Ný dönsk glæpasería byrjar 10. janúar 2007 12:00 Sofie Graböl leikur ungan lögregluforingja Ljósmynd/Tine Harden
Ný dönsk glæpasería hóf göngu sína á sunnudagskvöldið á DR1 - Forbrydelsen – Glæpurinn – heitir hún og mun skemmta dönskum sjónvarpsáhorfendum næstu mánuði en þættirnir verða tuttugu að tölu og eru á dagskrá á sunnudagskvöldum á besta tíma á DR1. Innkaupadeild ríkissjónvarpsins hefur þegar tryggt sér þættina en ekki er ráðið hvenær þeir fara á dagskrá. Ríkissjónvarpið hefur haft gott upp úr dönskum þáttaröðum hin síðari misseri: síðustu þættirnir af Krónikunni fóru reyndar fyrir ofan garð og neðan hjá íslenskum sjónvarpsáhorfendum, voru lítið kynntir af sjónvarpinu, en þar voru allir endar hnýttir. Örninn hefur skemmt íslenskum áhorfendum undanfarin misseri og þar á undan voru þættir á borð við Taxa, Forsvar og Nikolej og Julía vinsælir. Stöð 2 sýndi Rejseholdet líka við góðar undirtektir. Forbrydelsen er samin af Sören Sveistrup, en hann var aðalhöfundur Nikolej og Júlíu. Þaðan fekk hann leikkonuna Sophie Gråbøl sem leikur Söru Lund, unga lögreglukonu sem hyggst flytja til Svíþjóðar en lendir ásamt eftirmanni sínum í rannsókn á hvarfi ungrar stúlku. Sofie Gråbøl er líka hátt skrifuð leikkona, bæði fyrir sjónvarpsleik sinn, leik í kvikmyndum og á sviði. Gagnrýnendur segja framleiðendur hafa lært sitt af velgengni nokkurra raða og nefna þeirra á meðal svo ólíka þætti sem 24, Rejseholdet og Kóngakapalinn sem hér hefur enn ekki sést, en allt eru þetta þrautskipulagðir formúluþættir. Annar þátturinn verður á dagskrá á DR 1 kl. 20.
Mest lesið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið Fleiri fréttir Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Stjörnum prýdd stikla Black Mirror Nolan sagður stefna á tökur á Íslandi Ljósbrot besta myndin en Snerting með flest verðlaun Happy Gilmore snýr aftur Harpa kvótadrottning aftur á skjáinn Ólafur Darri og félagar framleiða sína fyrstu teiknimynd Anora sigurvegari á Óskarnum Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein Sjá meira
Óskarsverðlaunasérfræðingur spáir í Hollywood-spilin: Spennandi óskar í vændum og ekkert meitlað í stein