Hét á páfa og læknaðist 27. mars 2007 18:30
Frönsk nunna sem læknaðist af Parkinsons-veiki eftir að hafa heitið á Jóhannes Pál páfa annan er höfuðástæða þess að honum verður veitt sérstök blessun á tveggja ára ártíð sinni í næstu viku. Komi annað kraftaverk í ljós verður hann tekinn í dýrlingatölu. Á mánudaginn verður þess minnst að tvö ár eru liðin frá því að Jóhannes Páll páfi annar andaðist og við það tækifæri á að taka hann í helgra manna tölu. Í dag héldu prelátar Páfagarðs blaðamannafund þar sem þeir kynntu þau gögn sem liggja til grundvallar ákvörðuninni um að veita páfanum sáluga þessa sérstöku blessun en slíkur gerningur krefst mjög nákvæmrar rannsóknar. Þyngst vegur vitnisburður franskrar nunnu sem var illa þjáð af Parkinsons-veiki. Hún hét á páfa, sem var þá nýlátinn, að lækna sig. Örskömmu síðar hvarf henni sóttin. Á pálmasunnudag verður greint frá því í hvaða biskupsdæmi nunnan á heima en ekki verður þó sagt frá nafni hennar. Komi annað kraftaverk í ljós verður hægt að taka páfa í dýrlingatölu. 10.000 manns hefur í gegnum tíðina hlotnast sá heiður, þar á meðal Þorláki helga Skálholtsbiskupi. Á hann hafa margir heitið með góðum árangri.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira