Um meintan rasisma í Danmörku 7. febrúar 2005 00:01 Komdu sæll Egill og takk kærlega fyrir góðan þátt í dag. Umræðan um Danmörku í þættinum í dag var nokkuð góð og mjög áhugaverð. Það var auðheyrt að konan sem var í þættinum þínum er námsmaður og skoðanir hennar mótast mikið af því. Ég tók eftir því að hún minntist á að Nörrebro væri að verða vinsæll staður til að búa meðal Dana. Það er að vissu leyti rétt en samt ekki alveg. Það er vinsælt að búa rétt við Skt. Hans Torv og í Austur-Nörrebro. Aðrir staðir þar eru minna vinsælir. Árið 2003 voru til 45 lausar íbúðir í blokkaþyrpingu í Nörrebro sem kallast Mjölneparken. Þrátt fyrir þá húsnæðiseklu sem er hér í Köben vildi engin Dani flytja þangað. Ég tók líka eftir því að hún minntist ekki á það hvort að Ishöj eða Albertslund væru staðir sem skólafélagar hennar vildu búa í. Nörrebro er "in" í augnablikinu ásamt öðrum hverfum sem eru nálægt miðbænum. Hver ætli sé ástæðan fyrir því að innflytjendamál eru í umræðunni í Danmörku og um hvaða innflytjendur er verið að ræða? Umræðan snýst fyrst og fremst um múslima og afríkubúa, þar er stærsti hópurinn frá Sómalíu. Þetta eru þeir hópar sem hafa minnst aðlagast dönsku þjóðfélagi. Ég tel að stærsta ástæðan fyrir því að þetta fólk aðlagast ekki dönsku samfélagi sé að það vill það ekki. Hinn almenni Dani ætlast til þess að þegar einstaklingur flytur til Danmerkur geri hann ákveðna hluti sem að skiptir Dani miklu máli. Þú átt að læra tungumálið, ekki endilega það vel að þú náir stúdentsprófi í dönsku, heldur til að þú getir gert þig skiljanlegan og að þú skiljir málið. Danir ætlast líka til þess að þú virðir þeirra þjóðfélagsgildi og lög landsins. Þeir ætlast ennfremur til þess að reynir allt hvað þú getur til að finna vinnu. Þu þarft ekki endilega að finna vinnu en það skiptir máli hvort þú sért virkilega að reyna að finna hana. Staðreyndin er sú að það eru alltof margir sem koma hingað til að misnota danska velferðarþjóðfélagið og ætlast til þess að Danir sjái fyrir þeim. Tæplega 90% af innflytjendum frá Sómalíu eru atvinnulausir og tala ekki dönsku. Þetta er fólk sem kom hingað á árunum 91-94. Eftir öll þessi ár getur þetta fólk ekki talað eða skilið dönsku. Hverju ætli sé um að kenna? Myndir þú halda að það sé virkilega að reyna eða hafi nokkurn tíma gert það? Þetta fólk er barasta mjög sátt við að Danir skaffi því húsnæði og peninga fyrir ekki neitt. Skiljanlega eru Danir ekki alveg sammála þessu. Það sama á við um múslima sem að stærstum hluta koma frá Tyrklandi og Pakistan. Stærsti hlutinn af þessu fólki hefur engan áhuga á að aðlagast dönsku samfélagi eða að virða dönsk gildi eða lög. Það allra nýjasta sem þetta fólk gerir sem fer í taugarnar á Dönum er "endurmenntun". Hvað er þessi endurmenntun? Jú, ef börnin þeirra teljast of dönsk þá eru þau send til Pakistans eða Tyrklands og þeim kennt að vera "ekta múslimar". Svo er það hin margfræga 24 ára regla. Hversvegna var hún sett á og fyrir hvern? Hún var sett á fyrir ungar stelpur sem eru múslimar. Þær hafa verið þvingaðar til að giftast þegar þær hafa verið táningar (allt niður í 12 ára aldur) og síðan hefur eiginmaðurinn verið fluttur inn svo hann geti komist á danskan bistand (kallast familiesammenföring). Það er einfaldlega verið að skrúfa fyrir þetta. Ég er ekki alveg sammála því að Dansk folkeparti sé popúlistaflokkur og enn síður því að þetta séu rasistar eða fasistar. Pia og flokkurinn hafa verið mjög samkvæm sjálfum sér frá því að flokkurinn var stofnaður. Flokkurinn er einfaldlega á móti því að það sé verið að flytja inn bistandklienta. Þau álíta að ef einhver kemur hingað þá eigi viðkomandi að læra dönsku og aðlagast dönsku samfélagi. Þeir sem annaðhvort geta ekki eða vilja ekki geti bara verið þá heima hjá sér, flóknara er það ekki. Danir eru ekkert á móti því að fólk af erlendu bergi flytji til landsins svo lengi sem það leggur sitt af mörkum til þjóðfélagsins. Þeir vilja bara ekki flytja inn meira atvinnuleysi og félagsleg vandamál. Þeir eiga nóg með þau vandamál sem þeir hafa, þeir vilja ekki bæta meiru við. Þorbjörn Gíslason Sydhavn Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pistlar Silfur Egils Silfur-Bréf Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar