Skoðun

Bláskógaskatturinn hefur á­hrif víða

Sveinn Ægir Birgisson skrifar

Áform ríkisstjórnarinnar um náttúru- og innviðagjald við Þingvelli, Geysi og Gullfoss hafa verið nefnd Bláskógaskatturinn. Þó gjaldtakan sé bundin við þessa þrjá staði munu áhrif hennar ekki einskorðast við sveitarfélagamörk Bláskógabyggðar. Samhliða boðaðri hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum munu þessar álögur hafa áhrif á atvinnulíf víða á Suðurlandi. 

Málið snýst um störf, fjárfestingu og framtíð samfélaga sem hafa byggst upp í kringum ferðaþjónustuna. 

Byggðastefna í verki 

Lengi vel fóru margir ferðamenn Gullna hringinn í dagsferð frá Reykjavík og sneru þangað aftur til að borða og gista. Dugmikið fólk, sem hafði kjark til að fjárfesta og skapa störf, hefur breytt þessu mynstri. Með uppbyggingu afþreyingar, veitingaþjónustu og gistiaðstöðu hafa skapast fleiri ástæður til að staldra við. 

Ávinningurinn nær langt út fyrir einstök fyrirtæki. Lengri dvöl gesta styður við fjölbreyttari þjónustu, fjárfestingu og atvinnuuppbyggingu. Þannig skapast tækifæri fyrir fleiri fjölskyldur til að sjá framtíð sína á svæðinu. 

Þetta er byggðastefna í verki og að mínu mati einhver hagkvæmasta byggðastefna sem stjórnvöld geta stutt. 

Áhrifin ná víðar 

Í Árborg sjáum við hvernig ferðaþjónusta styrkir samfélagið. Uppbygging hennar hefur átt þátt í að skapa forsendur fyrir nýjum miðbæ á Selfossi. Veitingastaðir, verslanir og þjónusta laða að gesti og auka um leið lífsgæði heimamanna. 

Hækkun ferðakostnaðar getur leitt til breyttra ferðaáætlana eða minni útgjalda til gistingar, veitinga og afþreyingar. Tekjuáætlun ríkissjóðs ein og sér segir því ekki alla söguna. 

Sækjum fram 

Árlegur fjöldi erlendra ferðamanna hafði árið 2025 enn ekki náð sömu hæðum og yfir met árið 2018. Áframhaldandi fjölgun er því ekki sjálfgefin. 

Tækifærin felast meðal annars í lengri dvöl. Samkvæmt útreikningum Samtaka ferðaþjónustunnar gæti það skilað sex til sjö milljörðum króna í auknar skatttekjur ef 30% ferðamanna dveldu einni nótt lengur. Sóknarfærin felast í því að skapa ferðamönnum ástæður til að dvelja lengur, fremur en að einblína á að afla aukinna tekna með skattahækkunum. 

Þingmenn standi saman 

Gjaldtaka við Gullna hringinn er ekki aðeins hagsmunamál þeirra fyrirtækja sem starfa á svæðinu, heldur snertir hún fyrirtæki og sveitarfélög á Suðurlandi öllu. Ferðaþjónustan er enda samofin atvinnulífi svæðisins og því geta áhrif aukinna álaga teygt anga sína langt út fyrir fyrirtækin sem bera þær beint. 

Ég skora á þingmenn Suðurkjördæmis að standa saman, þvert á flokka, og stöðva framgang þessara áforma þar til óháð og heildstætt áhrifamat liggur fyrir. Meta þarf samanlagðar afleiðingar fyrir heimili, fyrirtæki, störf og fjárhag sveitarfélaga á Suðurlandi.

Höfundur er formaður bæjarráðs Árborgar og stjórnarmaður í Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS).




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×