Beina leið í ræktina 30. ágúst 2005 00:01 Haustið er tími breytinga er undirtitillinn á fylgiblaði Fréttablaðsins í gær þar sem áhersla er lögð á líkamsrækt og margvísleg önnur námskeið. Undirtónninn er að þá hugi fólk að rækt líkama og sálar eftir að hafa látið það sitja á hakanum yfir sumarmánuðina. Þetta má líka sjá af tilboðum líkamsræktarstöðvanna sem auglýsa grimmt þessa dagana, hvort sem þær bjóða líkamsræktarkort sem veita aðgang að tækjasal eða margvísleg námskeið og aðhaldshópa, leggja þær mikla áherslu á að fá sem flesta til sín. Slær megrun út hvenær sem er Nú væri auðvelt að gera grín að þeim, sem eru nokkuð margir hverju sinni, sem kaupa sér líkamsræktarkort og keyra síðan langar leiðir á líkamsræktarstöð til þess eins að hlaupa á hlaupabrettum. Staðreyndin er þó sú að í nútímaþjóðfélagi mikillar neyslu og lítillar hreyfingar getur markviss líkamsrækt gert kraftaverk. Þó að mörgum þyki það ef til vill ótrúlegt er sennilega mun auðveldara að stunda líkamsrækt en að fara í megrun, fyrir utan að markviss líkamsrækt skilar mun betri árangri en nokkur megrunarkúr. Munurinn á þessu tvennu er tvíþættur. Annars vegar eykur fólk brennslu allan sólarhringinn með því að byggja upp vöðva (sem gerir fólki meðal annars kleift að ná af sér aukakílóum þrátt fyrir að borða sama matarskammt og áður), megrunin gengur oft einfaldlega út á að svelta sig (oftast tímabundið) eða byggir á flóknum töflum yfir hvað megi borða og hvenær. Að auki er líkamsrækt líklegri til að fylgja fólki í gegnum lífið en megrun. Það er mun auðveldara að æfa nokkrum sinnum í viku en að neita sér um fæðu öllum stundum. Gleymið því hugmyndinni um megrun og stundið frekar líkamsrækt. Þið getið reyndar farið milliveginn, stundað líkamsrækt og hliðrað mataræðinu aðeins til þannig að prótín og trefjar verði stærri hluti af fæðunni. Þá þurfið þið hvorki að mæla hitaeiningar né beita öðrum þeim brögðum sem fylgja ýmsum megrunarkúrum. Þekkingin skiptir sköpum Undirritaður hefur líkt og svo margir aðrir keypt sér kort í líkamsrækt með það fyrir augum að koma sér í form, losna við aukakíló og bæta úthald, reyndar tvisvar. Í bæði skiptin mistókst það og má sennilega kenna tvennu um, annars vegar að viljinn hafi ekki verið nógu mikill og hins vegar, sem hefur mikið að segja, að þekkingin á því hvernig væri best að þjálfa var lítil sem engin. Enda fór það svo í bæði skiptin að kortið entist lengur en líkamsræktin. Því er aðeins hægt að ráðleggja fólki að kynna sér kosti og galla hinna ýmsu líkamsræktarmöguleika áður en það leggur til atlögu. Viti fólk hvað það er að gera nær það frekar árangri en hamist það villt og galið án þess að vita hvað er líklegt til árangurs. Ein leið til að læra réttu handtökin er að fara á námskeið sem líkamsræktarstöðvar bjóða upp á eða ráða sér einkaþjálfara. Þar lærir fólk margt það sem auðveldar því að ná árangri. Önnur leið er að lesa sér til og þar er úr miklu magni bóka, tímarita og blaðagreina að velja. Höfundur bókarinnar "The Lean Body Promise: Burn Away Fat and Release the Leaner, Stronger Body Inside You" lofar gríðarlegum árangri á aðeins tólf vikum. Aðrir höfundar ganga jafnvel lengra eins og titillinn "The Abs Diet: The Six-Week Plan to Flatten Your Stomach and Keep You Lean for Life" gefur til kynna. Þrátt fyrir að loforðið virðist of gott til að vera satt, sem það sennilega er, er bókin stútfull af upplýsingum sem hjálpa fólki að komast í betra form, að því gefnu auðvitað að fólk sé reiðubúið að leggja á sig nokkra vinnu. Þarna er sýnt hvernig æfingar megi stunda, ráðleggingar um mataræði og leiðir til að halda sér við efnið. Hvora leiðina sem fólk fer er næsta öruggt að þeir sem vita hvað þeir eru að gera ná betri árangri en fólk sem erfiðar ómarkvisst og er því líklegra en ella til að koma sér í form til frambúðar. Að lokum er það svo besta leyndarmálið í líkamsrækt: Sundhöllin í Reykjavík. Þar er gott að hita upp með sundi, taka stuttar magaæfingar og lyfta síðan með handlóðunum sem líta dálítið út eins og leifar úr líkamsræktarstöð sem var gjaldþrota fyrir mörgum árum en skila miklum og góðum árangri. Fleiri sundlaugar bjóða upp á lóð og lyftingatæki og geta því reynst griðastaður fyrir þá sem treysta sér ekki eða vilja ekki fara á líkamsræktarstöðvar. Brynjólfur Þór Guðmundsson - brynjolfur@frettabladid.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Brynjólfur Þór Guðmundsson Í brennidepli Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar