Tölvumiðstöð sparisjóðanna fær nýtt nafn 23. mars 2007 18:15
Tölvumiðstöð sparisjóðanna heitir nú Teris. Ákvörðun um þetta var tekin á aðalfundi félagsins í dag. Hjá Teris, sem er upplýsingatæknifyrirtæki sem þjónustar fjármálafyrirtæki og á meðal stærstu upplýsingatæknifyrirtækja landsins, starfa 100 manns. Nafnabreytingin er í takt við aukna áherslu þess á þjónustu við fyrirtæki utan sparisjóðanna, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Þjónustu Teris er skipt í lausnir fyrir viðskiptabanka og fjárfestingabanka. Undir viðskiptabankalausnum má finna kortalausnir, inn- og útlánalausnir og almennar þjónustulausnir. Fjárfestingabankalausnir ná yfir markaðsviðskipti og eignastýringu, fjár- og áhættustýringu og einkabankaþjónustu. Haft er eftir Sæmundi Sæmundssyni, forstjóra Teris, að félagið hafi þróast hratt síðustu ár og sé það í raun búið að sprengja utan af sér þann ramma sem settur var í upphafi. „Við ætlum okkur enn stærri hluti á þeim markaði í framtíðinni. Með nýju nafni og nýju skipulagi erum við enn betur í stakk búin til að verða eitt öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins," segir hann.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira