Busquets hafnaði samingstilboði Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. nóvember 2008 10:31 Busquets, til vinstri, fagnar marki með Börsungum. Nordic Photos / AFP
Sergio Busquets hefur hafnað samningstilboði frá Barcelona en þetta staðfestir umboðsmaður hans í samtali við fjölmiðla. Busquets er á sínu fyrsta tímabili með aðaalliði Barcelona en hann lék áður með varaliðinu undir núverandi knattspyrnustjóra, Pep Guardiola. Busquets er tvítugur að aldri og hefur átt gott tímabil til þess með Börsungum. Hann er enn á samningi miðað við vara- og unglingaliðsleikmann og buðu forráðamenn félagsins honum því nýjan samning. Að sögn umboðsmannsins vill Busquets fá eina milljón evra í árslaun en Börsungar voru tilbúnir að bjóða honum hálfa milljón í fasta greiðslu. Önnur hálf milljón bætist við ef hann spilar í minnst 60 prósent leikjanna á tímabilinu. Það vildi Busquets ekki sætta sig við og hafnaði hann því tilboðinu. Hann sagði þó í viðtali á dögunum að hann vildi án nokkurs vafa vera áfram í herbúðum Börsunga en Arsenal er sagt fylgjast náið með gangi mála. Xavi á einnig í viðræðum við Börsunga þessa dagana um nýjan samning.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira