréttablaðsins 24. mars 2003 sagði Magnús: "Við höfum ekki fjallað um þetta á þingflokksfundi, þannig að það liggur ekki fyrir nein umfjöllun um málið." Magnús er samhljóða Kristni H. Gunnarssyni, þingmanns Framsóknarflokksins, sem hefur margsagt að Íraksmálið hafi aldrei verið rætt í þingflokknum. Í yfirlýsingu forsætisráðherra frá því á mánudag kemur fram að "Íraksmálið [hafi verið] rætt nokkrum sinnum í utanríkismálanefnd og á Alþingi veturinn 2002-2003." Ekki er tekið fram í yfirlýsingunni hvort málið hafi verið rætt í ríkisstjórn. Síðar í yfirlýsingunni segir: "Að morgni þriðjudagsins 18. mars 2003 var ríkisstjórnarfundur og var Íraksmálið fyrsta málið á dagskrá." Ekki segir í yfirlýsingunni hvort málið hafi í raun verið rætt, einungis að það hafi verið á dagskrá. Fréttablaðið fékk ekki aðgang að fundargerð frá ríkisstjórnarfundinum. Halldór Ásgrímsson kaus að tjá sig ekki um málið í gær.
Framsóknarflokkurinn Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Sjá meira