Barcelona hafði betur í risaslagnum 13. desember 2008 22:53 Menn tókust hart á í El Clasico í kvöld NordicPhotos/GettyImages
Barcelona vann í kvöld 2-0 sigur á erkifjendum sínum í Real Madrid í uppgjöri risanna í spænska boltanum. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld og átti fínan leik, en úrslit leiksins réðust ekki fyrr en í blálokin þrátt fyrir góð tilþrif frá báðum liðum. Maður leiksins var líklega Iker Casillas í marki Real Madrid, því hann hélt sínum mönnum inni í leiknum. Eiði Smára var skipt af velli eftir rúmlega klukkutíma leik og varamaður hans Sergi Busquet fiskaði vítaspyrnu skömmu síðar. Casillas varði hinsvegar spyrnuna frá Samuel Eto´o og leikurinn því enn í járnum. Eto´o bætti svo fyrir mistök sín á 83. mínútu þegar hann kom Barcelona yfir eftir snarpa sókn og argentínska undrabarnið Leo Messi innsiglaði svo sigurinn með marki í uppbótartíma. Sigur Börsunga var verðskuldaður því þeir voru allan tímann líklegri til að skora. Real átti á löngum köflum undir högg að sækja í leiknum og Juande Ramos þjálfari liðsins á mikið verk fyrir höndum, en hann var þarna að stýra liðinu í fyrsta skipti í deildinni eftir að hafa tekið við liðinu í vikunni. Barcelona hefur nú átta stiga forystu á toppi deildarinnar - hefur 38 stig - 12 stigum meira en Real. Valencia er í öðru með 30 stig og Villarreal hefur 29 stig í þriðja sætinu og á leik til góða.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira