Baugur hættir við 8. júlí 2005 00:01
Baugur er hættur þátttöku í fyrirtækjahópi sem vinnur að kaupum á bresku verslunarkeðjunni Somerfield. Í tilkynningu frá félaginu segir að ákvörðunin hafi verið tekin í þágu samstarfsaðilanna í kjölfar þess að Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, og fimm öðrum einstaklingum voru birtar ákærur í Baugsmálinu svokallaða. Hreinn Loftsson, stjórnarformaður félagsins segir að Baugur sé brotaþoli í málinu. Fyrirtækið sé ekki ákært og rannsókn lögreglu snúi ekki að því. Samið hefur verið um að Baugur selji 5,55 prósenta hlut sinn í Somerfield fyrir um 6,5 milljarða króna. Áætlaður hagnaður Baugs af fjárfestingunni nemur um þremur milljörðum króna. Baugur mun samkvæmt samkomulaginu selja hlutabréf sín í Somerfield til félags í eigu eins af hópnum. Verði af yfirtöku mun hópurinn einnig endurgreiða Baugi þann kostnað sem félagið hefur lagt í vinnu vegna undirbúnings. Talið er að Baugur muni græða um þrjá og hálfan milljarð á sölu hlutabréfanna í Somerfield, en eins og einn viðmælandi fréttastofu orðaði það í morgun þá er það ekki nema brot af því sem félagið hafði séð fram á í hagnað ef af yfirtöku yrði. Heimildamenn fréttastofu telja að Baugur og bankarnir íslensku sem ætluðu að aðstoða við fjármögnun yfirtökunnar hafi séð fram á um tuttugu milljarða hagnað hið minnsta.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Viðskipti innlent Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Viðskipti innlent Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Opna menningarmiðstöð í Smáralind Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Óskar Ingi fjármálastjóri Beru Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Sjá meira