Gæðaeftirlit viðhaft með háskólastiginu 5. október 2006 06:45 einbeittir nemendur hjá einbeittum kennara Menntamálaráðuneytið hefur verið að gera úttektir í einstaka deildum og skólum en ekkert í því magni sem það á að gera, segir framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra námsmanna.
Í lögum um háskóla, sem samþykkt voru á seinustu dögum sumarþings nú í sumar, er í fyrsta skipti kveðið á um í lögum að háskólum beri að sinna innra gæðamati með kerfisbundnu eftirliti með gæðum kennslu og rannsókna auk þess sem menntamálaráðuneyti skuli sinna ytra gæðamati. Gæðaeftirlit háskólastigs er mjög misjafnt eftir löndum í Evrópu að sögn Eyrúnar Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Bandalags íslenskra námsmanna. „Sum lönd eru komin miklu framar en við í þessum málum meðan önnur eru rétt að taka fyrstu skrefin. Samkvæmt skyldum Bolognaferlisins, sem Ísland er aðili að ásamt öðrum Evrópuríkjum, á gæðaeftirlit með háskólum að vera komið í lög fyrir árið 2010. Með því að festa þetta í rammalögum um háskóla núna er Ísland að taka þetta skrefinu lengra heldur en mörg önnur lönd.“ Eyrún segir það muna gríðarlega miklu fyrir háskólamenntun að gæðaeftirlit sé lögfest og bendir á að skortur á því hafi verið stór þáttur í því sem var gagnrýnt í nýlegri skýrslu frá Efnahags- og framfarastofnun Evrópu um menntun á Íslandi. Í lögunum segir að menntamálaráðherra gefur út reglur um viðurkenningu háskóla sem byggjast á alþjóðlegum viðmiðum um háskólastarfsemi. Í reglunum eru skilyrði sem háskólar eiga að fullnægja til að öðlast viðurkenningu og lúta þau meðal annars að fyrirkomulagi kennslu og rannsókna, hæfisskilyrðum starfsmanna, innra gæðakerfi og lýsingu á inntaki náms út frá þekkingu, hæfni og færni við námslok. Viðurkenning háskóla er bundin við tiltekin fræðasvið og uppfylli háskóli sem fengið hefur viðurkenningu ekki ákvæði laganna eða þær kröfur sem gerðar eru til kennslu og rannsókna getur menntamálaráðherra afturkallað viðurkenningu á einstökum fræðasviðum eða að fullu. Háskólar fá tveggja ára aðlögunartíma til að verða sér úti um viðurkenningar. Vinna við gerð reglna um viðurkenningar er nú í gangi hjá menntamálaráðuneytinu að sögn Hellenar M. Gunnarsdóttur, deildarstjóra háskóladeildar hjá menntamálaráðuneytinu. „Það verða væntanlega þrjár leiðir. Í fyrsta lagi þegar viðurkenning verður veitt, í öðru lagi verður viðurkenning veitt með skilyrðum til úrbóta og í þriðja lagi verður viðurkenning ekki veitt.“ Eyrún vonar að þessu verði fylgt eftir. „Það skiptir sköpum fyrir alla háskólanema að ganga að því vísu að þeirra nám sé viðurkennt og farið sé eftir öllum settum reglum og gæðastuðlum. Fyrir nemendur sem greiða skólagjöld er þetta sérstaklega þýðingarmikið, eins og staðan er í dag geta háskólar hækkað skólagjöldin ár eftir ár þrátt fyrir að nemendur hafi í raun enga tryggingu fyrir gæðum námsins sem skólarnir bjóða upp á.“ Eyrún segir eðlilegt að háskóli fái tíma og svigrúm til að bæta úr ef hann uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til hans samkvæmt þeirri viðurkenningu sem skólinn hefur hlotið. „En gerist það ekki segir það sig sjálft að svipta þarf skólana áður fenginni viðurkenningu.“
Innlent Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira