Hamar lagði Grindavík í tvíframlengdum leik 17. desember 2008 21:24 Lakiste Barkus skoraði 31 stig fyrir Hamar í sigrinum á Grindavík
Fjórir leikir voru á dagskrá í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. Mesta spennan var sannarlega í Hveragerði þar sem heimastúlkur í Hamri unnu 87-84 sigur á Grindavík í tvíframlengdum háspennuleik. LaKiste Barkus var stigahæst hjá Hamri með 31 stig, Julia Demirer var með tröllatvennu upp á 29 stig og 25 fráköst og Hafrún Hálfdánardótti rskoraði 16 stig og hirti 10 fráköst. Hjá Grindavík var Ingibjörg Jakobsdóttir stigahæst með 17 stig og Íris Sverrisdóttir skoraði 14 stig. Haukar eru sem fyrr á toppnum eftir öruggan 89-62 sigur á KR á Ásvöllum. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 29 stig , hirti 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar hjá Haukum og Slavica Dimovska skoraði 15 stig og hirti 8 fráköst. Hjá KR var Hildur Sigurðardóttir atkvæðamest með 20 stig og 9 fráköst og Sigrún Ámundadóttir skoraði 16 stig og hirti 15 fráköst. Valur lagði Snæfell á útivelli 70-57 þar sem Signý Hermannsdóttir átti án efa frammistöðu kvöldsins hjá liði Vals. Signý skoraði 35 stig, hirti 12 fráköst, gaf 8 stoðsendingar og varði 8 skot. Tinna Sigmundsdóttir skoraði 10 stig, hirti 8 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Hjá Snæfelli skoraði Berglind Gunnarsdóttir 20 stig og hirti 8 fráköst og Gunnhildur Gunnarsdóttir skoraði 16 stig. Loks vann Keflavík stórsigur á Fjölni 99-50 í Keflavík þar sem lið gestanna tapaði 38 boltum í leiknum samkvæmt tölfræði frá KKÍ. Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 23 stig og hirti 10 fráköst fyrir Keflavík og Birna Valgarðsdóttir skoraði 18 stig. Birna Eiríksdóttir var stigahæst hjá Fjölni með 14 stig. Lið Hauka er sem fyrr segir á toppnum með 20 stig, hamar hefur 18 í öðru sæti, Keflavík 16 í þriðja og Valur 12 í fjórða sætinu. KR er í fimmta sæti með 10 stig, Grindavík í sjötta með 8 og Fjölnir og Snæfell reka lestina með 2 stig hvort.
Dominos-deild kvenna Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Sjá meira