Skuggaleikur hjá Óperunni 16. nóvember 2006 17:00 Frá sýningunni. MYND/ Óperan
Óperan Skuggaleikur, ný íslensk ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur og Sjón, verður frumsýnd í Íslensku óperunni laugardaginn 18. nóvember kl. 20.00. Skuggaleikur er ópera í fullri lengd fyrir fullorðna sem byggir á smásögunni Skugganum eftir H.C Andersen. Persónur óperunnar eru Skáldið, Skugginn, Skáldgyðjan og Prinsessan. Sagan er dæmisaga, þar sem skáld felur skugga sínum að finna skáldgyðju sína. Skáldinu til skelfingar hverfur skugginn. Löngu seinna vitjar skugginn skáldsins aftur og er þá orðinn að manni án skugga og það sem verra er án siðferðiskenndar. Skugginn nær valdi yfir skáldinu og þeir skipta um hlutverk, skugginn verður maðurinn og skáldið verður skugginn. Þegar blekkingarnar loks ganga fram af skáldinu vill hann leiða sannleikann í ljós, en það er of seint og hann geldur fyrir með lífi sínu. Þessi dæmisaga er eitt af fáum ævintýrum sem H. C. Andersen skrifaði fyrir fullorðna. Sagan er margræð, vekur upp siðferðilegar spurningar og á ekki síður erindi í nútímanum en þegar hún var skrifuð. Óperan Skuggaleikur er bönnuð börnum innan 12 ára. Tónlistin í verkinu er bæði ögrandi og skemmtileg í senn og textarnir eftir Sjón eru bæði dramatískir og hnyttnir. Einsöngvarar í sýningunni eru Eyjólfur Eyjólfsson, tenór, sem syngur hlutverk Skáldsins, Sverrir Guðjónsson, kontratenór, sem syngur hlutverk Skuggans. Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran, syngur hlutverk Skáldgyðjunnar, og Ásgerður Júníusdóttir, mezzósópran, syngur hlutverk Prinsessunnar. Hljómsveitin samanstendur af sex hljóðfæraleikurum og hljómsveitarstjóri er Guðni Franzson. Leikstjóri sýningarinnar er Messíana Tómasdóttir, en hún hannar einnig búninga, sviðsmynd og brúður sem spila stórt hlutverk í sýningunni. Ástrós Gunnarsdóttir er höfundur sviðshreyfinga og ljósahönnuður er David Walters. Aðeins eru fyrirhugaðar þrjár sýningar á Skuggaleik: Laugardagana; 18. nóv kl. 20, 25. nóv kl. 20og laugardaginn 2. desember kl. 20 Miðaverð er aðeins kr. 2.500.- Listrænir stjórnendur og þátttakendur: Tónskáld: Karólína Eiríksdóttir Texti: Sjón Hljómsveitarstjóri: Guðni Franzson Leikstjóri: Messíana Tómasdóttir Höfundur sviðshreyfinga: Ástrós Gunnarsdóttir Söngvarar: Eyjólfur Eyjólfsson tenór (Skáldið) Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran (Skáldgyðjan) Sverrir Guðjónsson kontratenór (Skugginn) Ásgerður Júníusdóttir mezzósópran (Skuggaprinsessan) Leikmynd, búningar og brúðugerð: Messíana Tómasdóttir Meðhöfundur að brúðum og grímum: Sigríður Sunna Reynisdóttir Lýsing: David Walters Myndvinnsla sýningar og hönnun kynningarefnis: Salbjörg Jónsdóttir
Lífið Menning Mest lesið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið Fleiri fréttir Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein