Skoðun

Grafið undan fag­legu starfi – Skipu­lags­breytingar á starfi fé­lags­mið­stöðva frá sjónar­horni starfs­manns

Ari Orrason skrifar

Borgarstjórn Reykjavíkur tók þá ákvörðun í lok ágúst að leggja niður hverfisbundnar frístundamiðstöðvar og segja upp starfsmönnum þeirra. Þetta er hluti af hagræðingaraðgerðum sem þeir flokkar sem nú skipa borgarstjórn lofuðu í seinustu kosningum. Með þessari aðgerð hefur forstöðufólk félagsmiðstöðva í Reykjavík misst sína næstu yfirmenn og sérhæfðan stuðning. Að mati fagfólks á sviði félagsmiðstöðva mun þetta hafa alvarleg áhrif á getu til að takast á við vanda barna og eru áhyggjur uppi um að ungmenni sem þurfi á hjálpinni að halda fái hana ekki.

Hvaðan koma þessar áhyggjur?

Forstöðufólk félagsmiðstöðva reiddi sig ekki aðeins á stjórnendur hverfisbundinna frísitundamiðstöðva fyrir ráðgjöf í starfi eða til að fá samþykki fyrir verkefnum. Þessir stjórnendur tóku til dæmis á sig skriffinnsku sem nú mun lenda á herðum forstöðufólks félagsmiðstöðva. Þar með verður minni tími til að sinna faglegu starfi. Fjármálastjórar hverfisstöðvanna héldu ekki bara utan um fjármál hverrar frístundarmiðstöðvar heldur aðstoðuðu við að finna lausnir fyrir forstöðufólk, fyrir þann pening sem þau höfðu úr að moða. Svigrúmið sem hverfismiðstöðvarnar sköpuðu fyrir forstöðufólk félagsmiðstöðva til að vinna faglegt starf á gólfinu er farið. Forstöðufólk er oft eina fagmenntaða starfsfólk félagsmiðstöðvanna, þeirra þekking og reynsla er gríðarlega mikilvæg á gólfinu.

Sem hluti af óformlegu menntaumhverfi eru félagsmiðstöðvar mikilvægur þáttur í félagsmótun ungmenna. Frá 5. bekk vinnum við með samskipti og framkomu í gegnum leik og samtöl og byggjum upp traust milli starfsfólks og barnanna. Með tímanum birtast nýjar áskoranir, sama hverjar þær eru þá viljum við að börn og unglingar geti leitað til ábyrgan fullorðins aðila og fengið ráðgjöf eða bara haft einhvern til að ræða þær við. Starfsfólk félagsmiðstöðva felst ekki síst í því að virkja þau í félagslegri þátttöku og vekjum með þeim tilfinninguna um að þau tilheyri sínu nærumhverfi og að þau geti leitað til annara þegar reynir á.

Félagsmiðstöðvar eru oft einu staðirnir sem ná að mynda tengsl við ungmenni sem standa höllum fæti, eru í skólaforðun eða eiga erfitt með að finna sig félagslega. Í þessu starfi skiptir fagleg leiðsögn forstöðufólks gríðarlega miklu máli. Þar með er ekki sagt að starfsfólk (tómstundaleiðbeinendur og tómstundaráðgjafar) sé ekki í stakk búið að mæta þessum ungmennum og aðstoða eftir bestu getu. Þegar forstöðufólk er bundnara við stjórnunarstörf en þau hafa verið veikist bakland og minnkar óhjákvæmilega stuðningur við það í erfiðum aðstæðum og þar með þjónusta við ungmenni. Ég hef miklar áhyggjur af því að þetta verða afleiðingar ákvörðunar borgaryfirvalda.

Ég hef starfað í félagsmiðstöðvum í þrjú ár, bæði úti á landi og í Reykjavík. Það er sama hvar ég hef verið þá hafa alstaðar verið öflugir og styðjandi stjórnendur. Þeir þekktu vel unglingahópinn sem kom í félagsmiðstöðvarnar og kunnu að draga fram styrkleika hvers starfsmanns starfinu til framdráttar.

Það er óviðunandi að gerðar séu stórfeldar skipulagsbreytingar á starfsvettvangi án samráðs við fagfólk.

Ítrekað niðurbrot frístundastarfs

Því miður er þetta ekki fyrsta skiptið sem ég upplifi þessi vinnubrögð af hálfu sveitastjórnar. Fyrir rúmu ári voru gerðar stórfelldar breytingar á skipulagi félagsmiðstöðvanna á Akureyri, mínum gamla vinnustað. Þær breytingar voru líka gerðar án alls samráðs við fagfólk. Ég flutti til Reykjavíkur því þar var búið að eiga sér stað gríðarleg uppbygging í félagsmiðstöðvastarfi og mér bauðst að leggja mitt að mörkum í spennandi tilraunaverkefni í einni félagsmiðstöð. Ég kom í þeirri von að þurfa ekki að horfa aftur upp á niðurrifið og vanvirðinguna gagnvart starfi okkar sem hafði átt sér stað fyrir norðan af hálfu bæjarstjórnar.

Þessi vinnubrögð eru nú að endurtaka sig hér í höfuðborginni þannig að sú von sem ég hafði með flutningum mínum til Reykjavíkur hefur dvínað. Mínar áhyggjur liggja fyrst og fremst í þjónustuskerðingu við ungmennin okkar. Á sama tíma og áskoranir ungmenna verða flóknari má ekki draga úr þjónustu við þau. Þessi ákvörðun Reykjavíkurborgar er illa ígrunduð og grefur undan því faglega starfi sem hefur átt sér stað og veikir stöðu barna á höfuðborgarsvæðinu.

Það stendur til að fyrsta ungmennastefna Íslands verði sett og er sú vinna hafin hjá stýrihópi mennta- og barnamálaráðuneytisins. Með henni á að marka samræmda stefnu í málefnum ungmenna í fyrsta sinn. Samkvæmt áformaskjali stefnunnar á að leggja hana fyrir Alþingi í haust. Það verður því að teljast afar óábyrgt að fara í meiriháttar skipulagsbreytingar sem gætu beinlínis stangast á við fyrirhugaða stefnu svona stutt áður en hún fer inn á þing.

Ég velti því fyrir mér: Hver er langtímasýn sveitarfélaganna í málefnum félagsmiðstöðva og hvernig höldum við áfram að mæta þeim áskorunum sem börn standa frami fyrir í nútíma samfélagi?

Höfundur er starfsmaður í félagsmiðstöð og formaður Ungra vinstri grænna.

Heimildir og frekari umræður

Breytt stjórnskipulag velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs: https://fundur.reykjavik.is/sites/default/files/agenda-items/Tillaga_%C3%B3tr%C3%BAna%C3%B0armerkt_me%C3%B0%20kynningu.pdf

Forvarna og frístundadeild Akureyrar lögð niður: https://www.akureyri.net/is/umraedan/forvarna-og-fristundadeild-akureyrar-logd-nidur

Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það?: https://www.visir.is/g/20262927362d/fristundamidstodvar-lagdar-nidur-a-hverjum-bitnar-thad-

Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi: https://www.visir.is/g/20262927695d/geri-litid-ur-fyrirmyndarstarfi

Telur niðurskurðinn geta leitt til kostnaðar annars staðar í kerfinu: https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-26-telur-nidurskurdinn-geta-leitt-til-kostnadar-annars-stadar-i-kerfinu-484905

Ungmennastefna Íslands 2026 2033 - Áformaskjal um fyrirhugaða stefnu: https://samradapi.island.is/api/Documents/edb84dd4-d008-f111-9bd5-005056bcce7e




Skoðun

Sjá meira


×