Hrósaði baráttuglöðum löndum sínum 13. september 2006 21:55 Sir Alex var ánægður með sína menn í kvöld og hrósaði löndum sínum í Celtic fyrir baráttuandann NordicPhotos/GettyImages
Sir Alex Ferguson var að vonum ánægður með góðan sigur sinna manna í Manchester United á Celtic í kvöld, en tók sér tíma til að hrósa löndum sínum fyrir að gefast aldrei upp. United vann leikinn verðskuldað 3-2, en skoska liðið stóð sig þó með mikilli prýði. "Celtic barðist vel allan leikinn, enda ekki við öðru að búast frá mönnum á þeim bænum. Ég verð þó að segja að ég var nokkuð ánægður með sóknarleikinn hjá okkur og við hefðum með öllu átt að skora fleiri mörk í kvöld. Við gáfum Celtic þó óþarfa tækifæri með lélegri einbeitingu okkar í vörninni," sagði Ferguson. Fyrrum leikmaður Manchester United og þjálfari Celtic, Gordon Strachan, sagði sína menn þurfa að horfast í augu við hina klassísku spurningu "hvað ef" á morgun. "Við lögðum upp með að beita skyndisóknum á þá og það heppnaðist ágætlega, en klúðruðum þessu með kæruleysislegum sendingum og það kostaði okkur leikinn. Það eru einstaka leikmenn sem þurfa að horfast í augu við það þegar þeir vakna á morgun," sagði Strachan. Það kann að hafa varpað nokkrum skugga á sigur Manchester United í kvöld að fyrr í dag var staðfest að Kóreumaðurinn Park yrði frá keppni í þrjá mánuði vegna ökklameiðsla og til að bæta gráu ofan á svart staðfesti Ferguson að Ryan Giggs yrði líklega frá keppni í þrjár vikur eftir að hafa tognað á læri í leiknum í kvöld.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Meistaradeild Evrópu Mest lesið Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Fleiri fréttir Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Sjá meira