Auðvitað á Eiður að byrja gegn Real Madrid Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. desember 2007 18:10 Eiður fagnar marki sínu um helgina með þeim Giovanni og Samuel Eto'o. Nordic Photos / AFP
Pitu Abril, dálkahöfundur í spænska dagblaðinu El Mundo Deportivo, segir að Eiður Smári Guðjohnsen eigi að sjálfsögðu að halda sæti sínu í byrjunarliði Barcelona gegn Real Madrid um helgina. Abril segir að frammistaða Eiðs Smára gegn Valencia um helgina hafi borið skugga á mörkin tvö sem Samuel Eto'o skoraði og frábæra frammistöðu Xavi Hernandez í leiknum. Hann hafi sýnt að hann sé mikilvægur hlekkur á milli miðju og sóknar hjá liðinu. Hann segir einnig að Eiður hafi staðið sig vel gegn Espanyol og að leikurinn gegn Stuttgart í Meistaradeildinni hafi verið hans besta frammistaða á tímabilinu. En á Mestalla, heimavelli Valencia, á laugardaginn hafi hann sýnt frábæra takta með þeim Xavi og Toure á miðjunni. Abril segir að það komi honum ekki á óvart að Eiður skuli fyrst núna blómstra með Barcelona. Þegar hann kom til félagsins var því haldið fram að hann ætti að vera hinn fullkomni eftirmaður Henrik Larsson. En Eiður er ekki sóknarmaður, hann er miðjumaður. Sem slíkur hafi hann gott vald á boltanum, hann spili vel þegar hann snúi baki í markið og haldi aldrei boltanum lengur en hann þurfi. Hann sé þungamiðjan í stórhættulegu samspili þeirra Xavi, Messi og Eto'o. „Ætti Eiður Smári að halda sæti sínu í byrjunarliðinu gegn Real Madrid? Að sjálfsögðu. En það væri mistök að halda að vegna hans sé Ronaldinho á bekknum. Eiður ætti að berjast fyrir sæti sínu á miðjunni. Á sunnudaginn verður hann örugglega á sínum stað og jafnvel við hlið Ronnie, góðvinar síns."
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira