Heilbrigðari starfsgrunnur lífsnauðsyn 23. október 2008 06:00 1. Þorsteinn Þorsteinsson, markaðsstjóri RÚV ohf., segir orðrétt í Markaðnum 16. júlí, í mótsvari við staðhæfingu um að RÚV ohf. njóti forgjafar á samkeppnismarkaði vegna ríkisinnheimtu á afnotagjöldum: „Það má […] alveg eins kalla það forgjöf að 365 [eða eitthvert annað einkarekið fjölmiðlafyrirtæki, innsk.] búi við tvo tekjustofna, þ.e. áskrift og auglýsingar." Hér fellur Þorsteinn í þá sjálftilbúnu gildru, að halda að einkarekin fjölmiðlafyrirtæki geti yfir höfuð búið við eiginlega forgjöf. Það er rangt hjá Þorsteini, og í sjálfu sér undarlegt að einhver sem titlar sig markaðsstjóra skilji ekki slíka grundvallarþætti markaðsstarfs. Einkarekin fyrirtæki selja viðskiptavinum sínum þjónustu, og standa og falla með því að hún sé þess virði að kaupa hana. Þau eiga allt undir viðskiptavinum sínum. Grunnurinn sem RÚV ohf. starfar á, og réttilega má kalla forgjöf, er lögbundin innheimta á gjöldum frá Íslendingum. Á þessu tvennu er skýr munur; forgjöf vegna lögbundinnar tekjuöflunar, hvort sem fólki líkar betur eða verr, og svo seld þjónusta einkafyrirtækis, sem aðeins er keypt telji viðskiptavinurinn það vera þess virði. Þessi forgjöf, sem hún augljóslega er, skapar forskot á keppinauta um auglýsingar. Inntakið í svari Þorsteins, að fyrrnefndu leyti, er því rangt.2. Ríkisfjölmiðlar - sem hafa frétta- og menningarlegu hlutverki að gegna samkvæmt lögum - í löndunum í kringum Ísland starfa ekki inni á auglýsingamarkaði. Ríkisútvörpin í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og Bretlandi starfa ekki inni á auglýsingamarkaði. Í Danmörku er þó sjónvarpsstöðin TV 2 í ríkiseigu, en þar er gerð krafa um fjárhagslegan aðskilnað þannig að ljóst sé að grunnur stöðvarinnar sé ekki niðugreiddur með skattfé. Þetta er efnislega sama krafa og samkeppniseftirlitið gerði við frumvarpið um RÚV ohf. Í áliti samkeppniseftirlitsins segir að þátttaka RÚV á auglýsingamarkaði feli í sér samkeppnislega mismunun - það er lögbrot - og tvær leiðir séu færar til að koma í veg fyrir hana. Annars vegar að horfið verði frá þátttöku á auglýsingamarkaði og hins vegar að tryggt sé, með fjárhagslegum aðskilnaði og sérstökum rásum og stöðvum, að skattfé niðurgreiði ekki samkeppnisstarfsemina. TV 2 byggist á seinna atriðinu. Það er reyndar umdeilt í Danmörku, enda hvílir ríkisstarfsemi ávallt á því að stoðirnar eru tryggðar með ríkisábyrgð, sem fæst á betri kjörum en einkafyrirtækjum bjóðast. Þátttaka ríkisins á samkeppnismörkuðum er því alltaf viðkvæm að því leyti. Dæmi Þorsteins í Markaðnum 16. júlí, um að TV 2 sýni að einkareknu íslensku stöðvarnar búi við betri kost en sambærileg fyrirtæki í Danmörku í ljósi 60 prósent markaðshlutdeildar TV 2 á auglýsingamarkaði, er því efnislega rangt og ekki viðeigandi sem dæmi.3. Það sem hefur oft verið vanmetið er varðar þátttöku RÚV á samkeppnismarkaði, er smæð og viðkvæmni markaðarins. Á Íslandi búa um 318 þúsund manns og í ljósi þess er með hreinum ólíkindum að heildarvelta á auglýsingamarkaðnum sé um tíu milljarðar. Nánast útilokað er að auglýsingamarkaðurinn verði svo stór í ljósi hruns efnahagskerfis landsins. Mörg þúsund milljarða uppgufun á verðmætum úr skráðum íslenskum félögum á innan við ári, gefur vísbendingu um slæmar markaðsaðstæður til nokkuð langrar framtíðar, eins og allir finna nú fyrir. Smæðin gerir markaðinn enn viðkvæmari fyrir sveiflum en ella, þar sem viðskiptavinir - fólk og fyrirtæki - þurfa einnig að laga sig að sömu breytum; sveiflum og viðkvæmni vegna smæðar. Hafi Þorsteinn áhuga á því að gera alþjóðlegan samanburð á markaði hér og erlendis þá væri líklega skynsamlegra að einangra sig við úthverfi borga, heldur en margfalt stærri þjóðir. Til dæmis myndu litlir fjölmiðlar í Herlev og Amager á stór-Kaupmannahafnarsvæðinu líklega gera athugasemdir við það, ef sveitarstjórnin á þessum svæðum tæki upp á því að gefa út fjölmiðil sem aflaði milljarðs á ári með auglýsingum. Markhópurinn, miðað við fólksfjölda, er svipaður og hér á landi.4. Við þær aðstæður sem nú hafa skapast í íslensku efnahagslífi, þarf ríkisvaldið að spyrja hvort það sé eðlileg stefna, í ljósi gjörbreyttra markaðsaðstæðna, að afla tekna með auglýsingasölu í beinni samkeppni við einkafyrirtæki. Þær jafngilda um 3.200 krónum á hvern Íslending á ári. Sjálfstæðismenn, og reyndar sumir Samfylkingarmenn líka, hafa stundum hrópað á torgum að þeir séu á móti því að ríkið starfi á samkeppnismörkuðum. Lítil hugsjónafylgd er í þeim orðum ef horft er til fjölmiðlamarkaðar. Enginn atvinnuvegur í landinu býr við viðlíka hlutdeild ríkisins á samkeppnismarkaði og fjölmiðlamarkaður. Tugir hafa þegar misst vinnuna á einkareknum fjölmiðlum í landinu það sem af er hausti og það gefur auga leið að sú þróun heldur áfram á næstunni. Nú þegar hefur næsmestlesna dagblað landsins, 24 stundir, sem hafði yfir 50 prósent jafnan lestur, verið aflagt. Fyrirsjáanlegt er að fjölbreytilegri frjálsri fjölmiðlun í landinu er ógnað á næstu misserum verði afstaða ríkisvaldsins til þess að afla tekna með auglýsingasölu, ekki endurskoðuð. Einkum er tímabært að gera þetta núna, þegar löggjafarvaldið þarf að fara í rækilega naflaskoðun vegna hruns íslensks efnahags. Á undanförnum árum hafa einungis menn, sem hafa efni á því að tapa á fjölmiðlarekstri, haft áhuga á því að eiga fjölmiðla einhverra hluta vegna. Reikna má með því að í flestum lýðræðisríkjum hefði sú þróun kveikt á viðvörunarbjöllum hjá löggjafarvaldinu, en það gerðist ekki hér. Sé hlutdeild ríkisvaldsins á auglýsingamarkaði afnumin ættu að skapast aðstæður fyrir aðra en milljarðamæringa til að hafa möguleika á því að reka fjölmiðla í landinu til framtíðar. Þannig skapast heilbrigðari starfsgrunnur fyrir blaðamenn, lýðræðislega umræðu og rekstur fjölmiðlunar, bæði af hálfu ríkisvaldsins og einstaklinga úti í bæ. Höfundur er fyrrverandi fréttastjóri á 24 stundum og blaðamaður á Morgunblaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Halldórsson Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar