Mikill áhugi á bréfum Standard Life 10. júlí 2006 13:07 Meirihluti hluthafa kaus um skráningu Standard Life fyrir tveimur árum. Mynd/AFP
Gengi hlutabréfa í tryggingafyrirtækinu Standard Life hækkaði um 5 prósent í frumútgáfu með bréf í fyrirtækinu í kauphöll Lundúna í Bretlandi í dag. Tryggingafélagið var stofnað fyrir 80 árum og hefur það fram til þessa verið í eigu viðskiptavina þess, sem eru 2,4 milljónir talsins. Fyrir tveimur árum var hins vegar ákveðið að skrá tryggingafélagið í kauphöll Lundúna. Standard Life var fyrir útboðið metið á 4,6 milljarða punda, jafnvirði rúmra 642 milljarða íslenskra króna og verður í kjölfar skráningar fimmta stærsta tryggingafélag í Bretlandi. Að sögn forsvarsmanna Standard Life var geysimikill áhugi á útboðinu. Við upphaf þess stóð gengið í 230 pensum á hlut en hækkaði fljótlega um 15 pens eða 6,5 prósent. Við lok útboðs stóð gengið í 241 pens á hlut og er vonast til að með því hafi tekist að auka hlutafé tryggingafélagsins um 1,1 milljarð punda, jafnvirði rúmra 153 milljarða íslenskra króna. Verði það raunin má búast við umsnúningi á rekstri félagsins. Hagnaður þess á síðasta ári nam 152 milljónum punda, jafnvirði rúmlega 21 milljarðs króna, en það náðist í kjölfar uppsagnar rúmlega 3000 starfsmanna og endurskipulagningar í rekstri.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira