"Kloni" tryggði Bayern sigur 30. september 2007 13:30 Luca Toni fagnar sigurmarki sínu fyrir Bayern í gær NordicPhotos/GettyImages
Bayern Munchen vann í gær mikilvægan 1-0 sigur á Bayer Leverkusen í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Það var Ítalinn Luca Toni sem skoraði sigurmarkið skömmu fyrir hlé eftir sendingu frá Miroslav Klose. Þetta var sjötta mark Toni á leiktíðinni og hafa þeir Toni og Klose nú gert 13 mörk á milli sín í deildinni - meira en öll nema tvö lið í deildinni hafa gert samanlagt. Þýsku blöðin hafa verið mjög hrifin af sóknardúett Bayern sem þau hafa gefið nafnið "Kloni." Bayern hefur hlotið 20 stig úr 8 leikjum í deildinni en Leverkusen er féll úr öðru í það fjórða eftir tapið. Bayern hefur fjögur stig í forskot á næsta lið sem er Schalke, en þetta eru einu tvö taplausu liðin í Þýskalandi. Schalke fór í annað sætið með sigri á Hertha 1-0 og Karlsruhe er óvænt í þriðja sæti eftir 3-1 sigur á Dortmund. Meistarar Stuttgart töpuðu 2-1 fyrir Hansa Rostock og var það fjórði tapleikur liðsins í röð á útivelli. Liðið á næst leik gegn Barcelona í Meistaradeildinni á þriðjudaginn. Annars má segja að lið Werder Bremen hafi verið lið helgarinnar í úrvalsdeildinni eftir ótrúlegan 8-1 sigur sinn á Bielefeld í gær. Sigurinn fleytti liðinu í fimmta sæti deildarinnar þar sem þeir Hugo Almeida og Boubacar Sanogo skoruðu tvívegis og Peter Niemeyer, Per Mertesacker, Markus Rosenberg og Diego komust einnig á blað.
Þýski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Sjá meira