Real hefur ekki unnið á Riazor síðan 1991 1. september 2008 12:30 Svipurinn á Arjen Robben lýsir vel vonbrigðum Real á Riazor NordicPhotos/GettyImages
Segja má að leiktíðin á Spáni hafi byrjað hörmulega fyrir stórveldin Barcelona og Real Madrid. Barcelona tapaði opnunarleik sínum í deildinni gegn Numancia á útivelli í gær 1-0 og ekki gekk betur hjá erkifjendum þeirra, meisturum Real Madrid. Real menn hefðu eflaust kosið að byrja leiktíðina á flestum öðrum völlum en Riazor í La Coruna, en þar endurtók sagan sig þegar Real tapaði 2-1 fyrir Deportivo í lokaleiknum í gær. Miguel Mista kom Deportivo á bragðið á 27. mínútu en Hollendingurinn Ruud van Nistelrooy jafnaði metin á 47. mínútu leiksins. Aðeins fimm mínútum síðar skoraði hinsvegar Alberto Lopo það sem reyndist vera sigurmark Depor í leiknum. Hrakfarir Real Madrid á Riazor vellinum hafa verið með hreinum ólíkindum, en liðið hefur ekki unnið þar síðan það vann 3-0 sigur í viðureign liðanna árið 1991. Síðan þá hafa liðin mæst 17 sinnum á Riazor og hefur Deportivo unnið tólf þeirra en fimm hefur lokið með jafntefli. Aðeins Barcelona getur státað af öðrum eins árangri á heimavelli gegn Real Madrid í sögu félagsins, en Real vann ekki leik á Nou Camp á árunum 1984 til ársins 2002 - eða í 20 leiki í röð.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira