Skólanemar streyma í strætó Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 4. september 2007 18:30
Farþegum Strætó á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um fjórðung á þessu hausti - þökk sé fríkortinu sem sveitarfélögin ákváðu að gefa framhalds- og háskólanemum. Þetta er mat framkvæmdastjóra Strætó. Beinharðar tölur um fjölda þeirra sem eru að taka strætó nú í haust samanborið við undanfarin ár eru ekki komnar í hús. En sterkar vísbendingar eru um að tilraun sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til að fjölga farþegum með því að gefa framhalds- og háskólanemum frítt í strætó sé að lukkast. Að sögn Reynis Jónssonar framkvæmdastjóra Strætó er aukningin umtalsverð. Það sér hann á því að menn þurftu að senda 2-3 aukavagna á fjölmennustu leiðirnar á mestu annatímum á morgnana strax þegar framhaldsskólarnir byrjuðu, en ekki 1-2 eins og verið hefur undanfarin ár. Og það þrátt fyrir þéttari tíðni en var í fyrra en á helstu leiðum gengur strætó núna á kortersfresti en ekki 20 mínútna. Um 30 þúsund strætókort fyrir framhalds- og háskólanema voru gefin út í haust - og Reynir telur að um tveir þriðju þeirra séu nú þegar gengnir út.
Fréttir Innlent Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira